Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 104

15. desember 2011, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Dagskrá

  1. 1. Bæjarráð - 270

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.  Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Jens Garðar Helgason, Valdimar O Hermannsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Elvar Jónsson, Sævar Guðjónsson.Fundargerð staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

    1. 1.1 Málefni Slökkviliðs Fjarðabyggðar1102004
    2. 1.2 66.mál til umsagna um breytingar á hafnarlögum1111116
    3. 1.3 85. mál til umsagnar um frumvarp til laga um hafnir1111123
    4. 1.4 Sjókvíaeldi í Reyðarfirði1103025
    5. 1.5 Umsókn Hafskeljar ehf. um ræktunarleyfi1111128
    6. 1.6 Málefni Heilbrigðisstofnunar Austurlands0903114
  2. 2. Bæjarráð - 271

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.  Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

    1. 2.1 Endurskoðun fjárhagsáætlunar 20111112031
    2. 2.2 Sjókvíaeldi í Reyðarfirði1103025
    3. 2.3 Ljósárvirkjun - Samningur og afsal1111138
    4. 2.4 Tillaga frá starfshópi sjávarútvegsráðherra1112009
    5. 2.5 Framtíð Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands1110202
    6. 2.6 Dagvistunarúrræði fyrir aldraða og heilabilaða í Neskaupstað1005030
    7. 2.7 Tillaga að gjaldskrá fyrir tjaldstæðin í Fjarðabyggð1111053
    8. 2.8 Reglur vegna endurgerðar gamalla húsa1112028
    9. 2.9 127. mál til umsagnar um Fjarðaheiðargöng1112033
    10. 2.10 Aukaaðalfundur Þróunarfélags Austurlands1112040
    11. 2.11 Fjárhagsleg endurskipulagning Eignarhaldsfélagsins Fasteignar hf1104081
    12. 2.12 Stjórnskipulag Fjarðabyggðar1109020
    13. 2.13 Hafnarstjórn - 921112003F
    14. 2.14 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 321112002F
    15. 2.15 Atvinnu- og menningarnefnd - 221111012F
  3. 3. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 32

    Fundargerðin í heild

    Til máls tóku:  Sævar Guðjónsson, Jón Björn Hákonarson. Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

    1. 3.1 Sjókvíaeldi í Reyðarfirði
    2. 3.2 730 - Deiliskipulag Hólmanes
    3. 3.3 740 - Grenndarkynning, ósk um stækkun lóðar Egilsbrautar 9a
    4. 3.4 Nýtt form lóðaleigusamninga
    5. 3.5 740 Nautahvammur 19 - geymsluhúsnæði
    6. 3.6 Framlenging á leyfi vegna geymslu raflausnar í Seljateigsskemmunni
    7. 3.7 Ljósárvirkjun - Samningur og afsal.
    8. 3.8 Sjálfbærniverkefnið á Austurlandi - kynning
    9. 3.9 Endurskoðun á umferðarsamþykkt
    10. 3.10 Umsókn Hafskel ehf. um ræktunarleyfi
    11. 3.11 730 Hafnargata 6, gámur norðan við hús
  4. 4. Hafnarstjórn - 92

    Fundargerðin í heild

    Til máls tóku: Sævar Guðjónsson, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Jens Garðar Helgason, Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

    1. 4.1 Beiðni um undaþágu til að taka lóðs Mv S. Rafeael1111110
    2. 4.2 66.mál til umsagna um breytingar á hafnarlögum1111116
    3. 4.3 85. mál til umsagnar um frumvarp til laga um hafnir1111123
    4. 4.4 Sjókvíaeldi í Reyðarfirði1103025
    5. 4.5 Undirbúningsvinna vegna komu skemmtiferðaskipa1005131
    6. 4.6 Skipulag strandsvæða1111057
    7. 4.7 730 Fjarðabyggð, Ægisgata 61103085
    8. 4.8 Gjaldskrár Hafnarsjóðs yfirferð texta.1112003
    9. 4.9 Umhverfisstefna hafna1111100
    10. 4.10 Endurnýjun og stækkun á olítanki smábáta á Stöðvarfirði1111099
    11. 4.11 Hafnarsjóður - akstursvarnir1108115
    12. 4.12 Framkvæmdir við bæjarbryggju á Norðfirði0905163
    13. 4.13 Umsókn Hafskeljar ehf. um ræktunarleyfi1111128
  5. 5. Atvinnu- og menningarnefnd - 22

    Fundargerðin í heild

    Til máls tóku:  Jón Björn Hákonarson, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Sævar Guðjónsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Jens Garðar Helgason, Valdimar O Hermannsson.Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

  6. 6. Endurskoðun á umferðarsamþykkt fyrir Fjarðabyggð, síðari umræða.

