Bæjarráð, fundur 263
11. október 2011, kl. 17:30 til 21:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 100 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman utan 1. liðar fundargerðar 264. Staðfest af bæjarstjórn með 8 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjárhagsáætlun 2012
Mál 1108029 Allur ferill málsins
Inn á fundinn komu mannvirkjastjóri, formaður eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, fræðslustjóri og formaður fræðslu- og frístundanefndar og ræddu fjárhagsáætlun málaflokka. Auk þess sátu þennan fundarlið mannauðsstjóri og fjármálastjóri.
-
2. Beiðni um lóð undir atvinnustarfsemi
Mál 1109015 Allur ferill málsins
<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />Á fundi bæjarráðs 19.september óskaði ráðið eftir umsögn eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar vegna lóðarumsóknar ALUCAB ehf. um lóðina nr. 14 að Hrauni. Á fundi eigna,- skipulags- og umhverfisnefndar 10.október var tekin fyrir umsögn mannvirkjastjóra, hún samþykkt og henni jafnframt vísað til afgreiðslu bæjarráðs. Bæjarráð samþykkir að úthluta ALUCAB ehf. lóðinni nr. 14 að Hrauni og vísar erindinu til áframhaldandi vinnslu hjá mannvirkjastjóra og framkvæmdastjóra hafnanna.
-
3. Sameining Austfirskra stoðstofnana (AST) - fundargerðir og skýrsla
Mál 1104003 Allur ferill málsins
Fundargerð símafundar frá 7.október 2011, vegna sameiningar stoðstofnana, hjá fulltrúum stoðkerfisins í starfshóps AST-verkefnisins
-
4. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 28
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 28 frá 10.október lögð fram.