Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2012

Fyrirspurn um málstefnu sveitarfélaga skv.130gr.sveitarstjórnarlaga

Mál 1209165 Fyrst á dagskrá 8. október 2012, síðast 18. október 2012. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2012

    Bæjarráð, fundur 311 liður 17

    Bréf innanríkisráðuneytisins frá 21.september þar sem spurst er fyrir um hvort sveitarfélög hafi tekið upp málstefnu skv. 130. gr.  nýrra sveitarstjórnarlaga. Ný sveitarstjórnarlög fela í sér fjölmörg ný verkefni fyrir sveitarfélögin, s.d. fjármálareglur, siðareglur, nýjar samþykktir, endurskoðun samninga um samstarfsverkefni, o.fl.   Málstefna hefur ekki fengið sérstakan forgang hjá Fjarðabyggð, umfram öll þau verkefni sem lögin fela í sér, en líkt og önnur verkefni sem vinna þarf í tengslum við hin nýju lög, verður stefnan unnin á næstu misserum. Forstöðumanni stjórnsýslu falið að svara ráðuneyti.

  2. Bæjarstjórn, fundur 121 liður 1.17

    Fundargerðin „Bæjarráð - 311“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is