Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 268

21. nóvember 2011, kl. 08:30 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 102 liður 6

    Enginn tók til máls. Fundargerð bæjarráðs nr. 268 frá 21.nóvember 2011 samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun 2012 - Bæjarráð og sameiginlegur kostnaður

    Mál 1108060 Allur ferill málsins

    Þennan lið fundarins sátu fjármálastjóri og slökkviliðsstjóri. Bæjarráð samþykkir að hækka fjárhagsramma Slökkviliðs Fjarðabyggðar um 8,8 milljónir í 97 milljónir.  Jafnframt lagt fram minnisblað slökkviliðsstjóra vegna samnings um sjúkraflutninga.

  2. 2. Gjaldskrá í íþrótta- og skólamannvirkjum 2012

    Mál 1111023 Allur ferill málsins

    Þennan lið fundarins sat fjármálastjóri. Bæjarráð samþykkir tillögu fræðslu- og frístundanefndar um breytingar á gjaldskrá sundlauganna í Fjarðabyggð.

  3. 3. Fjárhagsáætlun 2012 - Hafnarnefnd

    Mál 1108058 Allur ferill málsins

    Framkvæmdastjóri hafnanna og fjármálastjóri sátu þennan lið fundarins. Umræða um gjaldskrá hafnarsjóðs er frestað var á síðasta fundi.  Bæjarráð samþykkir að hækka gjaldskrá Hafnarsjóðs sem nemur hækkun á vísitölu.

  4. 4. Fjárhagsáætlun 2012

    Mál 1108029 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Lögð fram drög að frumvarpi með fjárhagsáætlun 2012, þriggja ára áætlun 2013-2015, starfsáætlanir nefnda, fjárhagsáætlanir a-hluta og a og b hluta ásamt málaflokkayfirliti. Álagningarstofnar 2012 verða sem hér segir:<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />Fasteignaskattur A: 0,43 % af húsmati og lóðarmati.Fasteignaskattur B: 1,32 % af húsmati og lóðarmati.Fasteignaskattur C: 1,45 % af húsmati og lóðarmati.Lóðarleiga íbúðarhúsnæði: 0,51 % af lóðarhlutamati.Lóðarleiga atvinnuhúsnæði: 1,00% af lóðarhlutamati.Vatnsskattur: 0,31% af húsmati.Holræsagjald: 0,29 % af húsmati.Sorphreinsunargjald: 21.500 kr. á heimiliSorpeyðingargjald: 10.168 kr á heimili.Fjöldi gjalddaga fasteignagjalda verði átta - mánaðarlega frá 1. febrúar.

    Eindagi fasteignagjalda verður síðasti virki dagur gjalddagamánaðar.

    Bæjarráð samþykkir tillögu fjármálastjóra að reglur um afslátt af fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega verði óbreyttar á milli áranna 2011 og 2012.  Bæjarráð vísar fjárhagsáætlun 2012, þriggja ára áætlun 2013-2015 og starfsáætlunum nefnda til afgreiðslu bæjarstjórnar.

  5. 5. Þorrablót 2012

    Mál 1111064 Allur ferill málsins

    Ósk um afnot af íþróttahúsinu á Reyðarfirði fyrir Þorrablót Reyðfirðinga 20.janúar 2012. Bæjarráð samþykkir að heimila Þorrablóti Reyðfirðinga afnot af íþróttahúsi fyrir þorrablót og felur mannvirkjastjóra að vera tengiliður vegna málsins.

  6. 6. Símenntunarsjóðir leik- og grunnskóla á Austurlandi

    Mál 1111061 Allur ferill málsins

    Bréf Skólastjórafélags Austurlands frá 3.nóvember þar sem skorað er á sveitarfélög að standa vörð um símenntunarsjóði starfsmanna grunn- og leikskóla á Austurlandi. Vísað til fræðslu- og frístundanefndar og mannauðsstjóra til kynningar.

