Bæjarráð, fundur 262
10. október 2011, kl. 08:30 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 100 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman utan 1. liðar fundargerðar 264. Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Elvar Jónsson, Valdimar O Hermannsson, Eiður Ragnarsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Esther Ösp Gunnarsdóttir, Óskar Þór Hallgrímsson, Ásta Eggertsdóttir.Staðfest af bæjarstjórn með 8 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Beiðni um framlengingu á uppbyggingarstyrk
Mál 1110011 Allur ferill málsins
Ódagsett bréf Golfklúbbsins Byggðarholts þar sem óskað er eftir framlengingu á uppbyggingarstyrk. Á dagskrá fræðslu- og frístundanefndar 5.október í tengslum við fjárhagsáætlunargerð. Vísað til fjárhagsáætlunar en gerð langtímasamnings, um afnot af golfvallarsvæðinu, vísað til bæjarstjóra.
-
2. Viðtöl þingmannaviku 2011
Mál 1110019 Allur ferill málsins
Heimsókn og viðtöl þingmanna Norðausturkjördæmis við sveitarstjórn Fjarðabyggðar er áætluð mánudaginn 24.október frá kl. 16:30. Vísað til skipulagningar hjá stjórnsýslustjóra.
-
3. Hvatning vegna kvennafrídagsins 25.okóber nk.
Mál 1110017 Allur ferill málsins
Samband íslenskra sveitarfélaga hvetur sveitarfélögin til að standa fyrir fundum vikuna 24.-29.október um stöðu og aðgerðir í jafnréttismálum kynjanna. Vísað til félagsmálastjóra og stjórnsýslustjóra til frekari skoðunar.
-
4. Árgjöld sveitarfélaga til Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands
Mál 1009205 Allur ferill málsins
Bæjarráð sammála um að greiða eftirstöðvar á framlagi til Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands. Takist af liðnum óráðstafað.
-
5. Lífeyrisskuldbindingar hjúkrunarheimila
Mál 1110040 Allur ferill málsins
Minnisblað mannauðsstjóra frá 6.október um lífeyrisskuldbindingar hjúkrunarheimilanna Uppsala og Hulduhliðar og umboð til Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu. Bæjarráð samþykkir að veita Samtökum fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu umboð til að koma fram fyrir hönd hjúkrunarheimilanna í samningaviðræðum vegna uppgjörs lífeyrisskuldbindinga. Bæjarráð felur mannauðsstjóra jafnframt frekari úrvinnslu málsins.
-
6. Styrkbeiðni Hjálpræðishersins
Mál 1110047 Allur ferill málsins
Bæjarráð samþykkir að styrkja starf Hjálpræðishersins um 150.000 kr. Takist af liðnum óráðstafað.
-
7. Aðalfundur SSA 2011
Mál 1108012 Allur ferill málsins
Fundargerð aðalfundar SSA 2011 lögð fram til kynningar.
-
8. Fundargerðir stjórnar og framkvæmdaráðs SSA - 2011
Mál 1107058 Allur ferill málsins
Fundargerðir stjórnar SSA frá 29.september og 1.október 2011 lagðar fram til kynningar.
-
9. Líkamsræktarkort.
Mál 2009-01-06-18 Allur ferill málsins
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti að atvinnuleitendur njóti sömu kjara og elli- og örorkulífeyrisþegar, á mánaðarkortum í líkamsrækt. Vísað til endanlegrar afgreiðslu og útfærslu hjá fræðslu- og frístundanefnd.
-
10. Starfsaldursmat samkvæmt kjarasamningum.
Mál 1110049 Allur ferill málsins
Minnisblað mannauðsstjóra frá 7.október um mat á starfsaldri starfsmanna. Bæjarráð samþykkir tillögu um að frestur til að skila inn gögnum verði lengdur til 31.okótber nk. og skili starfsmenn vottorðum inn fyrir þann tíma geti þeir fengið afturvirka hækkun til 1.maí sl.
-
11. Aukaaðalfundur Markaðsstofu Austurlands 2011
Mál 1110052 Allur ferill málsins
Bæjarráð sammála um að formaður atvinnu- og menningarnefndar verði fulltrúi Fjarðabyggðar á aukaaðalfundi Markaðsstofu Austurlands sem haldinn verður 21.október.
-
12. Fundur sveitarstjórnar með fjárlaganefnd Alþingis haustið 2011
Mál 1110050 Allur ferill málsins
Bréf Alþingis frá 5.október er varðar upplýsingar um fundi sveitarstjórna með fjárlaganefnd Alþingis. Stjórnsýslustjóra falið að koma á fjarfundi 12.október.
-
13. Fjárhagsáætlun 2012
Mál 1108029 Allur ferill málsins
Framkvæmdastjóri hafnanna, formaður hafnarstjórnar, stjórnsýslustjóri, félagsmálastjóri og formaður félagsmálanefndar gerðu grein fyrir vinnu við fjárhagsáætlun 2012.
-
14. Hafnarstjórn - 89
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 89 frá 4.október lögð fram.
-
15. Fræðslu- og frístundanefnd - 17
Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar nr. 17 frá 5.október lögð fram.