    Mál 1009017 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi samþykktinni úr hlaði en samþykktin er til síðari umræðu.Til máls tóku: Valdimar O Hermannsson, Elvar Jónsson, Eiður Ragnarsson, Jens Garðar Helgason, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir. Umferðasamþykkt fyrir Fjarðabyggð samþykkt með 9 atkvæðum.

  7. 7. Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2011

    Mál 1112031 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri fylgdi breytingum á fjárhagsáætlun úr hlaði og gerði grein fyrir helstu breytingum sem eru aðallega vegna kjarasamningshækkana.Til máls tók Jón Björn Hákonarson.Breytingar á fjárhagsáætlun samþykktar með 9 atkvæðum.

  8. 8. 730-Deiliskipulag Melur 1, breyting

    Mál 1111034 Allur ferill málsins

    Breyting á deiliskipulagi til auglýsingar.Forseti bæjarstjórnar fylgdi deiliskipulagi úr hlaði.Enginn tók til máls.Bæjarstjórn samþykkir að deiliskipulagið verði auglýst.

  9. 9. Breytingar á stjórnskipulagi Fjarðabyggðar.

    Mál 1109020 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri fylgdi úr hlaði breytingum á stjórnskipulagi Fjarðabyggðar með greinargerð.Til máls tóku:  Jón Björn Hákonarson. Bókun bæjarstjórnar Lögð fram tillaga bæjarráðs í greinagerð um nýtt skipulag stjórnsýslu Fjarðabyggðar. Bæjarráð hefur í umboði bæjarstjórnar sem stjórnkerfisnefnd unnið að skoðun stjórnsýslunnar og komið fram með tillögur að nýju skipulagi stjórnsýslu ásamt tillögum að skilgreiningum starfa er breytingunni tengjast. Að megin efni leggur bæjarráð til að starfsemi sveitar­félagsins verði skipt í tvö stoðsvið, tvö fagsvið og að Fjarðabyggðarhafnir verði sem fyrr sjálfstætt B-hluta fyrirtæki og hluti af yfirstjórn Fjarðabyggðar. Stjórnendur þessara fimm eininga eru hluti af stjórnendateymi sveitarfélagsins.  Helstu breytingar eru eftifarandi: 1.       Lagt er til að komið verði á fót fjölskyldusviði sem annist verkefni sem í dag falla undir fræðslustjóra og félagsmálastjóra. Lagt er til að innan sviðsins starfi tveir stjórnendur fræðslustjóri og félagsmálastjóri. Lagt er til að nefndaskipan verði óbreytt. Tilgangur þess að koma á fót fjölskyldusviði hjá Fjarðabyggð er tvíþættur. Í fyrsta lagi að ná fram markvissari og heildstæðari stefnumótun í þeim málaflokkum sem heyra undir sviðið. Í öðru lagi að tryggja heildaryfirsýn yfir málaflokkana og auðvelda þannig forgangsröðun verkefna og jafna álag milli starfsmanna og starfseininga eftir árstíðarbundnu álagi þegar því verður við komið. Lagt er til að vægi samvinnu milli málaflokka verði aukið stórlega og viðeigandi breytingar gerðar á starfslýsingum stjórnenda sviðsins til að skerpa á hlutverkum og skyldum þeirra á sviði samstarfs um þróun þjónustu fjölskyldusviðs.   2.       Mannvirkjastjóri er sviðsstjóri framkvæmdasviðs. Lagt er til að starfsemi slökkviliðs Fjarðabyggðar verði stofnun undir framkvæmdasviði. Þá er lagt til að starfsemi Slökkviliðs Fjarðabyggðar heyri undir eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og fari þar með undan bæjarráði.  3.       Lagt er til að stoðsvið Fjarðabyggðar verði tvö og kallist annars vegar stjórnsýslu- og þjónustusvið og hins vegar fjármálasvið.  4.       Lagt er til að starf upplýsingafulltrúa Fjarðabyggðar verði flutt frá bæjarstjóra yfir til stjórnsýslu- og þjónustusviðs og að næsti yfirmaður þess verði bæjarritari.  Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum tillögur stjórnkerfisnefndar eins og þær koma fram í þeirri greinagerð sem meðfylgjandi er málinu og þær breytingar sem lagðar eru til á störfum er fylgja breytingunni.