Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2011

Opnun Skíðamiðstöðvarinnar í Oddsskarði veturinn 2011 - 2012

Mál 1110112 Fyrst á dagskrá 27. október 2011, síðast 3. nóvember 2011. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Íþróttir og tómstundir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2011

    Bæjarráð, fundur 265 liður 11

    Minnisblað fræðslustjóra og forstöðumanns Skíðamiðstöðvarinnar í Oddsskarði frá 19.október vísað frá fræðslu- og frístundanefnd.  Í minnisblaði kemur fram að ekki verður hægt að opna skíðasvæðið í Oddsskarði nema til komi aukafjárveiting frá bæjarráði. Rekstur skíðasvæðisins er þegar kominn yfir fjárheimildir, þrátt fyrir að ekkert verði opið fyrir áramót, og aukaopnun í desember myndi kosta aukalega um 1.300.000.   Bæjarráð samþykkir að skíðasvæðið verði ekki opnað fyrir jól.

  2. Bæjarstjórn, fundur 101 liður 1.11

    Fundargerðin „Bæjarráð - 265“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is