Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2011

Breytingar á stjórnskipulagi Fjarðabyggðar.

Mál 1109020 Fyrst á dagskrá 5. september 2011, síðast 15. desember 2011. 7 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Skipulag

Í hnotskurn

Málið fjallar um skoðun á stjórnsýslu Fjarðabyggðar sem bæjarráð vann í umboði bæjarstjórnar sem stjórnkerfisnefnd, ásamt tillögum að nýju skipulagi stjórnsýslunnar6. Bæjarstjórn samþykkti tillögurnar með 9 atkvæðum á fundi 15. desember 20116.

Staðan

Bæjarstjórn samþykkti nýtt skipulag með 9 atkvæðum, meðal annars um nýtt fjölskyldusvið með fræðslustjóra og félagsmálastjóra, að slökkviliðið verði stofnun undir framkvæmdasviði, að stoðsviðin verði stjórnsýslu- og þjónustusvið og fjármálasvið og að starf upplýsingafulltrúa færist til stjórnsýslu- og þjónustusviðs6.

Gervigreind skrifaði þetta yfirlit upp úr fundargerðum og upptökum. Hver tala vísar í færslu í ferlinum hér fyrir neðan. Þar er heimildin sjálf. Svona er yfirlitið unnið.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2011

    Bæjarráð, fundur 258 liður 12

    Stjórnskipulag Fjarðabyggðar

    Bæjarstjóri fór yfir tillögur og vinnulag við skoðun á stjórnskipulaginu, og kostnaður verður tekinn af liðnum óráðstafað.

    Endursögn gervigreindar

    Bæjarstjóri fór yfir tillögur og vinnulag vegna skoðunar á stjórnskipulagi Fjarðabyggðar. Kostnaður verður tekinn af liðnum óráðstafað.

  2. Bæjarstjórn, fundur 98 liður 1.12

    Fundargerðin „Bæjarráð - 258“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Stjórnskipulag Fjarðabyggðar

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Bæjarráð, fundur 269 liður 10

    Stjórnskipulag Fjarðabyggðar

    Bæjarráð fór yfir vinnu við stjórnskipulag Fjarðabyggðar.

    Endursögn gervigreindar

    Bæjarráð fór yfir vinnu við stjórnskipulag Fjarðabyggðar.

  4. Bæjarstjórn, fundur 103 liður 5.10

    Fundargerðin „Bæjarráð - 269“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Stjórnskipulag Fjarðabyggðar

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  5. Bæjarráð, fundur 271 liður 12

    Stjórnskipulag Fjarðabyggðar

    Mannauðsstjóri vék af fundi meðan liðurinn var til umfjöllunar, lagt var fram minnisblað frá Capacent ráðgjöf og bæjarráð vísaði tillögum sínum með greinargerð til bæjarstjórnar.

    Endursögn gervigreindar

    Mannauðsstjóri vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu dagskrárliðar.Bæjarstjóri tók við ritun fundar. Farið yfir og ræddar tillögur bæjarráðs sem stjórnkerfisnefndar til bæjarstjórnar er varðar breytingar á skipulagi stjórnsýslu Fjarðabyggðar.  Lögð var fram á fundinum minnisblað Capacent ráðgjafar er varðar tillögur að breytingum á stjórnskipulagi Fjarðabyggðar.  Bæjarráð vísar tillögum með greinargerð til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarstjórnar.

  6. Bæjarstjórn, fundur 104 liður 9

    Bæjarstjóri kynnti tillögurnar með greinargerð, Jón Björn Hákonarson tók til máls og bæjarstjórn samþykkti tillögurnar með 9 atkvæðum.

    Endursögn gervigreindar

    Bæjarstjóri fylgdi úr hlaði breytingum á stjórnskipulagi Fjarðabyggðar með greinargerð.Til máls tóku:  Jón Björn Hákonarson. Bókun bæjarstjórnar Lögð fram tillaga bæjarráðs í greinagerð um nýtt skipulag stjórnsýslu Fjarðabyggðar. Bæjarráð hefur í umboði bæjarstjórnar sem stjórnkerfisnefnd unnið að skoðun stjórnsýslunnar og komið fram með tillögur að nýju skipulagi stjórnsýslu ásamt tillögum að skilgreiningum starfa er breytingunni tengjast. Að megin efni leggur bæjarráð til að starfsemi sveitar­félagsins verði skipt í tvö stoðsvið, tvö fagsvið og að Fjarðabyggðarhafnir verði sem fyrr sjálfstætt B-hluta fyrirtæki og hluti af yfirstjórn Fjarðabyggðar. Stjórnendur þessara fimm eininga eru hluti af stjórnendateymi sveitarfélagsins.  Helstu breytingar eru eftifarandi: 1.       Lagt er til að komið verði á fót fjölskyldusviði sem annist verkefni sem í dag falla undir fræðslustjóra og félagsmálastjóra. Lagt er til að innan sviðsins starfi tveir stjórnendur fræðslustjóri og félagsmálastjóri. Lagt er til að nefndaskipan verði óbreytt. Tilgangur þess að koma á fót fjölskyldusviði hjá Fjarðabyggð er tvíþættur. Í fyrsta lagi að ná fram markvissari og heildstæðari stefnumótun í þeim málaflokkum sem heyra undir sviðið. Í öðru lagi að tryggja heildaryfirsýn yfir málaflokkana og auðvelda þannig forgangsröðun verkefna og jafna álag milli starfsmanna og starfseininga eftir árstíðarbundnu álagi þegar því verður við komið. Lagt er til að vægi samvinnu milli málaflokka verði aukið stórlega og viðeigandi breytingar gerðar á starfslýsingum stjórnenda sviðsins til að skerpa á hlutverkum og skyldum þeirra á sviði samstarfs um þróun þjónustu fjölskyldusviðs.   2.       Mannvirkjastjóri er sviðsstjóri framkvæmdasviðs. Lagt er til að starfsemi slökkviliðs Fjarðabyggðar verði stofnun undir framkvæmdasviði. Þá er lagt til að starfsemi Slökkviliðs Fjarðabyggðar heyri undir eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og fari þar með undan bæjarráði.  3.       Lagt er til að stoðsvið Fjarðabyggðar verði tvö og kallist annars vegar stjórnsýslu- og þjónustusvið og hins vegar fjármálasvið.  4.       Lagt er til að starf upplýsingafulltrúa Fjarðabyggðar verði flutt frá bæjarstjóra yfir til stjórnsýslu- og þjónustusviðs og að næsti yfirmaður þess verði bæjarritari.  Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum tillögur stjórnkerfisnefndar eins og þær koma fram í þeirri greinagerð sem meðfylgjandi er málinu og þær breytingar sem lagðar eru til á störfum er fylgja breytingunni.

  7. Bæjarstjórn, fundur 104 liður 2.12

    Fundargerðin „Bæjarráð - 271“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Stjórnskipulag Fjarðabyggðar

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is