Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 209

24. ágúst 2010, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 76 liður 5

    Til máls tóku ( fundargerðir bæjarráðs teknar til umræðu saman).Fundargerð fram lögð og kynnt.

Dagskrá

  1. 1. Ársfjórðungsleg skil á upplýsingum úr bókahaldi og reikningsskilum sveitarfélaga

    Mál 1008061 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Lagt fram yfirlit úr bókhaldi fyrir tímabilið janúar til júní 2010 sem skilað hefur verið til Hagstofunnar, í samræmi við lög nr. 37/2010.

  2. 2. Umsókn um niðurfellingu fasteignaskatts

    Mál 1008011 Allur ferill málsins

    Bréf frá 26.júlí þar sem farið er fram á niðurfellingu fasteignaskatts á árinu 2009.  Ekkert er í reglum um afslátt af fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega sem heimilar niðurfellingu á fasteignaskatti í tilfelli viðkomandi.  Bæjarráð hafnar beiðni um niðurfellingu fasteignaskatts á árinu 2009 og vísar málinu til félagsþjónustusviðs.

  3. 3. Skóla- og íþróttaakstur á haustönn 2010

    Mál 1007207 Allur ferill málsins

    Lagt fram tilboð Tanna Travel vegna aksturs í VA og íþróttaakstur. Fjármálasvið hefur yfirfarið tilboðið.  Bæjarráð felur fjármálastjóra að ganga frá samningi við Tanna Travel fram til áramóta á grundvelli tilboðs.

  4. 4. Málefni félagsheimila

    Mál 1002136 Allur ferill málsins

    Rætt um málefni félagsheimilanna í Fjarðabyggð.  Bæjarráð árettar óskir um að rekstraraðili Egilsbúðar skili inn greinargerð vegna fyrirkomulags rekstrar á árinu 2010 og ársreikningi fyrir árið 2009 eins og óskað var eftir á fundi bæjarráðs 16.mars 2010.

  5. 5. Lega þjóðvegar eitt á Austfjörðum

    Mál 1008062 Allur ferill málsins

    Bréf Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis frá 9.ágúst þar sem fram kemur að ályktun bæjarráðs vegna legu þjóðvegar eitt verður tekin til meðferðar við endurskoðun samgönguáætlunar.

  6. 6. Sölutilboð vegna Egilsbrautar 9 í Neskaupstað

    Mál 1008074 Allur ferill málsins

    Tilboð Péturs Óskarssonar frá 29.júlí þar sem hann bíður Fjarðabyggð húseign sína að Egilsbraut 9 í Neskaupstað til kaups.  Bæjarráð hafnar tilboðinu.

  7. 7. Lokun póstafgreiðslu á Stöðvarfirði

    Mál 1008068 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Póst og fjarskiptastofnunar (PFS) frá 12.ágúst þar sem tilkynnt er um lokun afgreiðslu Íslandspósts á Stöðvarfirði 1.september nk.  Samkvæmt bréfi PFS frá 12.ágúst 2010, þar sem fram kemur að stofnunin hyggst heimila Íslandspósti lokun útibúsins á Stöðvarfirði, er Fjarðabyggð gefinn frestur til 25.ágúst 2010 til athugasemda vegna fyrirhugaðrar lokunar. Bæjarráð mótmælir harðlega ákvörðun Íslandspósts þar sem lokunin kemur illa við samfélagið á Stöðvarfirði. Nýlega tilkynnti Landsbankinn - NBI hf. að hann hygðist loka útibúi sínu á Stöðvarfirði 1.september nk. þannig að um er að ræða tvö þung högg fyrir þetta litla byggðarlag sem á þegar undir högg að sækja vegna þess að fiskvinnsla hefur lagst af.  Umsögn sveitarstjórnar til PFS felur í sér þau eindregnu tilmæli að fallið verði frá lokun póstafgreiðslu Íslandspósts á Stöðvarfirði. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

  8. 8. Lokun Landsbankans á Stöðvarfirði

    Mál 1008096 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Steinþórs Pálssonar bankastjóra Landsbankans frá 24.ágúst er varðar lokun útibús bankans á Stöðvarfirði.

  9. 9. Samvinna vinabæja Fjarðabyggðar

    Mál 1002098 Allur ferill málsins

    Stavanger einn af vinabæjum Fjarðabyggðar hefur ákveðið að taka ekki þátt í fyrirhuguðum vinabæjarfundi í október.  Bæjarráð felur bæjarstýru að kalla eftir afstöðu annarra vinabæja til þess hvort halda eigi fundinn í Fjarðabyggð í október.

