Bæjarráð, fundur 275
9. janúar 2012, kl. 08:30 til 10:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 106 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman. Til máls tóku: Eiður Ragnarsson, Sævar Guðjónsson, Elvar Jónsson, Jens Garðar Helgason.Fundargerð staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Þjónustukönnun meðal íbúa Fjarðabyggðar
Mál 1111049 Allur ferill málsins
Niðurstöður úr þjónustukönnun fyrir Fjarðabyggð lagðar fram til kynningar.Bæjarráð vísar könnuninni til kynningar og eftir atvikum til skoðunar hjá sviðsstjórum og nefndum.
-
2. Siðareglur
Mál 1201063 Allur ferill málsins
Lögð fram tillaga bæjarstjóra um skipan vinnuhóps sem vinni að setningu siðareglna fyrir pólitíska fulltrúa og stjórnendur í Fjarðabyggð.Samþykkt að vinnuhópinn skipi frá stjórnsýslu Fjarðabyggðar Gunnlaugur Sverrisson forstöðumaður stjórnsýslu, Esther Ösp Gunnarsdóttir frá Fjarðalista, Eiður Ragnarsson frá Framsóknarflokki og Ásta Kristín Sigurjónsdóttir frá Sjálfstæðisflokknum.
-
3. Starfshópur um almenningssamgöngur / Aðalmál.
Mál 1101197 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat mannvirkjastjóri.Samningar um skipulagðar samgöngur í Fjarðabyggð lagðir fram til kynningar og staðfestingar. Farið yfir framgang í verkefninu.Bæjarráð staðfestir samninga fyrir sitt leyti.
-
4. Vatnsveita Fjarðabyggðar - vatnsból Norðfirði
Mál 1103156 Allur ferill málsins
Við umfjöllun og afgreiðslu dagskrárliðar vék Jón Björn Hákonarson af fundi.Tekið til umfjöllunar málefni Guðröðar Hákonarsonar og ágreining um vatnstökuréttindi í Fannardal. Hilmar Gunnlaugsson lögfræðingur var í símasambandi við fundinn og fór yfir samskipti sín við lögfræðing Guðröðar. Mannvirkjastjóri sat jafnframt fundinn.
-
5. Endurgreiðsla á VSK fyrir Hitaveitu Fjarðabyggðar
Mál 1101028 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat mannvirkjastjóri.Lögð fram drög að bréfi til fjármálaráðuneytisins vegna endurgreiðslu á virðisaukaskatti vegna húshitunar á dreifisvæði Hitaveitu Eskifjarðar og kynnt áætlanir um framhald málsins.Bæjarráð samþykkir efni bréfsins og felur mannvirkjastjóra að vinna það áfram.
-
6. Opnunartími leikskóla
Mál 1201005 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf frá Vinnumarkaðsráði Austurlands um opnunartíma leikskóla.Bæjarráð samþykkir að vísa erindi til fræðslu- og frístundanefndar.
-
7. Stofnfjáreigendafundur 19.janúar 2012
Mál 1201053 Allur ferill málsins
Boðað er til stofnfjáreigendafundar í Sparisjóði Norðfjarðar 19.1.2012.Bæjarráð samþykkir að fela Jóni Birni Hákonarsyni að fara með umboð Fjarðabyggðar á fundinn.
-
8. NORA ansøgning - Communities for change
Mál 1201020 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað og fundarboð vegna samstarfsverkefnis Communities for change. Boðað er til upphafsfundar í verkefni 24. janúar 2011.Vísað til atvinnu- og menningarnefndar til umfjöllunar.Fulltrúi Fjarðabyggðar á fundinum verður bæjarritari.
-
9. Vinabæjarsamskipti á norðurlöndum
Mál 0907052 Allur ferill málsins
Lögð fram greinargerð bæjarritara um vinabæjarsamskipti milli Esbjerg, Stavanger, Jyväskylä, Eskilstuna og og útfærslu þeirra.Bæjarráð felur bæjarritara að vinna áfram að málinu.
-
10. Reglur um liðveislu og eyðublað 2011
Mál 1102013 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat félagsmálastjóri.Lagt fram minnisblað um nýjar reglur fyrir liðveislu og farið yfir þær.Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
11. Framtíð Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands
Mál 1110202 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar greining á framlögum Atvinnuþróunarsjóðs til Fjarðabyggðar síðustu ár.Vísað til atvinnu- og menningarnefndar.
-
12. Nýjir íbúar og brottfluttir í Fjarðabyggð
Mál 1106064 Allur ferill málsins
Yfirlit yfir aðflutta og brottflutta í Fjarðabyggð á tímabilinum 2.12.2010 til 1. júní 2011 lagt fram til kynningar.Vísað til atvinnu- og menningarnefndar.
-
13. Hafnarstjórn - 93
Fundargerð lögð fram til umræðu og kynningar.
-
14. Tilkynning um fyrirhugaða 4.000 tonna laxeldisstöð Laxar fiskeldis ehf. í sjókvíum í Fáskrúðfirði
Mál 1201079 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri lagði fram til kynningar tilkynningu frá Löxum ehf sem fyrirtækið hefur sent Skipulagsstofnun.Bæjarráð vísar máli til kynningar í atvinnu- og menningarnefnd, hafnarstjórn og eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
-
15. Fjárhagsáætlun 2012
Mál 1108029 Allur ferill málsins
Kynning á fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2012 verður 18. janúar n.k. á Fáskrúðsfirði og 17. janúar n.k. í Neskaupstað. Fundirnir eru í skólunum og hefjast kl. 20:00.