Kaup Fjarðabyggðar á ríkisjörðinni Grænanesi í Norðfirði
Mál 1008013 Fyrst á dagskrá 17. ágúst 2010, síðast 18. október 2012. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Neskaupstaður og Norðfjörður
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2010
Bæjarráð, fundur 207 liður 4
Ríkisjörðin Grænanes í Norðfirði - Hugsanleg kaup Fjarðabyggðar á jörðinni.
Bæjarstýra fór stuttlega yfir forsögu málsins en það nær aftur til 2008. Bæjarstýru og umhverfisstjóra falið að funda með forsvarsmönnum Golfklúbbs Norðfjarðar um leigu á spildu sem klúbburinn hefur haft til afnota og jafnframt að ræða við Sjávarútvegs- og landbunaðarráðuneytið í framhaldi af því.
-
Bæjarstjórn, fundur 76 liður 3.4
Fundargerðin „Bæjarráð - 207“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
Ríkisjörðin Grænanes í Norðfirði - Hugsanleg kaup Fjarðabyggðar á jörðinni.
-
2012
Bæjarráð, fundur 311 liður 3
Bæjarráð samþykkir framlögð drög að kaupsamningi og afsali vegna kaupa Fjarðabyggðar á 1,86 hektara af landspildunni "Eyjan 1" - landnúmer 220532, sem skipt hefur verið út úr upprunajörðinni Grænanesi - landnúmer 158153. Kostnaði kr. 520.000 verður mætt af liðnum 21-69- Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita samninginn.
-
Bæjarstjórn, fundur 121 liður 1.3
Fundargerðin „Bæjarráð - 311“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.