Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 311

8. október 2012, kl. 08:30 til 11:00, í Molanum. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 121 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman. Til máls tóku: Eydís Ásbjörnsdóttir, Elvar Jónsson, Jósef Auðunn Friðriksson, Jón Björn Hákonarson, Páll Björgvin Guðmundsson, Valdimar O Hermannsson, Óskar Þór Hallgrímsson, Sævar Guðjónsson. Fundargerð bæjarráðs frá 8. október samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun 2013 - Hafnarstjórn

    Mál 1208061 Allur ferill málsins

    Þennan lið fundarins sátu framkvæmdastjóri hafnanna og formaður hafnarstjórnar.  Farið yfir forsendur gjaldskrár hafnanna og fjárhags- og fjárfestingaráætlunar 2013.

  2. 2. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2013

    Mál 1208011 Allur ferill málsins

    Þennan lið fundarins sátu fræðslu- og mannvirkjastjóri. Farið yfir stöðu vinnu við fjárhagsáætlun 2013 í málaflokkum fræðslu- og æskulýðs- og íþróttamála og eigna-, skipulags- og umhverfismálum.

  3. 3. Kaup Fjarðabyggðar á ríkisjörðinni Grænanesi í Norðfirði

    Mál 1008013 Allur ferill málsins

    Bæjarráð samþykkir framlögð drög að kaupsamningi og afsali vegna kaupa Fjarðabyggðar á 1,86 hektara af landspildunni "Eyjan 1" - landnúmer 220532, sem skipt hefur verið út úr upprunajörðinni Grænanesi - landnúmer 158153. Kostnaði kr. 520.000 verður mætt af liðnum 21-69-   Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita samninginn.

  4. 4. Þátttaka í Útilegukortinu sumarið 2013

    Mál 1209185 Allur ferill málsins

    Framlögð tillaga um þátttöku í Útilegukortinu sumarið 2013. Bæjarráð samþykkir þátttöku í kortinu fyrir sitt leyti en vísar endanlegri ákvörðun til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og málinu til kynningar í atvinnu- og menningarnefnd.

  5. 5. Áhrif á landsbyggðina af breytingum á hlutverki Reykjavíkurflugvellar

    Mál 1202077 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar skýrsla KPMG frá 25.september 2012 um áhrif breytinga á hlutverki Reykjavíkurflugvallar á landsbyggðina.

  6. 6. Beiðni um lagfæringar á umferðaöryggismálum við Nesskóla

    Mál 1210050 Allur ferill málsins

    Bréf foreldrafélags Nesskóla frá 18.september er varðar umferðaröryggi við skólann. Bæjarráð tekur undir efni bréfsins og vísar því til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar til frekari umræðu og afgreiðslu í nefndinni.

  7. 7. Sameingarmál fimm lífeyrissjóða

    Mál 1210054 Allur ferill málsins

    Minnisblað Jón G. Kristjánssonar um sameiningu fimm lífeyrissjóða í eina deild innan LSS en Lífeyrissjóður Neskaupstaðar er einn sjóðanna. Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti áframhaldandi vinnu við sameiningu sjóðanna og felur bæjarritara að vinna að málinu áfram.

  8. 8. Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2012

    Mál 1209031 Allur ferill málsins

    Framlögð gögn frá ársfundi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga lögð fram til kynningar.

  9. 9. Nýir íbúar og brottfluttir í Fjarðabyggð

    Mál 1106064 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað móttökufulltrúa nýrra íbúa um íbúaþróun síðustu mánaða lagt fram til kynningar.

  10. 10. Stofnun samtaka sjávarútvegssveitarfélaga

    Mál 1209087 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri fór stuttlega yfir efni stofnfundar samtakanna sem haldinn var nýlega.  Lagt fram lokaeintak af samþykkt samtakanna.

