Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 269

29. nóvember 2011, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 103 liður 5

    Til máls tóku Páll Björgvin Guðmundsson, Jens Garðar Helgason, Esther Ösp Gunnarsdóttir, Sævar Guðjónsson, Elvar Jónsson og Jón Björn Hákonarson.Fundargerð bæjarráðs nr. 269 frá 29.nóvember 2011 samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun 2012

    Mál 1108029 Allur ferill málsins

    Rætt um fjárhagsáætlun 2012 í tengslum við umræður sem urðu við fyrri umræðu fjárhagsáætlunar á bæjarstjórnarfundi 24.nóvember sl.

  2. 2. Reglur vegna endurgerð gamalla húsa

    Mál 1104080 Allur ferill málsins

    Drög að reglum vegna endurgerðar gamalla húsa í tengslum við  atvinnuuppbyggingu í Fjarðabyggð. Vísað til umfjöllunar  í atvinnu- og menningarnefnd með beiðni um umsögn til bæjarráðs.

  3. 3. Málefni Lyfju í Fjarðabyggð

    Mál 1104026 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf stjórnsýslustjóra til velferðarráðuneytis og Lyfjastofnunar, þar sem ítrekaðar eru athugasemdir og óskað eftir svörum, vegna lokunar Lyfju í Fjarðabyggð á laugardögum.

  4. 4. Endurnýjun á samningi við verkefnastjóra Rauða krossins og móttökufulltrúa nýrra íbúa

    Mál 1111136 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað vegna vinnu verkefnastjóra Rauða krossins og móttökufulltrúa nýrra íbúa.  Bæjarráð samþykkir að taka þátt í ráðningu verkefnastjóra og móttökufulltrúa í áframhaldandi 50% starf til eins árs. Rauði kross Íslands mun fjármagna 40% af starfinu og Fjarðabyggð 10% Bæjarráð samþykkir jafnframt 280.000 kr. fjárheimild á árinu 2012 til að hægt sé að efna fjárhaldslegar skuldbindingar samningsins.

  5. 5. Ágangur vatns á lóð í Árdal

    Mál 1107061 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög að svari við bréfi húseigenda að Árdal 19 Eskifirði vegna fyrirspurnar frá 14.nóvember sl. er varðar vatnavexti í læk. Bæjarráð samþykkir bréf og felur stjórnsýslustjóra að svara erindi.

  6. 6. Aðalfundur Skólaskrifstofu Austurlands 11.nóvember 2011

    Mál 1110143 Allur ferill málsins

    Fundargerð aðalfundar Skólaskrifstofu Austurlands frá 11.nóvember lögð fram til kynningar. Bæjarstjóri gerði grein fyrir efni fundar og bókun á aðalfundi. Jafnframt vísað til félagsmálanefndar og fræðslu- og frístundanefndar.

  7. 7. Sjálfbærniverkefnið á Austurlandi - kynning

    Mál 1111137 Allur ferill málsins

    Stýrihópur sjálfbærniverkefnisins hefur boðist til að kynna verkefnið bæjarfulltrúum á næstunni.   Stefnt er á að kynning á sjálfbærniverkefninu verði í tengslum við bæjarstjórnarfund 15.desember. Jafnframt vísað til kynningar í eigna,- skipulags- og umhverfisnefnd.

  8. 8. Framtíð Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands

    Mál 1110202 Allur ferill málsins

    Bréf Fljótsdalshéraðs frá 24.nóvember er varðar bókun bæjarráðs vegna framtíðar Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands. Í bókun segir að bæjarráð Fljótsdalshéraðs telji eðlilegt að umræða um framtíð sjóðsins fari fram innan verkefnisstjórnar um sameiningu stoðstofnana á Austurlandi.

  9. 9. Fundargerðir stjórnar og framkvæmdaráðs SSA - 2011

    Mál 1107058 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar SSA frá 22.nóvember lögð fram til kynningar.

  10. 10. Stjórnskipulag Fjarðabyggðar

    Mál 1109020 Allur ferill málsins

    Bæjarráð fór yfir vinnu við stjórnskipulag Fjarðabyggðar.

  11. 11. Fundargerðir félagsmálanefndar 2011

    Mál 1101152 Allur ferill málsins

    Fundargerð félagsmálanefndar nr. 24 frá 28.nóvember lögð fram.

  12. 12. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 31

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr.31 frá 21.nóvember lögð fram.