Bæjarráð, fundur 266
3. nóvember 2011, kl. 18:00 til 20:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 102 liður 4
Til máls tóku Guðmundur Þorgrímsson, Jens Garðar Helgason og Elvar Jónsson.Fundargerð bæjarráðs nr. 266 frá 3.nóvember 2011 samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjárhagsáætlun 2012
Mál 1108029 Allur ferill málsins
Áframhaldandi vinna við fjárhagsáætlun 2012.
-
2. Fjárhagsáætlun 2012 - Atvinnu- og menningarnefnd
Mál 1108057 Allur ferill málsins
Formaður atvinnu- og menningarnefndar sat þennan lið fundarins. Meðal annars farið yfir greinargerð stjórnsýslustjóra um fjárhagsramma málaflokksins og rætt um áherslur í starfsáætlun.
-
3. Atvinnumál - ferðaþjónusta - kynningarstarf
Mál 1103191 Allur ferill málsins
Formaður atvinnu- og menningarnefndar sat þennan lið fundarins og kynnti framlagða samantekt úr skýrslum starfshópa um atvinnumál, ferðaþjónustu og kynningarstarf. Einnig vísað til umræðu í bæjarstjórn.
-
4. Fjárhagsáætlun 2012 - Fræðslu,- og frístundanefnd
Mál 1108059 Allur ferill málsins
Fræðslustjóri sat þennan lið fundarins. Rætt um fjárhagsáætlun fræðslu- og frístundamála.
-
5. Aðalfundur StarfA 2011 - 8.11.2011
Mál 1110172 Allur ferill málsins
Aðalfundur StarfA verður haldinn að Búðareyri 1 Reyðarfirði þriðjudaginn 8.nóvember kl. 15:00. Bæjarrráð sammála um að mannauðsstjóri taki sæti í stjórn StarfA og formaður félagsmálanefndar verði varamaður hans.
-
6. Framtíð Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands
Mál 1110202 Allur ferill málsins
Bréf formanns stjórnar Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands og framkvæmdastjóra Þróunarfélags Austurlands frá 27.október þar sem óskað er eftir svörum frá aðildarsveitarfélögum um framtíð sjóðsins. Óskað er eftir svörum fyrir 15.nóvember. Vísað til atvinnu- og menningarnefndar.
-
7. Jólasjóðurinn í Fjarðabyggð
Mál 1102059 Allur ferill málsins
Bæjarráð sammála um að framlag til jólasjóðs Rauða kross Íslands í Fjarðabyggð fyrir jólin 2011 verði kr. 300.000.
-
8. Ósk um tilnefningar í stjórn Héraðsskjalasafns Austurlands á aðalfundi 2011
Mál 1110219 Allur ferill málsins
Tilnefningar í stjórn Héraðsskjalasafnsins vegna breytinga á samþykktum sem fela í sér fækkun stjórnarmanna. Lagt er til að sömu einstaklingar verði aðal- og varamenn í stjórn Héraðsskjalasafns Austurlands f.h. Fjarðabyggðar út kjörtímabilið. Vísað til afgreiðslu atvinnu- og menningarnefndar.
-
9. Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2011/2012
Mál 1110184 Allur ferill málsins
Framlögð drög að umsóknum vegna byggðakvóta fiskveiðiárið 2011/2012 en sótt er um fyrir alla bæjarhluta Fjarðabyggðar. Bæjarráð samþykkir umsóknir og felur bæjarstjóra að undirrita þær.
-
10. Fjárhagsáætlun 2012 - Félagsmálanefnd
Mál 1108056 Allur ferill málsins
Félagsmálastjóri sat þennan lið fundarins. Farið var yfir starfs- og fjárhagsáætlun málefna félagsmála.
-
11. Fundargerðir félagsmálanefndar 2011
Mál 1101152 Allur ferill málsins
Fundargerðir félagsmálanefndar nr.22 frá 19.október og nr. 23 frá 31.október lagðar fram.
-
12. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2011
Mál 1101153 Allur ferill málsins
Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 17 frá 4.október lögð fram.
-
13. Atvinnu- og menningarnefnd - 20
Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar nr. 20 frá 27.október lögð fram.