Fundur með formanni Sambands íslenskra sveitarfélaga
Mál 1008084 Fyrst á dagskrá 24. ágúst 2010, síðast 14. september 2010. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2010
Bæjarráð, fundur 209 liður 14
Ósk Halldórs Halldórssonar formanns sambandsins um fund með bæjarráði. Forstöðumanni falið að ákveða fundartíma í samráði við Halldór.
-
Bæjarstjórn, fundur 76 liður 5.14
Fundargerðin „Bæjarráð - 209“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 212 liður 1
Halldór Halldórson formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga sat þennan lið fundarins. Halldór kynnti starfsemi sambandsins og fór yfir ýmislegt er snýr að hlutverki þess, hlutverki sveitarfélaga og sveitarstjórnarmanna, skipulag sambandsins og helstu verkefni. Halldór ræddi einnig um væntanlega yfirfærslu á málefnum fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga og fór yfir fjármálaleg samskipti ríkis og sveitarfélaga.