Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 92

6. desember 2011, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 271 liður 13

    Fram lögð og kynnt.

  • Bæjarstjórn, fundur 104 liður 4

    Til máls tóku: Sævar Guðjónsson, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Jens Garðar Helgason, Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Beiðni um undaþágu til að taka lóðs Mv S. Rafeael

    Mál 1111110 Allur ferill málsins

    Bréf frá Eimskipfélagi Íslands dags. 21. nóvember 2011 þar sem óskað er eftir undanþágu til að taka lóðs að/frá Mjóeyrarhöfn fyrir skipstjóra Mv. S.Rafael. Hafnarstjórn staðfestir undanþágu frá hafnsöguskyldu fyrir Mannfred Bunjevac skipstjóra Mv. S.Rafael.

  2. 2. 66.mál til umsagna um breytingar á hafnarlögum

    Mál 1111116 Allur ferill málsins

    Erindi frá nefndasviði Alþingis dags. 23. nóvember 2011 þar sem óskað er eftir umsögn um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum 66.mál. Umsögn skal berast fyrir 7. desember 2011. Fyrir fundinum lá minnisblað framkvæmdastjóra Fjarðabyggðarhafna vegna málsins. Á fundi bæjarráðs 5. desember sl. fól ráðið hafnarstjórn fullnaðarafgreiðslu málsins. Hafnarstjórn samþykkir framlagt minnisblað og felur framkvæmdastjóra að ganga frá umsögn vegna frumvarpsins.

  3. 3. 85. mál til umsagnar um frumvarp til laga um hafnir

    Mál 1111123 Allur ferill málsins

    Erindi frá nefndasviði Alþingis dags. 24. nóvember 2011 þar sem óskað er eftir umsögn um frumvarp til laga um hafnir, 85.mál. Umsögn skal berast fyrir 7. desember 2011. Fyrir fundinum lá minnisblað framkvæmdastjóra Fjarðabyggðarhafna vegna málsins. Á fundi bæjarráðs 5. desember sl. fól ráðið hafnarstjórn fullnaðarafgreiðslu málsins. Hafnarstjórn samþykkir framlagt minnisblað og felur framkvæmdastjóra að ganga frá umsögn vegna frumvarpsins.

  4. 4. Sjókvíaeldi í Reyðarfirði

    Mál 1103025 Allur ferill málsins

    Á fundi bæjarráð 27. október sl. óskaði bæjarráð eftir umsögn hafnarstjórnar og eigna-, skipulag- og umhverfisnefdar um auglýst starfsleyfi fyrir kvíaeldi í Reyðarfirði. Málið var kynnt á fundi hafnarstjórnar 8. nóvember 2011. Fyrir fundinum láu drög að umsögn til bæjarráðs vegna málsins. Hafnarstjórn samþykkti drögin fyrir sitt leiti og vísar þeim til bæjarráðs.

  5. 5. Undirbúningsvinna vegna komu skemmtiferðaskipa

    Mál 1005131 Allur ferill málsins

    Fundargerð frá stöðufundi 11. nóvember sl. ásamt gögnum auk þess sem greint var frá heimsókn til umboðsaðila og ferðaskrifstofa í Reykjavík. Kynnt.

  6. 6. Skipulag strandsvæða

    Mál 1111057 Allur ferill málsins

    Bréf frá Teiknistofunni Eik dags. 11. nóvember 2011. Auk þess mætti fulltrúi frá Teikninstofunni Eik til fundar við fulltrúa sveitarfélagsins og kynnti verkefni sem fyrirtækið er að vinna í samstarfi við Fjórðungssamband Vestfjarða og Háskólasetur Vestfjarða og lítur að skipulagi strandsvæða. Fyrir fundinum láu kynningargögn vegna verkefnisins. Kynnt.

  7. 7. 730 Fjarðabyggð, Ægisgata 6

    Mál 1103085 Allur ferill málsins

    Farið yfir málefni hafnarsvæðis á Reyðarfirði og lóðarmál á Ægisgötu 6. Kynnt.

  8. 8. Gjaldskrár Hafnarsjóðs yfirferð texta.

    Mál 1112003 Allur ferill málsins

    Farið var yfir texta gjaldskrár Hafnarsjóðs. Hafnarstjórn gerði minniháttar lagfæringar á texta. Breytingarnar hafa ekki áhrif á gjöld skv. gjaldskránni.

  9. 9. Umhverfisstefna hafna

    Mál 1111100 Allur ferill málsins

    Bréf frá Hafnasambandi Íslands þar sem kynnt eru drög að umhverfisstefnu sem hafnir landsins geta nýtt sér við að setja sér umhverfisstefnu. Kynnt.

  10. 10. Endurnýjun og stækkun á olítanki smábáta á Stöðvarfirði

    Mál 1111099 Allur ferill málsins

    Í tölvupósti dags. 16. nóvember 2011 óskar N1 eftir að fá að endurnýja núverandi olíutanka fyrir smábáta á Stöðvarfirði. Tankurinn er tvöfaldur og lengri en núverandi tankur en lægri og tekur meira magn. Hafnarstjórn samþykkir erindið.

  11. 11. Hafnarsjóður - akstursvarnir

    Mál 1108115 Allur ferill málsins

    Farið var yfir stöðu framkvæmdar við að setja upp akstursvarnir á hafnarsvæðin.

  12. 12. Framkvæmdir við bæjarbryggju á Norðfirði

    Mál 0905163 Allur ferill málsins

    Svör Siglingastofnunar við fyrirspurn hafnarsjórnar um hönnun, útlit og gerð efnis í bryggjunni. Hafnarstjórn sammála um að fylgja tillögu Siglingastofnunar. Einnig kynnt ný gögn í þessari vinnu.

  13. 13. Umsókn Hafskeljar ehf. um ræktunarleyfi

    Mál 1111128 Allur ferill málsins

    Erindi frá Matvælastofnun dags. 24. nóvember 2011 þar sem óskað er umsagnar um umsókn Hafskeljar ehf. um ræktunarleyfi. Eins og fram kemur í bréfinu hefur Hafskel ehf fullgild starfsleyfi og rekstrarleyfi fyrir starfsemi sína. Í kjölfar nr. 90/2011 um skeldýrarækt er hér um að ræða yfirfærslu leyfisveitinga að ræða frá Fiskistofu til Matvælastofnunar samkvæmt lögum.Á fundi bæjarráðs 5. desember sl. fól ráðið hafnarstjórn fullnaðarafgreiðslu málsins. Hafnarstjórn samþykkir framlagt minnisblað og felur framkvæmdastjóra að ganga frá umsögn vegna frumvarpsins. Hafnarstjórn telur ekki ástæðu til athugasemda við umsókn Hafskeljar ehf um ræktunarleyf.