Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 278

30. janúar 2012, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 107 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.Fundargerð staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Aðalfundur Samorku 17.febrúar 2012 - boð til veitna í Fjarðabyggð

    Mál 1201199 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat mannvirkjastjóri.Fram lagt til kynningar fundarboð aðalfundar Samorku 17. febrúar n.k.Bæjarráð samþykkir að mannvirkjastjóri fari með umboð sveitarfélagsins á fundinum.

  2. 2. Endurnýjaður leigusamningur vegna urðunar í landi Þernunes

    Mál 1201003 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat mannvirkjastjóri.Fram lagður endurnýjaður samningur um leigu lands fyrir urðun úrgangs í landi Þernuness.Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra að undirrita hann.

  3. 3. Sjókvíaeldi í Reyðarfirði

    Mál 1103025 Allur ferill málsins

    Löxum fiskeldi ehf. hefur verið veitt starfsleyfi til framleiðslu á laxi í sjókvíum í Reyðarfirði. Lagðar fram athugasemdir við starfsleyfistillögu og viðbrögð umhverfisstofnunar við þeim.Vísað til eigna-,skipulags- og umhverfisnefndar, hafnarnefndar og atvinnu- og menningarnefndar.

  4. 4. Fundargerðir stjórnar og framkvæmdaráðs SSA - 2012

    Mál 1201252 Allur ferill málsins

    Fundargerð framkvæmdaráðs Sambands sveitarfélaga frá 22. janúar lögð fram til kynningar.

  5. 5. Reglur vegna endurgerðar gamalla húsa

    Mál 1112028 Allur ferill málsins

    Reglurnar voru teknar fyrir á 34. fundi eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og vísað til afgreiðslu bæjarráðs.  Greinargerð forstöðumanns stjórnsýslu lögð fram.Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.

  6. 6. Endurskoðun á umferðarsamþykkt

    Mál 1009017 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat mannvirkjastjóri.Bréf Sýslumannsins á Eskifirði lagt fram til kynningar þar sem gerðar eru athugasemdir við umferðarsamþykkt.  Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar til vinnslu.

  7. 7. Fundir Ungmennaráðs Fjarðabyggðar 2011-2012

    Mál 1112002 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat fræðslustjóri.Fyrirhugaður er fundur ungmennaráðs og bæjarstjórnar 16. febrúar n.k. þar sem farið verður yfir ýmiss mál ungmenna.  Farið yfir minnisblað bæjarritara um fundarsköp bæjarstjórnar.  Rætt um uppsetningu og fundarform.Byggt verður á funarstjórn bæjarstjórnarfundar og fundurinn tekin upp.  Fundurinn verður í beinu framhaldi af fundi bæjarstjórnar og hefst kl. 17:00.

  8. 8. Bókun frá SSA vegna framtíðar Reykjavíkurflugvallar

    Mál 1201267 Allur ferill málsins

    Fram lagt til kynningar bréf Sambands sveitarfélaga Austurlandi um framtíð Reykjavíkurflugvallar.Bæjarráð tekur undir bókun sambandsins og  undirstrikar mikilvægi flugvallarins.

  9. 9. Málþing um eflingu sveitarstjórnarstigs

    Mál 1201264 Allur ferill málsins

    Fram lagt til kynningar efni málsþings um eflingu sveitarstjórnarstigsins sem haldið verður 10. febrúar n.k.Ásta Kristín Sigurjónsdóttir tekur þátt í pallborðsumræðum.

  10. 10. Afmælishátíð 23-25.mars 2012

    Mál 1103009 Allur ferill málsins

    Fram lagt boð frá vinabæ Fjarðabyggðar í Finnlandi um þátttöku í afmælishátíð sem haldin verður 23. til 25. mars n.k.Bæjarráð felur Jóni Birni Hákonarsyni að leggja fram tillögu að sendinefnd sem fari á vinabæjarmótið.

  11. 11. Reglur um framlög til stjórnmálasamtaka

    Mál 0904075 Allur ferill málsins

    Fram lagðar endurskoðaðar reglur að framlögum til stjórnmálasamtaka sem bjóða fram í Fjarðabyggð.Bæjarráð samþykkir drög að reglum fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.

  12. 12. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 34

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fram lögð til kynningar.

  13. 13. Atvinnu- og menningarnefnd - 24

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fram lögð til kynningar.