Hafnarstjórn, fundur 93
3. janúar 2012, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 275 liður 13
Fundargerð lögð fram til umræðu og kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 106 liður 4
Til máls tóku: Sævar Guðjónsson.Fundargerð stafðest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fundagerðir CI á árinu 2011
Mál 1102034 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Cruise Iceland frá 6. desember 2011. Kynnt.
-
2. Fundagerðir Hafnarsambands Íslands árið 2011
Mál 1102072 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 342 frá 18. nóvember 2011. Kynnt.
-
3. Framkvæmdir við bæjarbryggju á Norðfirði
Mál 0905163 Allur ferill málsins
Fundargerð dags. 20. desember 2011 frá opnun tilboða í timbur til endurbyggingar bæjarbryggjunnar á Norðfirði. Lagt er til að lægsta tilboði verði tekið en það er frá Húsasmiðjunni. Hafnarstjórn samþykkir að taka tilboði Húsasmiðjunnar.
-
4. Áætlun um móttöku og meðhöndlun úrgangs og farmleifa frá skipum
Mál 1112011 Allur ferill málsins
Bréf frá Umhverfisstofnun dags. 29. nóvember 2011 vakin er athygli á því að hafnaryfirvöldum beri að gera áætlun um móttöku og meðhöndlun úrgangs og farmleifa. Framkvæmdastjóra falið að vinna málið.
-
5. Umhverfisstefna hafna
Mál 1111100 Allur ferill málsins
Tekið var til umræðu málefni umhverfisstefnu fyrir Fjarðabyggðarhafnir. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að vinna málið áfram.
-
6. Smábátahöfn Stöðvarfirði
Mál 1112090 Allur ferill málsins
Á fundi hafnarstjórnar þann 6. desember sl. var óskað eftir að umræða yrði tekin um stöðu smábátahafnarinnar á Stöðvarfirði og möguleikum sem þar væru til staðar til að fjölga plássum fyrir smábáta. Framkvæmdastjóra falið að vinna málið áfram.