Bæjarráð, fundur 264
18. október 2011, kl. 16:00 til 19:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 100 liður 3
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman utan 1. liðar fundargerðar 264. Samþykkt með 8 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Vatnsveita Fjarðabyggðar - vatnsból Norðfirði
Mál 1103156 Allur ferill málsins
Hilmar Gunnlaugsson lögmaður var í símasambandi við fundinn. Þennan lið fundarins sátu einnig mannvirkjastjóri og Guðmundur Þorgrímsson í stað Jóns Björns Hákonarsonar. Umræða um vatnstökumál í Fannardal. Lögð fram drög að svari Fjarðabyggðar til lögmanns Guðröðar Hákonarsonar. Bæjarráð samþykkir svarbréf með framkomnum breytingum.
-
2. Fjárhagsáætlun 2012
Mál 1108029 Allur ferill málsins
Framhald umræðu um fjárhagsáætlun 2012. Þennan lið fundarins sátu fjármálastjóri, mannauðsstjóri og slökkviliðsstjóri. Farið yfir fjárhagsáætlun og starfsáætlun ásamt öðrum málum tengdum fjárhagsáætlunargerð. Fjármálastjóri fór yfir stöðu heildarmyndar áætlunar. Valdimar O. Hermannsson vék af fundi kl. 18:30.
-
3. Styrkur til Reyðarfjarðarkirkju vegna 100 ára afmælis
Mál 1110084 Allur ferill málsins
Bæjarráð samþykkir að styrkja Reyðarfjarðarkirkju um kr. 150.000 vegna 100 ára afmælis kirkjunnar. Takist af liðnum óráðstafað.
-
4. Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2011
Mál 1109160 Allur ferill málsins
Framlögð gögn vegna ársfundar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem haldinn var 12.október. Lögð fram til kynningar ársskýrsla sjóðsins fyrir árið 2010.
-
5. Fundur bæjarráðs með fjárlaganefnd Alþingis haustið 2011
Mál 1110050 Allur ferill málsins
Framlögð greinargerð vegna fundar bæjarráðs með fjárlaganefnd Alþingis.
-
6. Hagsmunagæsla í úrgangsmálum - Fundur vegna sorpmála með fulltrúa frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Mál 1110120 Allur ferill málsins
Mannvirkjastjóri og bæjarstjóri munu funda með fulltrúa frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga vegna verkefnisins "Hagsmunagæsla í úrgangsmálum" miðvikudaginn 26.október.
-
7. Fundargerðir félagsmálanefndar 2011
Mál 1101152 Allur ferill málsins
Fundargerðir félagsmálanefndar nr.20 frá 3.október 2011 og nr.21 frá 11.október 2011 lagðar fram.