Bæjarráð, fundur 265
27. október 2011, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 101 liður 1
Til máls tóku: Jens Garðar Helgason, Elvar Jónsson.
Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Gjaldskrá Rafveitu Reyðarfjarðar 2012
Mál 1110125 Allur ferill málsins
Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins. Bæjarráð staðfestir samþykkt eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá fundi 25.október um að hækka gjaldskrá dreifingar hjá Rafveitu Reyðarfjarðar um 10 % frá 1. janúar 2012.
-
2. Gjaldskrár Hitaveitu Fjarðabyggðar árið 2012
Mál 1110121 Allur ferill málsins
Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins. Bæjarráð staðfestir samþykkt eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 25.október um að hækka gjaldskrá Hitaveitu Fjarðabyggðar, Eskifirði um 4,5 % frá 1.janúar 2012. Með því hækkar vatnsgjald í 150 kr/m3 og mælagjald í 25.000 kr/ári fyrir allt íbúðarhúsnæði. Önnur gjöld eins og tengigjöld hækka um 15 %.
-
3. Gjaldskrá fjarvarmaveitu Fjarðabyggðar 2012
Mál 1110133 Allur ferill málsins
Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins. Bæjarráð staðfestir samþykkt eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 25.október um 10 % hækkun á gjaldskrá fyrir fjarvarmaveitur er taki gildi 1. janúar 2012. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
-
4. Fjárhagsáætlun 2012 - Fræðslu,- og frístundanefnd
Mál 1108059 Allur ferill málsins
Þennan lið fundarins sat formaður fræðslu- og frístundanefndar og fór yfir framlagða greinargerð fræðslustjóra frá 20.október. Í greinargerð fræðslustjóra kemur fram að nokkuð vanti á að nefndin nái saman þeim fjárhagsrömmum sem henni var úthlutað. Í greinargerð koma einnig fram fjárhagsleg áhrif hinna ýmsu aðhaldsaðgerða.
-
5. Fjárhagsáætlun 2012 - Hafnarnefnd
Mál 1108058 Allur ferill málsins
Lögð fram greinargerð framkvæmdastjóra hafnanna frá 21.október. Umfjöllun um fjárhagsáætlun ársins 2012 ásamt langtímaáætlun fyrir árin 2013 til 2015.
-
6. Fjárhagsáætlun 2012 - Atvinnu- og menningarnefnd
Mál 1108057 Allur ferill málsins
Framlögð greinargerð stjórnsýslustjóra frá 6.október.
-
7. Fjárhagsáætlun 2012 - Eigna-,skipulags- og umhverfisnefnd
Mál 1108055 Allur ferill málsins
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fór yfir fjárhagsáætlun sviðsins á fundi 25.október, afgreiddi hana með áorðnum breytingum og vísaði til afgreiðslu bæjarráðs.
-
8. Fjárhagsáætlun 2012 - Félagsmálanefnd
Mál 1108056 Allur ferill málsins
Frestað.
-
9. Sjókvíaeldi í Reyðarfirði
Mál 1103025 Allur ferill málsins
Kynning á tillögu að starfsleyfi fyrir kvíaeldisstöð Laxa fiskeldis ehf. í Reyðarfirði. Umhverfisstofnun boðar til opins kynningarfundar í Fjarðarhóteli á Reyðarfirði 3.nóvember kl. 17:00. Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna er til 16.desember. Vísað til atvinnu- og menningarnefndar, hafnarstjórnar og eigna,- skipulags- og umhverfisnefndar. Bæjarráð óskar eftir umsögn frá hafnarstjórn og eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
-
10. Launahækkanir í kjarasamningum
Mál 1105183 Allur ferill málsins
Minnisblað mannauðsstjóra frá 19.október vegna hækkana launa vegna kjarasamninga á árinu 2011. Í minnisblaði er sundurliðun á málaflokka en heildarkostnaðarauki ársins nemur um 77 milljónum. Vísað til endurskoðunar á fjárhagsáætlun 2011.
