Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 260

19. september 2011, kl. 08:30 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Dagskrá

  1. 1. Uppgjör vegna útgöngu Skeggjastaðahrepps og Hornafjarðar úr SSA

    Mál 1109061 Allur ferill málsins

    Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur fjallað um erindi Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) vegna uppgjörs við Skeggjastaðahrepp og sveitarfélagið Hornafjörð vegna úrgöngu þeirra úr SSA. Í uppgjörinu kemur fram að bæði sveitarfélögin greiða SSA hlutfallslega miðað við íbúafjölda í lok útgönguárs að teknu tilliti til peningalegra eigna, annars vegar og skulda og reiknaðra skuldbindinga hins vegar. Heildarfjárhæðin sem kemur til greiðslu samkvæmt samkomulaginu er kr. 3.907.939.-  Reiknaðar lífeyrisskuldbindingar SSA í árslok 2010 eru um 52 m. kr. og peningalegar eignir eru um 30 m. kr. Aðildarfélög SSA bera hlutfallslega bakábyrgð á skuldum SSA.  Bæjarráð samþykkir uppgjörið fyrir sitt leyti og felur bæjarstjóra að undirrita samkomulag þar að lútandi.

  2. 2. Lögfræðikostnaður 2010-2011

    Mál 1109091 Allur ferill málsins

    <DIV><DIV>Framlagt minnisblað fjármálastjóra frá 12.september, vegna óformlegrar fyrirspurnar Elvars Jónssonar, er varðar lögfræðikostnað á árunum 2010 og 2011.  Kostnaður á árinu 2010 var um 3,5 m.kr. og er um 1,4 m.kr. það sem af er árinu 2011. </DIV></DIV>

  3. 3. Fundargerðir Þróunarfélags Austurlands 2011

    Mál 1105180 Allur ferill málsins

    Fundargerð frá 1.september 2011 lögð fram til kynningar

  4. 4. Fundargerðir stjórnar og framkvæmdaráðs SSA - 2011

    Mál 1107058 Allur ferill málsins

    Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar SSA frá 6.september og 9.september og fundargerð framkvæmdaráðs SSA frá 9.september.

  5. 5. Lausagangur fjár á Eskifirði

    Mál 1109107 Allur ferill málsins

    Fyrirspurn Árna Helgasonar er varðar lausagöngu fjár á Eskifirði. Vísað til landbúnaðarnefndar og eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar með ósk um að unnin verði kostnaðaráætlun um fjárgirðingar í þéttbýli í Fjarðabyggð. Bæjarráð óskar einnig eftir upplýsingum frá mannvirkjasviði um hvað líði vinnu við flutning sauðfjárveikivarnarlínu. Mannvirkjastjóra falið að svara fyrirspurn Árna.

  6. 6. Málþing - Sjálfbær sveitarfélög - 13.október n.k.

    Mál 1109110 Allur ferill málsins

    Upplýsingar um málþing um sjálfbær sveitarfélög er haldið verður á Selfossi 13.október.  Bæjarstjóra falið að senda fulltrúa á málþingið.

  7. 7. Starfshópur um almenningssamgöngur á Austurlandi 2011

    Mál 1106107 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar fundargerð frá fundi sem haldinn var nýlega vegna flutnings á sérleyfi til landshlutasamtaka um næstu áramót.

  8. 8. Aðgerðaráætlun sveitarfélaga um aðgerðir gegn ofbeldi gegn konum

    Mál 1109116 Allur ferill málsins

    Bréf velferðarráðuneytisins frá 9.september er varðar gerð aðgerðaáætlana um aðgerðir gegn ofbeldi gegn konum. Vísað til félagsmálanefndar.

  9. 9. Styrkur til KFF 2012

    Mál 1109142 Allur ferill málsins

    Beiðni Knattspyrnufélags Fjarðabyggðar um fyrirframgreiðslu á styrk vegna ársins 2012 vegna mikils ferðakostnaðar á nýafstöðnu keppnistímabili.  Fyrir liggur kostnaðaráætlun vegna ársins 2012. Bæjarráð samþykkir beiðni og vísar beiðni til afgreiðslu bæjarstjóra.

  10. 10. Beiðni um lóð undir atvinnustarfsemi

    Mál 1109015 Allur ferill málsins

    Bréf ALUCAB ehf. frá 16.september en í bréfinu er sótt um lóðina nr. 14 við Mjóeyrarhöfn.  Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar með beiðni um umsögn til bæjarráðs.

  11. 11. Umsókn um undirbúning og framkvæmd 2. landsmóts UMFÍ 50

    Mál 1107099 Allur ferill málsins

    Bréf UMFÍ frá 14.september þar sem Fjarðabyggð og UÍA er boðið að fylgja eftir og kynna, á stjórnarfundi UMFÍ 26.september nk., umsókn um landsmót 50 ára og eldri.  Bæjarráð felur fræðslustjóra og bæjarstjóra að sækja fundinn.

  12. 12. Sameining Austfirskra stoðstofnana (AST) - fundargerðir og skýrsla

    Mál 1104003 Allur ferill málsins

    Fundargerð um sameiningu Austfirskra stoðstofnana nr. 6 frá 13.september lögð fram til kynningar.

  13. 13. Fjármál 2011

    Mál 1108048 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins og fór yfir rekstur og stöðu vegna fyrstu sex mánaða ársins 2011 vegna beiðni Eftirlitsnefndar um fjármál sveitarfélaga.

  14. 14. Fundargerðir félagsmálanefndar 2011

    Mál 1101152 Allur ferill málsins

    Fundargerð félagsmálanefndar nr. 19 frá 12.september lögð fram.

  15. 15. Hafnarstjórn - 88

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar nr.88 frá 13.september lögð fram.

  16. 16. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 26

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr.26 frá 12.september lögð fram.