Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 270

5. desember 2011, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 104 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.  Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Jens Garðar Helgason, Valdimar O Hermannsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Elvar Jónsson, Sævar Guðjónsson.Fundargerð staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Málefni Slökkviliðs Fjarðabyggðar

    Mál 1102004 Allur ferill málsins

    Þennan lið fundarins sátu slökkviliðsstjóri og fjármálastjóri. Framlagt minnisblað slökkviliðsstjóra um sjúkraflutninga og tillögur Alcoa Fjarðaáls að hækkun á samningstengdum greiðslum til Slökkviliðs Fjarðabyggðar.  Farið yfir drög að svörum til Alcoa Fjarðaáls vegna þátttöku í rekstri Slökkviliðs Fjarðabyggðar og drög að svörum til Heilbrigðisstofnunar Austurlands vegna sjúkraflutninga.

  2. 2. 66.mál til umsagna um breytingar á hafnarlögum

    Mál 1111116 Allur ferill málsins

    Framkvæmdastjóri hafnanna sat þennan lið fundarins. Bæjarráð felur hafnarstjórn fullnaðarumsögn um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum - 66.þingmál.

  3. 3. 85. mál til umsagnar um frumvarp til laga um hafnir

    Mál 1111123 Allur ferill málsins

    Framkvæmdastjóri hafnanna sat þennan lið fundarins. Bæjarráð felur hafnarstjórn fullnaðarumsögn um frumvarp til laga um hafnir - 85.þingmál.

  4. 4. Sjókvíaeldi í Reyðarfirði

    Mál 1103025 Allur ferill málsins

    Framkvæmdastjóri hafnanna sat þennan lið fundarins og fór yfir drög að umsögn vegna starfsleyfis Laxa.  Málið verður aftur á dagskrá næsta fundar bæjarráðs.

  5. 5. Umsókn Hafskeljar ehf. um ræktunarleyfi

    Mál 1111128 Allur ferill málsins

    Framlögð beiðni Matvælastofnunar, frá 24.nóvember, um umsögn um umsókn Hafskeljar ehf. um ræktunarleyfi fyrir krækling í Mjóafirði.  Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti ræktunarleyfi fyrir Hafskel ehf. og felur eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og hafnarstjórn fullnaðarafgreiðslu.

  6. 6. Málefni Heilbrigðisstofnunar Austurlands

    Mál 0903114 Allur ferill málsins

    Þennan lið fundarins sat Einar Rafn Haraldsson forstjóri HSA.  Rætt um fjárframlög til Heilbrigðisstofnunar Austurlands á komandi ári og hugsanleg áhrif þeirra.