Hafnarstjórn, fundur 91
8. nóvember 2011, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 267 liður 28
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 91 frá 8.nóvember lögð fram.
Bæjarstjórn, fundur 102 liður 10
Enginn tók til máls. Fundargerð hafnarstjórnar nr. 91 frá 8.nóvember 2011 samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fundagerðir Hafnarsambands Íslands árið 2011
Mál 1102072 Allur ferill málsins
Fundargerðir stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 340 dags. 19. ágúst 2011 og fundargerð nr. 341 dags. 7. október 2011. Kynnt.
-
2. Fundagerðir CI á árinu 2011
Mál 1102034 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Cruise Iceland frá 14. október 2011. Kynnt.
-
3. Seatrade Europe sýning í Hamborg 2011
Mál 1103187 Allur ferill málsins
Minnisblað frá ferðamálafulltrúa frá Seatrade Hamborg sem hún fór á 20-22 september sl. Kynnt.
-
4. Sjókvíaeldi í Reyðarfirði
Mál 1103025 Allur ferill málsins
Bréf frá Umhverfisstofnun dags. 12. október 2011 þar sem kynnt er tillaga að starfsleyfi fyrir kvíaeldisstöð Laxa fiskeldis ehf í Reyðarfirði. Fram kemur í bréfinu að frestur til að skila inn athugasemdum við tillöguna er til 16. desember 2011. Bæjarráð óskar eftir umsögn frá hafnarstjórn og eigna, skipulags- og umhverfisnefnd. Kynnt.
-
5. Umsögn vegna umsóknar um hafnsögumannsskírteini
Mál 1110222 Allur ferill málsins
Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að veita umsögn vegna umsóknar Grétars Rögnavarsson um hafnsögumannsskírteini.
-
6. Fjárhagsáætlun 2012 - Hafnarnefnd
Mál 1108058 Allur ferill málsins
Lögð fram drög að starfsáætlun fyrir árið 2012. Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri og Björgvin Valdimarsson komu inná fundinn undir þessum lið. Framkvæmdastjóra falið að leggja breytta áætlun fyrir bæjarráð.
-
7. Hafnarmál á Norðfirði
Mál 1111028 Allur ferill málsins
Minnisblað frá framkvæmdastjóra hafnarinnar frá fundi 4. nóvember sl. með fulltrúum Síldarvinnslunnar og bréf frá framkvæmdastjóra Síldarvinnslunnar frá 7. nóvember sl. varðandi endurskipulag og stækkun athafnasvæðis fyrirtækisins á Norðfirði. Hafnarstjórn samþykkti að setja 20 milljónir til undirbúnings verksins inn í áætlun ársins 2012.