Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 267

14. nóvember 2011, kl. 08:30 til 12:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 102 liður 5

    Til máls tóku Páll Björgvin Guðmundsson, Esther Ösp Gunnarsdóttir og Elvar Jónsson.Fundargerð bæjarráðs nr. 267 frá 14.nóvember 2011 samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun 2012

    Mál 1108029 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Lagðar fram tillögur að állagningarstofnum fasteignagjalda 2012 og drög að þriggja ára áætlun. Tekið fyrir á næsta fundi.

  2. 2. Fjárhagsáætlun 2012 - Fræðslu,- og frístundanefnd

    Mál 1108059 Allur ferill málsins

    Fræðslustjóri sat þennan lið fundarins. Umræða um starfs- og fjárhagsáætlun fræðslu- og frístundamála. Fræðslu- og frístundanefnd telur að ekki verði lengra komist með hagræðingaraðgerðir í fræðslu- og frístundamálum og fjárhagsramma þurfi að hækka um 17 milljónir til að hægt verði að ganga frá fjárhagsáætlun.  Bæjarráð samþykkir hækkun á fjárhagsramma.

  3. 3. Fjárhagsáætlun 2012 - Atvinnu- og menningarnefnd

    Mál 1108057 Allur ferill málsins

    Umræða um starfs- og fjárhagsáætlun atvinnu- og menningarmála. Atvinnu- og menningarnefnd telur að vegna kostnaðarliða sem stofnað hefur verið til á árinu verði að hækka fjárhagsramma um 8 milljónir til að hægt verði að ganga frá fjárhagsáætlun.  Bæjarráð samþykkir hækkun á fjárhagsramma.

  4. 4. Fjárhagsáætlun 2012 - Hafnarnefnd

    Mál 1108058 Allur ferill málsins

    Framkvæmdastjóri hafnanna sat þennan lið fundarins. Lögð fram rekstrar- og fjárfestingaráætlun 2012 auk þriggja ára áætlunar.  Gjaldskrá hafnarsjóðs tekin fyrir á næsta fundi.  Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs vísað til fjárhagsáætlunargerðar.

  5. 5. Fjárhagsáætlun 2012 - Félagsmálanefnd

    Mál 1108056 Allur ferill málsins

    Fjárhagsáætlun félagsmálanefndar vísað til fjárhagsáætlunargerðar.

  6. 6. Fjárhagsáætlun 2012 - Bæjarráð og sameiginlegur kostnaður

    Mál 1108060 Allur ferill málsins

    Slökkviliðsstjóri sat þennan lið fundarins. Umræða um fjárhagsramma Slökkviliðs Fjarðabyggðar. Ákvörðun frestað til næsta fundar.

  7. 7. Fjárhagsáætlun 2012 - Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

    Mál 1108055 Allur ferill málsins

    Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins og fór yfir fjárfestingaáætlun fyrir næstu þrjú ár. Bæjarráð samþykkir framlagða fjárfestingaáætlun og starfsáætlun mannvirkja- og umhverfissviðs. Framlagt minnisblað mannvirkjastjóra og fjármálastjóra er varðar bílakaup fyrir árið 2012. Fjárhagsáætlun eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar vísað til fjárhagsáætlunargerðar.

  8. 8. Útsvar 2012

    Mál 1111039 Allur ferill málsins

    Bæjarráð Fjarðabyggðar samþykkir að vísa til bæjarstjórnar tillögu um að álagningarhlutfall útsvars verði 14,48% af tekjum einstaklinga í Fjarðabyggð. Útsvarsheimild sveitarfélagsins yrði þannig fullnýtt.