  10. 10. Starfsdagar í leikskólum Fjarðabyggðar

    Mál 1008004 Allur ferill málsins

    Fræðslustjóri sat þennan lið fundarins. Til umfjöllunar er tillaga fræðslustjóra frá 4.ágúst um fjölgun starfsdaga á leikskólum úr þremur í fjóra.  Lagt fram minnisblað fræðslustjóra með samanburði milli nokkurra sveitarfélaga á fjölda þeirra daga þar sem leikskólum er lokað vegna skipulagsdaga, námskeiðsdaga eða vegna annarra verkefna.  Bæjarráð samþykkir að fjölga starfsdögum í fjóra á meðan á innleiðingu uppeldisstefnu stendur. Fræðslustjóra, í samráði við leikskólastjóra, falin útfærsla þannig að sem best verði komið til móts við þarfir foreldra.

  11. 11. Óskað eftir umsögn um stofnun lögbýlis að Krossstekk í Mjóafirði

    Mál 1008035 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar bréf Nönnu Gunnarsdóttur frá 4.ágúst um stofnun lögbýlis að Krossstekk í Mjóafirði. Á fundi Eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar 23.ágúst var ekki gerð athugasemd við stofnun lögbýlisins en gerður fyrirvari um skyldur sveitarfélagsins um þjónustu.

  12. 12. Aðalfundur Sparisjóðs Norðfjarðar 31. ágúst kl. 20:00

    Mál 1008067 Allur ferill málsins

    Lagt fram fundarboð vegna aðalfundar Sparisjóðs Norðfjarðar sem haldinn verður 31.ágúst kl.20:00 í sal Nesskóla.  Bæjarráð sækir fundinn og mun formaður bæjarráðs fara með atkvæði bæjarins. Fjarðabyggð mun tilnefna einn stjórnarmann og einn til vara.

  13. 13. Þátttaka í Útsvari

    Mál 1008090 Allur ferill málsins

    Bæjarráð felur forstöðumanni stjórnsýslu að tilkynna RÚV um skipan í lið Fjarðabyggðar vegna þátttöku í spurningakeppninni Útsvari í sjónvarpinu í vetur.

  14. 14. Fundur með formanni Sambands íslenskra sveitarfélaga

    Mál 1008084 Allur ferill málsins

    Ósk Halldórs Halldórssonar formanns sambandsins um fund með bæjarráði.  Forstöðumanni falið að ákveða fundartíma í samráði við Halldór.

  15. 15. Viðvera móttökufulltrúa og upplýsingafulltrúa í þjónustugáttum

    Mál 1008098 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað móttökufulltrúa og upplýsingafulltrúa frá 23.ágúst er varðar viðveru þeirra í þjónustugáttum bókasafnanna.

  16. 16. Aðalfundur 2010 - Fjarðaferðir

    Mál 1008101 Allur ferill málsins

    Aðalfundur Fjarðaferða verður haldinn laugardaginn 28.ágúst 2010 kl.10:00 í Safni Jósafats Hinrikssonar í Safnahúsinu í Neskaupstað.  Forseti bæjarstjórnar fer með atkvæði bæjarins á fundinum.

  17. 17. Dagvist aldraðra á Reyðarfirði í ágúst 2010

    Mál 1008100 Allur ferill málsins

    Hugmyndir Hallfríðar Bjarnadóttur um dagvist aldraðra á Reyðarfirði.  Vísað til félagsþjónustusviðs til afgreiðslu.

  18. 18. Heimsókn Hornfirðinga til Fjarðabyggðar

    Mál 1008099 Allur ferill málsins

    Starfsfólk Ráðhúss Hornafjarðar verður á ferðinni í Fjarðabyggð í september.  Vísað til bæjarstýru til undirbúnings.

  19. 19. Franski spítalinn við Hafnarnes

    Mál 0910066 Allur ferill málsins

    Bæjarráð staðfestir framlagt samkomulag við landeiganda um umferðarrétt um jörðina Melbrún-Hafnarnes.

  20. 20. Mengunarslys í fiskimjölsverksmiðju Eskju.

    Mál 1007173 Allur ferill málsins

    Jens Garðar vék af fundi undir þessum lið. Framlögð greinargerð Heilbrigðiseftirlits Austurlands vegna mengunarslyss í fiskimjölsverksmiðju Eskju á Eskifirði.

  21. 21. Fræðslu- og frístundanefnd - 1

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð lögð fram.