Bæjarráð, fundur 258
5. september 2011, kl. 08:30 til 11:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 98 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs nr. 258 og 259 teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />Til máls tóku Jens Garðar Helgason, Elvar Jónsson, Guðmundur Þorgrímsson, Jón Björn Hákonarson og Óskar Þór Hallgrímsson.Fundargerð bæjarráðs nr. 258 frá 5.september staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Starfshópur um almenningssamgöngur
Mál 1101197 Allur ferill málsins
Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins. Bæjarráð samþykkir að vegna innleiðingar á skipulögðum almenningssamgöngum í Fjarðabyggð verði óskað eftir því að Alcoa-Fjarðaál opni starfsmannaakstur fyrir almenningi og hann falli undir sömu skilyrði og annar skipulagður akstur Fjarðabyggðar. Jafnframt verði óskað eftir að Alcoa-Fjarðaál komi að kostnaði við uppsetningu á biðskýli í Fjarðabyggð, í heildina 10 skýlum. Að fengnu samþykki Alcoa-Fjarðaáls verði eftirfarandi framkvæmt:<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />...að núverandi leiðarkerfi Fjarðabyggðar verði opnað almenningi....að Fjarðabyggð taki að sér umsýslu og innheimtu vegna sölu korta fyrir skipulagðar samgöngur, sölu til verktaka, almennings og námsmanna 16 ára og eldri. Ungmenni 16 ára og yngri fá frítt í rútur. ...að Fjarðabyggð sjái um kynningarmál í samvinnu við Þróunarfélag Austurlands og um upplýsingagjöf til notenda, samhæfingu og skipulagningu ferða, með heimasíðu og skiptiborði.Stefnt er að því að allar tillögur komi til framkvæmda 1. október 2011. Bæjarráð samþykkir jafnframt að leggja fram samtals 10 milljónir, á næstu þremur árum, í gerð allt að 10 biðskýla í samvinnu við Alcoa-Fjarðaál.
-
2. Auglýst eftir umsókn um undirbúning og framkvæmd 2. landsmóts UMFÍ 50
Mál 1107099 Allur ferill málsins
Málið áður á dagskrá fundar 29.ágúst. Lögð fram til kynningar umsókn UÍA og Fjarðabyggðar um að halda annað landsmót UMFÍ fyrir 50 ára og eldri í Neskaupstað árið 2012.
-
3. Byggðakvóti fiskveiðiársins 2010-2011
Mál 1009212 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar bréf sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins frá 24.ágúst er varðar frest til að veiða byggðakvóta. Ráðuneytið fellst á að fiskiskip sem hafa loforð um byggðakvóta Stöðvarfjarðar geti haldið byggðakvótaloforði sínu af byggðakvóta fiskveiðiársins 2010/2011 til 1.desember 2011, en sá hluti loforðsins sem inniheldur byggðakvóta fiskveiðiársins 2009/2010 og ekki hefur tekist að nýta féll niður þann 31.ágúst þar sem ráðuneytið getur ekki flutt þann kvóta yfir önnur fiskveiðiáramót. Byggðakvótaloforð fiskiskipa í Mjóafirði verða ekki framlengd, þar sem úrskurður í kærumálum hafði ekki sömu áhrif til dráttar þar.
-
4. Vinna við sóknaráætlun 20/20 - Verkefnin 5 - 7
Mál 1108028 Allur ferill málsins
Mál áður á dagskrá fundar 29.ágúst. Tillögur frá Fjarðabyggð er varða sóknaráætlun 20/20 lagðar fram til kynningar.
-
5. Málefni eldri og hjálparþurfi einstaklinga sem búa í Neskaupstað
Mál 1108138 Allur ferill málsins
Bréf Friðnýjar Helgu Þorláksdóttur frá 26.ágúst. Bæjarráð tekur vel í erindið og vísar því til félagsmálanefndar og bæjarstjóra til frekari úrvinnslu í tengslum við öldrunarmál í Fjarðabyggð.
-
6. Fundargerð stjórnar SSA
Mál 1107058 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar SSA frá 25.ágúst lögð fram til kynningar.