  7. 7. Samvinnufélag um rekstur leiguhúsnæðis

    Mál 1111060 Allur ferill málsins

    Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins. Framlagt bréf hóps sem hefur að markmiði að stofna samvinnufélag um rekstur á öruggum og traustum leigumarkaði. Í bréfinu eru útlistaðar hugmyndir hópsins en markmið umrædds samvinnufélags er að eignast a.m.k. 300 - 400 íbúðir eingöngu með það að markmiði að leigja þær út á kostnaðarverði.  Óskað er eftir stuðningi Fjarðabyggðar í formi fjárframlags. Bæjarráð útilokar ekki aðkomu að málins en vill sjá aðkomu ráðuneyta, íbúðalánasjóðs, stéttarfélaga, lífeyrissjóða og annarra sveitarfélaga að málinu áður en lengra er haldið. Bæjarráð felur mannvirkjastjóra jafnframt að fylgjast með framgangi málsins.

  8. 8. Íslands 2010 - Atvinnuhættir og menning

    Mál 1111052 Allur ferill málsins

    Ákvörðun um þátttöku í ritinu "Ísland - atvinnuhættir og menning"  Bæjarráð samþykkir að vera með opnugrein í ritinu.

  9. 9. Aðalfundur Héraðsskjalasafns Austfirðinga 2011 - Breytingar á stjórn og samþykktum

    Mál 1110219 Allur ferill málsins

    Framlögð greinargerð forstöðumanns Héraðsskjalasafns Austfirðinga vegna breytinga á stofnsamþykktum safnsins. Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við breytingar á stofnsamþykktum Héraðsskjalasafns Austfirðinga.

  10. 10. Umsókn um styrk vegna Eldvarnaátaksins 2011

    Mál 1111088 Allur ferill málsins

    Bréf Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna frá 17.nóvember er varðar styrk vegna Eldvarnaátaksins 2011. Vísað til slökkviliðsstjóra til afgreiðslu.

  11. 11. Stofnfundur Samtaka orkusveitarfélaga

    Mál 1111090 Allur ferill málsins

    Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins. Stofnfundur Samtaka orkusveitarfélaga verður haldinn föstudaginn 25.nóvember kl. 14:00 í Turninum Firði Hafnarfirði. Framlögð drög að samþykktum fyrir samtökin og yfirlit yfir tilgang og helstu markmið.  Bæjarráð felur bæjarstjóra að sjá til þess að fulltrúi frá Fjarðabyggð sæki fundinn.

  12. 12. Tillaga að töku tilboðs í nýtt hjúkrunarheimilis í Fjarðabyggð

    Mál 1111071 Allur ferill málsins

    Bréf Framkvæmdasýslu ríkisins frá 11.nóvember þar sem mælt er með að tilboði Viðhaldsmeistarans ehf., í nýtt hjúkrunarheimili í Fjarðabyggð verði tekið, en það var að fjárhæð 528.736.166 kr.  Bæjarráð gerir ekki athugasemd við tillögu Framkvæmdasýslu og felur bæjarstjóra að undirrita samning, f.h. Fjarðabyggðar, þegar hann liggur fyrir.

  13. 13. Gjaldtaka Fasteignaskrár Íslands vegna fasteignamats

    Mál 1111072 Allur ferill málsins

    Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins. Tillaga mannvirkjastjóra frá 20.nóvember er varðar gjaldtöku Fasteignamats ríkisins á grundvelli fasteignamats. Bæjarráð samþykkir tillöguna.

  14. 14. Hópslysaæfing 17.september 2011 í Fjarðabyggð

    Mál 1109017 Allur ferill málsins

    Tekin hefur verið saman skýrsla um hópslysaæfingu sem haldin var í Fjarðabyggð 17.september. Skýrsluna má nálgast á heimasíðu Almannavarna.

  15. 15. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2011

    Mál 1101153 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar nr.18 frá 15.nóvember lögð fram.