Lokun póstafgreiðslu á Stöðvarfirði
Mál 1008068 Fyrst á dagskrá 24. ágúst 2010, síðast 16. september 2010. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Stöðvarfjörður
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2010
Bæjarráð, fundur 209 liður 7
Framlagt bréf Póst og fjarskiptastofnunar (PFS) frá 12.ágúst þar sem tilkynnt er um lokun afgreiðslu Íslandspósts á Stöðvarfirði 1.september nk. Samkvæmt bréfi PFS frá 12.ágúst 2010, þar sem fram kemur að stofnunin hyggst heimila Íslandspósti lokun útibúsins á Stöðvarfirði, er Fjarðabyggð gefinn frestur til 25.ágúst 2010 til athugasemda vegna fyrirhugaðrar lokunar. Bæjarráð mótmælir harðlega ákvörðun Íslandspósts þar sem lokunin kemur illa við samfélagið á Stöðvarfirði. Nýlega tilkynnti Landsbankinn - NBI hf. að hann hygðist loka útibúi sínu á Stöðvarfirði 1.september nk. þannig að um er að ræða tvö þung högg fyrir þetta litla byggðarlag sem á þegar undir högg að sækja vegna þess að fiskvinnsla hefur lagst af. Umsögn sveitarstjórnar til PFS felur í sér þau eindregnu tilmæli að fallið verði frá lokun póstafgreiðslu Íslandspósts á Stöðvarfirði. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
-
Bæjarstjórn, fundur 76 liður 5.7
Fundargerðin „Bæjarráð - 209“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 211 liður 8
Bréf Íslandspósts frá 2.september er varðar lokun póstafgreiðslu á Stöðvarfirði.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />Bæjarstýra gerði grein fyrir að Íslandspóstur sé tilbúinn í viðræður og að skoða alla möguleika með bænum þótt ekki verði haldið uppi póstafgreiðslu með óbreyttu sniði. Bæjarráð fagnar góðum undirtektum Íslandspósts og mun kalla til formlegra viðræðna við fyrirtækið síðar á árinu.
-
Bæjarstjórn, fundur 77 liður 1.8
Fundargerðin „Bæjarráð - 211“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.