Hafnarstjórn, fundur 90
18. október 2011, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 265 liður 22
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 90 frá 18.október lögð fram.
Bæjarstjórn, fundur 101 liður 2
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Guðmundur Þorgrímsson.Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Drög að frumvarpi nýrra sveitarstjórnarlaga
Mál 1101139 Allur ferill málsins
Bæjarráð vísaði á fundi sínum 3. október sl. nýjum sveitarstjórnarlögum sem taka gildi 1. janúar 2012 til kynningar hjá sviðsstjórum og fastanefndum, ásamt minnisblaði dags. 30 september sl. um áhrif nýrra sveitarstjórnarlaga á stjórnsýslu sveitarfélaga. Kynnt.
-
2. Mengun í Norðfjarðarhöfn 21. september 2011
Mál 1109180 Allur ferill málsins
Tölvupóstur frá HAUST dags. 21. september 2011 vegna mengunaróhapps í Norðfjarðarhöfn. Kynnt.
-
3. Árshlutauppgjör 31.08.2011
Mál 1110056 Allur ferill málsins
Árshlutauppgjör Fiskmarkaðar Austurlands fyrir fyrstu átta mánuði ársins 2011 kynnt.
-
4. Sérstakt strandveiðigjald til hafna
Mál 1109228 Allur ferill málsins
Bréf frá Fiskistofu dags. 26. september 2011 þar sem kynnt er sérstakt strandveiðigjald til hafna. Kynnt.
-
5. Undirbúningsvinna vegna komu skemmtiferðaskipa
Mál 1005131 Allur ferill málsins
Fundargerðir dags. 13. september og 17. október frá vinnufundum vegna verkefninsins kynntar. Hafnarstjórn samþykkir að farið verði og heimsóttar ferðaskrifstofur skemmtiferðaskipa.
-
6. Framkvæmdir við bæjarbryggju á Norðfirði
Mál 0905163 Allur ferill málsins
Frumdrög að teikningum fyrir endurbyggingu bæjarbryggjunnar á Norðfirði kynnt. Hafnarstjórn lýst vel á fyrirliggjandi teikningar en felur framkvæmdastjóra að koma á framfæri athugsemdum og óska eftir upplýsingum sem fram komu í umræðunni.
-
7. Fjárhagsáætlun 2012 - Hafnarnefnd
Mál 1108058 Allur ferill málsins
Umfjöllun um fjárhagsáætlun ársins 2012 ásamt langtímaáætlun fyrir árin 2013 til 2015. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að ganga frá áætluninni og vísar henni til bæjarráðs.