Hafnarstjórn, fundur 88
13. september 2011, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 260 liður 15
Fundargerð hafnarstjórnar nr.88 frá 13.september lögð fram.
Dagskrá
-
1. Undirbúningsvinna vegna komu skemmtiferðaskipa
Mál 1005131 Allur ferill málsins
Fyrir fundinum lá minnisblað frá ferða og menningamálafulltrúa dags. 6. september 2011 um stöðu undirbúnings fyrir komu skemmtiferðaskipa. Kynnt.
-
2. Fundagerðir CI á árinu 2011
Mál 1102034 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Cruise Iceland frá 18. ágúst 2011. Kynnt.
-
3. Hafnarsjóður - akstursvarnir
Mál 1108115 Allur ferill málsins
Kynnt tilboð sem bárust í gerð akstursvarna fyrir Fjarðabyggðarhafnir. Gengið var til samninga við lægstbjóðanda. Hafnarstjórn samþykkti að ganga til samninga við lægstbjóðanda.
-
4. Fyrirspurn um umhverfismál á Reyðarfirði
Mál 1106170 Allur ferill málsins
Bréf frá eigna-skipulags og umhverfisnefnd 5. september 2011, til lóðarhafa við Ægisgötu á Reyðarfirði, þar sem lóðarhafar eru hvattir til úrbóta á lóðum sínum. Kynnt.
-
5. Framkvæmdir við bæjarbryggju á Norðfirði
Mál 0905163 Allur ferill málsins
Farið yfir hugmyndir að endurnýjun bryggjunnar. Hafnarstjórn leggur til að farið verði eftir hugmynd 3 og fengin verði útfærsla á aðstöðu fyrir flotbryggju austan á bryggjunni.
-
6. Dýpkun smábátahafnar Eskifirði
Mál 1109018 Allur ferill málsins
Kynnt drög að gögnum vegna dýpkunar smábátahafnar á Eskifirði. Rætt um umfang verksins, verktíma og fjármögnun. Hafnarstjórn samþykkir að bjóða verkið út og það verði fjármagnað af liðnum grjótvarnir óstaðsett.
-
7. Smábátahöfn Eskifirði
Mál 0910146 Allur ferill málsins
Kynnt drög nr. 2 að umhverfi smábátahafnarinnar á Eskfirði. Hafnarstjórn lýst vel á hugmyndina en gerði nokkrar athugsemdir sem þarf að skoða betur.