Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2010

Starfsdagar í leikskólum Fjarðabyggðar

Mál 1008004 Fyrst á dagskrá 17. ágúst 2010, síðast 2. september 2010. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Skólar og fræðsla

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2010

    Bæjarráð, fundur 207 liður 6

    Tillaga fræðslustjóra frá 4.ágúst um fjölgun starfsdaga á leikskólum Fjarðabyggðar, úr þremur í fjóra, sem vísað var til bæjarráðs frá fræðslu- og frístundanefnd.  Bæjarráð frestar umræðu um málið til næsta fundar, óskar eftir að fræðslustjóri komi inn á næsta fund bæjarráðs og óskar einnig eftir samanburði við önnur sveitarfélög vegna fjölda starfsdaga á leikskólum.

  2. Bæjarráð, fundur 209 liður 10

    Fræðslustjóri sat þennan lið fundarins. Til umfjöllunar er tillaga fræðslustjóra frá 4.ágúst um fjölgun starfsdaga á leikskólum úr þremur í fjóra.  Lagt fram minnisblað fræðslustjóra með samanburði milli nokkurra sveitarfélaga á fjölda þeirra daga þar sem leikskólum er lokað vegna skipulagsdaga, námskeiðsdaga eða vegna annarra verkefna.  Bæjarráð samþykkir að fjölga starfsdögum í fjóra á meðan á innleiðingu uppeldisstefnu stendur. Fræðslustjóra, í samráði við leikskólastjóra, falin útfærsla þannig að sem best verði komið til móts við þarfir foreldra.

  3. Bæjarstjórn, fundur 76 liður 3.6

    Fundargerðin „Bæjarráð - 207“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  4. Bæjarstjórn, fundur 76 liður 5.10

    Fundargerðin „Bæjarráð - 209“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is