  11. 11. Umsögn um frumvarp til laga um kosningar til Alþingis (aðstoð við atkvæðagreiðslu)180.mál

    Mál 1209189 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar en bæjarráð gerir ekki athugasemdir við frumvarpið.

  12. 12. Ársreikningur 2011 - Samtök svf.á köldum svæðum

    Mál 1210062 Allur ferill málsins

    Ársreikningur samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum lagður fram til kynningar. Á ársfundi samtakanna sem haldinn var 28.september sl. voru m.a. umræður um orkumál og framtíðarstefnu samtakanna.

  13. 13. Fundargerðir stjórnar og framkvæmdaráðs SSA - 2012

    Mál 1201252 Allur ferill málsins

    Fundargerðir stjórnar SSA frá 15.september og 2.október lagðar fram til kynningar

  14. 14. Fundur með þingmönnum Norðausturkjördæmis 2012

    Mál 0910074 Allur ferill málsins

    Formaður fór yfir efni fundar bæjarfulltrúanna Jens Garðars Helgasonar, Eydísar Ásbjörnsdóttur og Guðmundar Þorgrímssonar, sem haldinn var 1.október sl., með sjö þingmönnum Norðausturkjördæmis.

  15. 15. Fundur með fjárlaganefnd 2012

    Mál 1206110 Allur ferill málsins

    Forstöðumanni stjórnsýslu falið að finna heppilegan fundartíma með fjárlaganefnd í gegnum fjarfundabúnað.

  16. 16. Álit samkeppniseftirlitsins nr.1/2012

    Mál 1209172 Allur ferill málsins

    Bréf Samkeppniseftirlitsins frá 25.september þar sem vakin er athygli á fyrsta áliti stofnunarinnar á árinu 2012; "Gæta skal að samkeppnissjónarmiðum við útleigu og sölu húsnæðis á vegum hins opinbera" Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

  17. 17. Fyrirspurn um málstefnu sveitarfélaga skv.130gr.sveitarstjórnarlaga

    Mál 1209165 Allur ferill málsins

    Bréf innanríkisráðuneytisins frá 21.september þar sem spurst er fyrir um hvort sveitarfélög hafi tekið upp málstefnu skv. 130. gr.  nýrra sveitarstjórnarlaga. Ný sveitarstjórnarlög fela í sér fjölmörg ný verkefni fyrir sveitarfélögin, s.d. fjármálareglur, siðareglur, nýjar samþykktir, endurskoðun samninga um samstarfsverkefni, o.fl.   Málstefna hefur ekki fengið sérstakan forgang hjá Fjarðabyggð, umfram öll þau verkefni sem lögin fela í sér, en líkt og önnur verkefni sem vinna þarf í tengslum við hin nýju lög, verður stefnan unnin á næstu misserum. Forstöðumanni stjórnsýslu falið að svara ráðuneyti.

  18. 18. Breytingar á nefndarskipan framsóknarflokks á kjörtímabilinu 2010-2014

    Mál 1210066 Allur ferill málsins

    Hákon Guðröðarson tekur sæti sem varamaður framsóknarflokks í atvinnu- og menningarnefnd í stað Daníels Arasonar sem fluttur er úr sveitarfélaginu.

  19. 19. Breytingar á nefndarskipan sjálfstæðisflokks á kjörtímabilinu 2010-2014

    Mál 1204061 Allur ferill málsins

    Ragnheiður Ingibjörg Elmarsdóttir tekur sæti sem varamaður sjálfstæðisflokks í félagsmálanefnd.

  20. 20. Fundargerðir félagsmálanefndar 2012

    Mál 1201123 Allur ferill málsins

    Fundargerð félagsmálanefndar nr. 34 frá 24.september lögð fram.

  21. 21. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2012

    Mál 1201124 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 26 frá 25. september lögð fram.

  22. 22. Hafnarstjórn - 104

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 104 frá 2.október lögð fram.

  23. 23. Fræðslu- og frístundanefnd - 29

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar nr. 29 frá 3.október lögð fram.