Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 276

16. janúar 2012, kl. 08:30 til 10:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 106 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.  Fundargerð utan liðar 2.3. staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Nýjir íbúar og brottfluttir í Fjarðabyggð

    Mál 1106064 Allur ferill málsins

    Upplýsingar um lögheimilisflutninga íbúa að og frá Fjarðabyggð tímabilið 1. desember 2010 til 1. desember 2011 lagðar fram til kynningar.Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar í atvinnu- og menningarnefnd.

  2. 2. Nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði

    Mál 0903017 Allur ferill málsins

    Verkkaupasamningur milli framkvæmdaaðila og verkkaupa, Framkvæmdasýslu ríkisins og Fjarðabyggðar, lagður fram til samþykktar.  Ákvörðun um töku tilboðs í byggingu hjúkrunarheimilisins var tekin á fundi bæjarráðs nr. 268. Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  3. 3. Fjárhagsáætlun 2012

    Mál 1108029 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri. Tillaga um endurskoðun ákvörðunar vegna reglna um afslátt af fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega á árinu 2012. Bæjarráð samþykkir að viðmiðunarfjárhæðir verði óbreyttar á milli áranna 2011 og 2012 og greinar 5. og 8. falli niður í reglunum.

  4. 4. Reglur vegna endurgerðar gamalla húsa

    Mál 1112028 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög að reglum um styrki til endurgerðar gamalla húsa. Bæjarráð vísar reglunum til umsagnar eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

  5. 5. Brunavarnir í Nesskóla

    Mál 1201099 Allur ferill málsins

    Fram lagt bréf frá Foreldrafélagi Nesskóla vegna brunavarna í Nesskóla. Bæjarráð vísar erindi til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

  6. 6. Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2011/2012

    Mál 1110184 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat framkvæmdastjóri hafna. Lagðar fram breytingar á reglugerð er varðar byggðakvóta sem úthlutað var til Stöðvarfjarðar og Mjóafjarðar fyrir árið árið 2012. Bæjarráð samþykkir reglur fyrir sitt leyti og vísar til staðfestingar bæjarstjórnar.

  7. 7. Málefni Eignarhaldsfélagsins Hrauns.

    Mál 1201144 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri. Farið yfir fjárhagsleg málefni Eignarhaldsfélagsins Hrauns. Bæjarráð samþykkir tillögu fjármálastjóra.

  8. 8. Breytingar á nefndarskipan Framsóknarflokks í atvinnu-og menningarnefnd

    Mál 1201155 Allur ferill málsins

    Sigrún Júlía Geirsdóttir kemur inn sem aðalmaður í atvinnu- og menningarnefnd í stað Þórönnu Lilju Snorradóttur og Daníel Arason verður varamaður í stað Svanhvítar Aradóttur.  Einar Birgir Kristjánsson verður varaformaður atvinnu- og menningarnefndar. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

  9. 9. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2012

    Mál 1201124 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 20 frá 10.janúar lögð fram til kynningar.

  10. 10. Fræðslu- og frístundanefnd - 21

    Fundargerðin í heild

    Þennan lið dagskrár sat fræðslustjóri. Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar nr. 21 frá 11. janúar lögð fram til kynningar.Vegna 4.liðar í fundargerð áréttar bæjarráð að vísað er til gjaldskrár fyrir grunnskóla í Fjarðabyggð þar sem fram kemur "viðkomandi hópur hafi ekki kost á gistingu annars staðar í bænum."