Hafnarstjórn, fundur 87
30. ágúst 2011, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 258 liður 17
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 87 frá 30.ágúst lögð fram.
Bæjarstjórn, fundur 98 liður 5
Enginn tók til máls. Fundargerð hafnarstjórnar nr. 87 frá 30.ágúst 2011 staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fiskmarkaður Austurlands
Mál 1105147 Allur ferill málsins
Niðurstöður athugunar um sölu hluta hafnarsjóðs í Fiskmarkaði Austurlands. Kynnt.
-
2. Gerð skýrslu um áhrif í Fjarðabyggð vegna tillagna að breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu.
Mál 1106101 Allur ferill málsins
Kynnt skýrsla KPMG um áhrif breytinga á fiskveiðistjórnunarkerfinu ásamt umsögn bæjarráðs.
-
3. Hafnafundur 16. september 2011
Mál 1108022 Allur ferill málsins
Erindi frá Hafnasambandi Íslands þar sem kynnt er að hafnafundur verði haldinn 16. september 2011 í Reykjavík. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að vera fulltrúi á fundinum og heimilar honum að taka með sér fulltrúa starfsmanna hafnarinnar.
-
4. Innleiðing á tilskipun 2005/65/EB hjá Fjarðabyggðarhöfnum
Mál 1105121 Allur ferill málsins
Kynntur fyrirhugaðaður fundur vegna innleiðingar reglna EB um hafnarvernd sem halda á fimmtudaginn 15. september nk. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að vera fulltrúi á fundinum og heimilar honum að taka með sér fulltrúa starfsmanna hafnarinnar.
-
5. Beiðni um skammtímaleigu á lóð á Hrauni
Mál 1108077 Allur ferill málsins
Beiðni dags. 17. ágúst 2011 frá Tandrabergi ehf. um skammtímaleigu á lóð á Hrauni til geymslu á malarefni. Spurt er um lóð nr. 6 innan við Vélaborg. Hafnarstjórn hafnar beiðni um afnot af lóð nr. 6 en heimilar geymslu efnis á neðra svæði í samráði við framkvæmdastjóra hafnarinnar.
-
6. Smábátahöfn Reyðarfirði
Mál 1001100 Allur ferill málsins
Farið yfir ný drög að útliti umhverfis smábátahafnarinnar á Reyðarfirði. Hafnarstjórn var ánægð með framkomna tillögu og samþykkti hana fyrir sitt leiti og vísar henni til kynningar í umhverfis og skipulagsnefnd.
-
7. Smábátahöfn Eskifirði
Mál 0910146 Allur ferill málsins
Kynnt frumdrög að frágangi umhverfis smábátahafnarinnar á Eskfirði. Hafnarstjórn fór yfir fyrir liggjandi drög að teikningum og kom með athugasemdir til að vinna með áfram.
-
8. Fjárhagsáætlun 2012 - Hafnarnefnd
Mál 1108058 Allur ferill málsins
Kynnt staða rekstrar miðað við áætlun 2012. Farið yfir tímaáætlun og vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2012 sem er að hefjast. Einnig farið yfir stöðuna fyrstu 6 mánuði ársins.