-
7. Uppbygging á svæði Skotíþróttafélagi Dreka
Mál 1109010 Allur ferill málsins
Bréf formanns skotíþróttafélagsins Dreka frá 1.september er varðar uppbyggingu á vegum félagsins. Vísað til fræðslu- og frístundanefndar og mannvirkjanefndar í tengslum við vinnu við fjárhagsáætlun 2012.
-
8. Ástand golfvallarmannvirkja á Eskifirði
Mál 1109011 Allur ferill málsins
Athugasemdir Jóns Baldurssonar vegna ástands golfvallarins á Eskifirði. Jón telur völlinn í slæmu ásigkomulagi og að umhirðu hans sé ábótavant. Jafnframt óskar Jón eftir að samningi við Golfklúbbinn Byggðaholt verði rift og Fjarðabyggð taki við rekstri vallarins. Bæjarráð er sammála um að samningi við Golfklúbbinn Byggðaholt verði ekki rift enda er almenna reglan sú að Fjarðabyggð taki ekki yfir rekstur íþróttavalla og mannvirkja af frjálsum félagasamtökum.
-
9. Þátttaka í Útsvari
Mál 1008090 Allur ferill málsins
Keppendur Fjarðabyggðar í Útsvari Ríkissjónvarpsins í vetur verða þau Ingibjörg Þórðardóttir, Jón Svanur Jóhannsson og Kjartan Bragi Valgeirsson. Vísað til kynningar í atvinnu- og menningarnefnd.
-
10. Heimsókn til Gravelines september 2011
Mál 1108137 Allur ferill málsins
Bæjarráð samþykkir að Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri, Jón Björn Hákonarson forseti bæjarstjórnar og Hafþór Eide Hafþórsson verði fulltrúar á Íslandshátíðinni í Gravelines 23. - 25.september.
-
11. Hópslysaæfing 17.september 2011 í Fjarðabyggð
Mál 1109017 Allur ferill málsins
Framlagðar upplýsingar um hópslysaæfingu sem haldin verður 17.september nk. Bæjarráð samþykkir að veita allt að kr. 500.000, af liðnum óráðstafað, vegna beins kostnaðar við æfinguna.
-
12. Stjórnskipulag Fjarðabyggðar
Mál 1109020 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri fór yfir tillögur og vinnulag vegna skoðunar á stjórnskipulagi Fjarðabyggðar. Kostnaður verður tekinn af liðnum óráðstafað.
-
13. Fundur með stjórn Ofanflóðasjóðs þann 12.október
Mál 1108185 Allur ferill málsins
Fundur sveitarfélaga, þar sem byggð hafa verið varnarvirki gegn snjóflóðum og skriðuföllum, og Ofanflóðasjóðs verður haldinn 12.október í Reykjavík. Bæjarstjóri og mannvirkjastjóri munu sækja fundinn.
-
14. Fjárhagsáætlun 2012
Mál 1108029 Allur ferill málsins
Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins og fór yfir fjárstreymisáætlun og tillögu að úthlutun fjárhagsramma fyrir 2012. Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu að úthlutun fjárhagsramma og felur bæjarstjóra og fjármálastjóra að ganga frá bréfi til nefnda vegna úthlutnar á fjárhagsrömmum.
-
15. Breyting á setu í félagsmálanefnd og barnaverndarnefnd
Mál 1012105 Allur ferill málsins
Dagbjört Lára Ottósdóttir Fjarðalista hefur tekið aftur sæti sem aðalmaður í barnaverndarnefnd og varamaður í félagsmálanefnd. Eydís Ásbjörnsdóttir verður varamaður í barnaverndarnefnd en Esther Hermannsdóttir hættir sem varamaður í nefndinni. Ásbjörn Guðjónsson hættir sem varamaður í félagsmálanefnd.
-
16. Fundargerðir félagsmálanefndar 2011
Mál 1101152 Allur ferill málsins
Fundargerð nr. 18 frá 30.ágúst lögð fram.
-
17. Hafnarstjórn - 87
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 87 frá 30.ágúst lögð fram.