Samvinnufélag um rekstur leiguhúsnæðis
Mál 1111060 Fyrst á dagskrá 21. nóvember 2011, síðast 24. nóvember 2011. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Byggingar og framkvæmdir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2011
Bæjarráð, fundur 268 liður 7
Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins. Framlagt bréf hóps sem hefur að markmiði að stofna samvinnufélag um rekstur á öruggum og traustum leigumarkaði. Í bréfinu eru útlistaðar hugmyndir hópsins en markmið umrædds samvinnufélags er að eignast a.m.k. 300 - 400 íbúðir eingöngu með það að markmiði að leigja þær út á kostnaðarverði. Óskað er eftir stuðningi Fjarðabyggðar í formi fjárframlags. Bæjarráð útilokar ekki aðkomu að málins en vill sjá aðkomu ráðuneyta, íbúðalánasjóðs, stéttarfélaga, lífeyrissjóða og annarra sveitarfélaga að málinu áður en lengra er haldið. Bæjarráð felur mannvirkjastjóra jafnframt að fylgjast með framgangi málsins.
-
Bæjarstjórn, fundur 102 liður 6.7
Fundargerðin „Bæjarráð - 268“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.