  9. 9. Gjaldskrá fyrir hunda- og kattaleyfi 2012

    Mál 1110132 Allur ferill málsins

    Bæjarráð samþykkir tillögu mannvirkjastjóra að gjaldskrá fyrir hunda- og kattarleyfi í Fjarðabyggð verði óbreytt á milli ára, þ.e. leyfi fyrir hund verði 14.500 kr. og fyrir kött verði 9.500 kr. á árinu 2012. Gjaldskrá mun taka gildi 1. janúar 2012. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

  10. 10. Gjaldskrá Fráveitu Fjarðabyggðar 2012

    Mál 1110131 Allur ferill málsins

    Bæjarráð samþykkir tillögu mannvirkjastjóra að gjaldskrá fyrir Fráveitu Fjarðabyggðar. Gjaldskrá stofngjalds fráveitu hækkar um 8% og gjaldskrá fyrir hreinsun rotþróa um  48%. Báðar hækkanir taka mið af breytingu á byggingarvísitölu frá síðustu endurskoðun gjaldskrár. Gjaldskrá mun taka gildi 1. janúar 2012.

  11. 11. Gjaldskrá fyrir gatnagerðagjöld 2012

    Mál 1110130 Allur ferill málsins

    Bæjarráð samþykkir tillögu mannvirkjastjóra að gjaldskrá gatnagerðargjalda. Gjaldskráin hækkar um 8% eða sem nemur breytingu á byggingarvísitölu frá síðustu endurskoðun. Jafnframt samþykkir bæjarráð tillögu mannvirkjastjóra að gefinn verði 50% afsláttur á gatnagerðagjöldum fyrir íbúðarhúsnæði á árinu 2012. Lagt er til að eftirfarandi skilyrði séu fyrir veitingu á afslætti:1. lóðarumsókn sé í skipulögðu hverfi. 2. lokið hafi verið við lagningu allra heimæða og að yfirborð götu sé malbikað. 3. að byggingarframkvæmdir hefjist á árinu 2012. 4. að umsækjandi sé skuldlaus við sveitarfélagið.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />Gjaldskrá mun taka gildi 1. janúar 2012.

  12. 12. Gjaldskrá fyrir Vatnsveitu Fjarðabyggðar 2012

    Mál 1110129 Allur ferill málsins

    Bæjarráð samþykkir tillögu mannvirkjastjóra að hækka gjaldskrá Vatnsveitu Fjarðabyggðar um 8% þ.e. sem nemur breytingu á byggingarvísitölu frá síðustu endurskoðun á gjaldskrá. Gjaldskrá mun taka gildi 1. janúar 2012. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

  13. 13. Gjaldskrá fyrir framkvæmdarleyfi 2012

    Mál 1110128 Allur ferill málsins

    Bæjarráð samþykkir tillögu mannvirkjastjóra að hækka gjaldskrá vegna framkvæmdaleyfa og þjónustugjalda skipulagsfulltrúa. Gjaldskrá hækkar um 8%, þ.e. sem nemur hækkun á byggingarvísitölu frá síðustu endurskoðun gjaldskrár. Auk þess er verið að setja inn nýja gjaldliði í gjaldskrá í samræmi við 20. gr. nýrra skipulagslaga nr. 123/2010. Gjaldskrá mun taka gildi 1. janúar 2012. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

  14. 14. Gjaldskrá fyrir byggingarleyfi 2012

    Mál 1110127 Allur ferill málsins

    Bæjarráð samþykkir tillögu mannvirkjastjóra að hækka gjaldskrá byggingarleyfis- og þjónustugjalda byggingafulltrúa Fjarðabyggðar. Gjaldskrá hækkar almennt um 8%, sem er í samræmi við breytingu á byggingarvísitölu frá síðustu endurskoðun gjaldskrár. Gjaldskrá mun taka gildi 1. janúar 2012. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

  15. 15. Gjaldskrá Sorpmiðstöðvar Fjarðabyggðar 2012

    Mál 1110126 Allur ferill málsins

    Bæjarráð samþykkir tillögu mannvirkjastjóra að hækka gjaldskrá Sorpstöðvar Fjarðabyggðar vegna söfnunar- og móttökustöðvar og urðunarstaðs um vísitöluhækkun á árinu 2011. Auk þess er lagt til að hækka gjaldskrá aukalega um 3% vegna áætlaðrar meðaltals hækkunar á vísitölu næsta árs. Einnig er lagt til að gjald vegna sorphreinsunar- og förgunargjalda verði lækkað um 2.278 kr á ári. Ný gjaldskrá mun taka gildi 1. janúar 2012.  <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

