Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 261

3. október 2011, kl. 08:30 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Dagskrá

  1. 1. Starfshópur um almenningssamgöngur

    Mál 1101197 Allur ferill málsins

    Framlögð tillaga mannvirkjastjóra frá 30.september. Bæjarráð samþykkir að sækja um yfirtöku á sérleyfisakstri í Fjarðabyggð til Sambands sveitarfélaga á Austurlandi ( SSA ), en SSA er að taka yfir verkefnið frá Vegagerðinni um næstu áramót. Forsenda fyrir yfirtöku er að a.m.k. sama fjármagn fylgi með og fylgir sérleyfinu í dag. Einnig samþykkir bæjarráð að allir samningar Fjarðabyggðar við akstursaðila verði framlengdir um 6 mánuði eða til 30. júní 2012. Þeir samningar sem um ræðir eru íþróttaakstur, skólaakstur í VA og samningur um sérleyfið.

  2. 2. Nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði

    Mál 0903017 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar umsögn Framkvæmdasýslu ríkisins frá 28.september vegna áætlunargerðar fyrir nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði. Einnig lagðar fram áætlaðar dagsetningar í tengslum við útboðið.

  3. 3. Vélsmiðjan á Eyrinni í Neskaupstað

    Mál 1109181 Allur ferill málsins

    Bréf Menningarfjelagsins ehf. til bæjarráðs frá 20.september er varðar uppbyggingu á Eyrargötu 7 ( Vélsmiðjan á Eyrinni ) og Nesgötu 21a ( Gamla Lúðvíkshúsið ) í Neskaupstað. Vísað til félagsmálanefndar og fræðslu- og frístundanefndar með það í huga að leiða saman tómstundastarf ungmenna og eldri borgara í Vélsmiðjunni. Bæjarstjóra og stjórnsýslustjóra falið að vinna málið áfram.

  4. 4. Fjármál sveitarfélaga

    Mál 1109183 Allur ferill málsins

    Bréf Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga frá 21.september, stílað á sveitarfélögin í landinu, lagt fram til kynningar og vísað til fjármálastjóra.

  5. 5. Menningarmiðstöðvar á Austurlandi - viljayfirlýsing vegna samstarfs

    Mál 1105146 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar viljayfirlýsing Fjarðabyggðar, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar, við mennta- og menningarmálaráðuneytið, er undirrituð var á Hallormsstað 30.september. Áður á dagskrá bæjarráðs 26.júlí.

  6. 6. Aðalfundur Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2011

    Mál 1104043 Allur ferill málsins

    Mannvirkjastjóra falið að vera fulltrúi Fjarðabyggðar á aðalfundi HAUST sem haldinn verður 28.október kl. 13:30 á Hótel Bláfelli Breiðdalsvík.

  7. 7. Drög að frumvarpi nýrra sveitarstjórnarlaga

    Mál 1101139 Allur ferill málsins

    Minnisblað sviðsstjóra lögfræðisviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 19.september vegna breytinga á sveitarstjórnarlögum en ný lög taka gildi 1.janúar 2012. Stjórnsýslustjóra falið að undirbúa breytingar á samþykktum sveitarfélagins.  Einnig vísað til kynningar hjá sviðsstjórum og í fastanefndum.

  8. 8. Auglýsing um umhverfismat á tillögu samgönguráðs að samgönguáætlun 2011-2022

    Mál 1109222 Allur ferill málsins

    Umsagnarfrestur við umhverfismat samgönguáætlunar er til og með 4.nóvember.  Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

  9. 9. Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2011

    Mál 1109227 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri og fjármálastjóri munu sækja fjármálaráðstefnu sveitarfélaga sem haldin verður á Hilton Reykjavík Nordica 13. og 14.október nk.

  10. 10. Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2011

    Mál 1109160 Allur ferill málsins

    Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga verður haldinn 12.október í Reykjavík. Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri og fjármálastjóri sæki fundinn.

  11. 11. Uppgjör á framlagi vegna lækkaðra fasteignaskattstekna 2011

    Mál 1109049 Allur ferill málsins

    Minnisblað fjármálastjóra frá 30.september lagt fram en í því kemur fram að vegna lækkaðra fasteignaskattstekna 2011 verður framlag til Fjarðabyggðar úr jöfnunarsjóði lítilega hærra en gert var ráð fyrir í áætlun ársins.

  12. 12. Styrkbeiðni 2012 frá Golfklúbbi Fjarðabyggðar

    Mál 1109252 Allur ferill málsins

    Bréf Golfklúbbs Fjarðabyggðar frá 29.september þar sem sótt er um uppbyggingarstyrk til næstu þriggja ára.  Vísað til skoðunar og umfjöllunar í fræðslu- og frístundanefnd vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2012.

  13. 13. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2011

    Mál 1101153 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 16 frá 20.september lögð fram.

  14. 14. Atvinnu- og menningarnefnd - 18

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar nr. 18 frá 29.september lögð fram.

  15. 15. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 27

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 27 frá 26.september lögð fram.