-
11. Opnun Skíðamiðstöðvarinnar í Oddsskarði veturinn 2011 - 2012
Mál 1110112 Allur ferill málsins
Minnisblað fræðslustjóra og forstöðumanns Skíðamiðstöðvarinnar í Oddsskarði frá 19.október vísað frá fræðslu- og frístundanefnd. Í minnisblaði kemur fram að ekki verður hægt að opna skíðasvæðið í Oddsskarði nema til komi aukafjárveiting frá bæjarráði. Rekstur skíðasvæðisins er þegar kominn yfir fjárheimildir, þrátt fyrir að ekkert verði opið fyrir áramót, og aukaopnun í desember myndi kosta aukalega um 1.300.000. Bæjarráð samþykkir að skíðasvæðið verði ekki opnað fyrir jól.
-
12. Lánsumsókn til Ofanflóðasjóðs
Mál 1110075 Allur ferill málsins
Minnisblað fjármálastjóra frá 14.október vegna lánsumsóknar til Ofanflóðasjóðs vegna snjóflóðaframkvæmda 2008 - 2010. Í minnisblaði er lagt til að lántaka verði samþykkt enda er um að ræða hagkvæman lántökukost. Bæjarráð samþykkir lántöku og vísar til afgreiðslu bæjarstjórnar.
-
13. Fundargerðir stjórnar og framkvæmdaráðs SSA - 2011
Mál 1107058 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar SSA frá 18.okóber lögð fram til kynningar.
-
14. Tilnefningar í nefndir á vegum SSA
Mál 1110141 Allur ferill málsins
Bæjarráð sammála að tilnefna Jens Garðar Helgason í samstarfsnefnd og Pál Björgvin Guðmundsson bæjarstjóra í samgöngunefnd SSA en ákveðið var að sveitarfélögin skipuðu einn fulltrúa hvert í þessar nefndir á síðasta aðalfundi SSA.
-
15. Aðalfundur Skólaskrifstofu Austurlands 11.nóvember kl. 15:00
Mál 1110143 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri verður aðalfulltrúi og fræðslustjóri til vara á aðalfundi Skólaskrifstofu Austurlands sem haldinn verður á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar föstudaginn 11.nóvember kl. 15:00.
-
16. Lögheimili íbúa Fjarðabyggðar
Mál 1101209 Allur ferill málsins
Bæjarráð samþykkir tillögu að bréfi til íbúa.
-
17. Samþykkt frá aðalfundi fulltrúaráðs EBÍ
Mál 1110151 Allur ferill málsins
Bréf EBÍ frá 20.október er varðar samþykkt aðalfundar fulltrúaráðs EBÍ frá 12.október um að greiða ekki ágóðahluta á árinu 2011.
-
18. Ósk um athugasemdir vegna vinnu við gerð frumvarps til breytinga á lögum um mat á umhverfisáhrifum
Mál 1110149 Allur ferill málsins
Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar með ósk um umsögn.
-
19. Breyting á reglum um afskriftanefnd viðskiptakrafna
Mál 1110166 Allur ferill málsins
Minnisblað fjármálastjóra og tillaga að breytingu á reglum um afskriftanefnd krafna hjá Fjarðabyggð. Bæjarráð samþykkir reglur.
-
20. Fjárhagsstaða Fjarðaferða ehf. - frjáls nauðasamningur
Mál 1110173 Allur ferill málsins
Tilboð um greiðslu 50% af skuld félagsins við Fjarðabyggð. Vísað til fjármálastjóra og afgreiðslu afskriftanefndar viðskiptakrafna.
-
21. Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2011/2012
Mál 1110184 Allur ferill málsins
Umsóknarfrestur er til 9.nóvember. Vísað til afgreiðslu hjá framkvæmdastjóra hafna.
-
22. Hafnarstjórn - 90
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 90 frá 18.október lögð fram.
-
23. Atvinnu- og menningarnefnd - 19
Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar nr. 19 frá 19.október lögð fram.
-
24. Fræðslu- og frístundanefnd - 18
Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar nr. 18 frá 19.október lögð fram.
-
25. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 29
Mál 1110015F1 Allur ferill málsins
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 29 frá 25.október lögð fram.