  16. 16. Gjaldskrá í íþrótta- og skólamannvirkjum 2012

    Mál 1111023 Allur ferill málsins

    Fræðslustjóri sat þennan lið fundarins og gerði grein fyrir hækkunum á gjaldskrám íþrótta- og skólamannvirkja. Ákvörðun um breytingar á gjaldskrá sundlauga frestað til næsta fundar. Bæjarráð samþykkir breytingar á öðrum gjaldskrám íþrótta- og skólamannvirkja. Meðal hækkana má nefna að gjaldskrá leikskóla hækkar um 8%, skólamáltíðir um 5% og fullt nám í tónlistarskóla um 10%

  17. 17. Breytingar á gjaldskrám safna og bókasafna 1.1.2012

    Mál 1110169 Allur ferill málsins

    Bæjarráð samþykkir tillögu forstöðumanns Safnastofnunar að breytingum á gjaldskrá safnanna í Fjarðabyggð og samþykkir jafnframt að hækka gjaldskrá bókasafnanna um 10%

  18. 18. Fundargerðir Þróunarfélags Austurlands 2011

    Mál 1105180 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnarfundar Þróunarfélags Austurlands frá 1.nóvember lögð fram til kynningar.

  19. 19. Fundargerðir Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands 2011

    Mál 1105100 Allur ferill málsins

    Fundargerð Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands frá 8.nóvember lögð fram til kynningar.

  20. 20. Manntal 2011

    Mál 1111018 Allur ferill málsins

    Bréf Hagstofu Íslands frá 2.nóvember þar sem tilkynnt er um töku manntals og húsnæðistals í árslok 2011. Óskað verður eftir viðbótarupplýsingum frá sveitarfélögum vegna vinnu við manntalið.  Lagt fram til kynningar.

  21. 21. Skil á fjárhagsupplýsingum

    Mál 1111043 Allur ferill málsins

    Tölvupóstur innanríkisráðuneytisins frá 7.nóvember þar sem áréttuð eru skil á fjárhagslegum upplýsingum. Lagt fram til kynningar.

  22. 22. Kynningarfundur um evrópsk byggðamál á Reyðarfirði 21. nóvember 2011

    Mál 1111044 Allur ferill málsins

    Framlögð dagskrá kynningarfundar um evrópsk byggðamál sem haldinn verður á Reyðarfirði 21.nóvember 2011 kl.14:00.  Bæjarfulltrúar hvattir til að sækja fundinn eigi þeir þess kost.

  23. 23. Eignarhaldsfélagið Fasteign - hluthafafundur 30.11.2011

    Mál 1111045 Allur ferill málsins

    Fyrirhugaður er hluthafafundur í Eignarhaldsfélaginu Fasteign 30.nóvember. Bæjarráð felur bæjarstjóra að sækja fundinn.

  24. 24. Þjónustukönnun meðal íbúa Fjarðabyggðar

    Mál 1111049 Allur ferill málsins

    Bæjarráð samþykkir að taka þátt í þjónustukönnun Capacent. Kostnaður kr. 166.000 takist af liðnum óráðstafað.

  25. 25. Tillaga að gjaldskrá fyrir tjaldstæðin í Fjarðabyggð

    Mál 1111053 Allur ferill málsins

    Bæjarráð samþykkir tillögu að gjaldskrá fyrir tjaldstæðin í Fjarðabyggð. Gisting á tjaldstæði - á einstakling 10 ára og eldri - 500 krónur

    Börn undir 10 ára -  frítt

    Ellilífeyris- og örorkuþegar - 500 krónur

    Rafmagn -  500 á sólarhring á hvert farartæki<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />Gjaldskránni jafnframt vísað til atvinnu- og menningarnefndar og eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar til upplýsinga.

  26. 26. Fræðslu- og frístundanefnd - 19

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar nr. 19 frá 9.nóvember lögð fram.

  27. 27. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 30

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr.30 frá 7.nóvember lögð fram.

  28. 28. Hafnarstjórn - 91

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 91 frá 8.nóvember lögð fram.

  29. 29. Atvinnu- og menningarnefnd - 21

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar nr. 21 frá 10.nóvember lögð fram.