Bæjarráð, fundur 274
2. janúar 2012, kl. 08:30 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 105 liður 3
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman. Fundargerð að undanskildum lið 10 staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Styrkbeiðni 2012 frá Golfklúbbi Fjarðabyggðar
Mál 1109252 Allur ferill málsins
Bréf Golfklúbbs Fjarðabyggðar frá 20.desember s.l. er varðar afgreiðslu fræðslu- og frístundanefndar á styrkbeiðni klúbbsins tekin til umfjöllunar.Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að fara yfir málið.
-
2. Samgöngunefnd SSA - Fundargerðir 2011-2012
Mál 1112080 Allur ferill málsins
Fundargerð 1.fundar samgöngunefndar SSA lögð fram til kynningar.
-
3. Samstarfsnefnd SSA - Fundargerðir 2011-2012
Mál 1112081 Allur ferill málsins
Fundargerð 1.fundar samstarfsnefndar SSA lögð fram til kynningar.
-
4. Fundargerðir Þróunarfélags Austurlands 2011
Mál 1105180 Allur ferill málsins
Fundargerðir stjórnar og aukaaðalfundar frá 16.desember lagðar fram til kynningar.
-
5. Hjólastígur milli byggðakjarna í Fjarðabyggð
Mál 1110156 Allur ferill málsins
Staða mála vegna styrkbeiðni við gerð hjólreiðastígs milli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar kynnt. Sótt var um styrk til Vegagerðar en beiðni var hafnað en óskað eftir viðræðum.Mannvirkjastjóra falið að vinna áfram að málinu.
-
6. Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2011/2012
Mál 1110184 Allur ferill málsins
Kynnt bréf Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis þar sem kynnt er úthlutun á byggðakvóta fiskveiðiárið 2011-2012. Fjarðabyggð er gefinn kostur á að setja reglur um úthlutun kvótans.Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar og felur framkvæmdastjóra hafna og bæjarstjóra að vinna að málinu áfram. Boðaður verður fundur með þeim sem eru með lögskráða báta í Fjarðabyggð 10. janúar n.k.
-
7. Stofnfundur Samtaka orkusveitarfélaga
Mál 1111090 Allur ferill málsins
Fundargerð stofnfundar lögð fram til kynningar.Bæjarráð samþykkir að sækja um aðild að Samtökum orkusveitarfélaga.
-
8. Sæluhús á Fagradal
Mál 1112112 Allur ferill málsins
Bréf Vegagerðar þar sem fjallað er um framtíð Sæluhússins á Fagradal. Bæjarráð samþykkir að koma ekki að endugerð hússins.
-
9. Endurnýjun vátrygginga Fjarðabyggðar 2012
Mál 1112074 Allur ferill málsins
Undir þessum dagskrárlið vék Jón Björn Hákonarson af fundi.Sjóvá óskar eftir endurskoðun á tryggingarsamningi vegna tjónareynslu áranna 2010 og það sem af er 2011. Um er að ræða slysatryggingu og ábyrgðartryggingu. Minnisblað mannauðsstjóra lagt fram.Bæjarráð samþykkir tillögur sem koma fram á minnisblaði.
-
10. Endurgreiðsluhlutfall launagreiðenda á greiddum lífeyri lækkar
Mál 1112083 Allur ferill málsins
Bréf Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar þar sem lögð er fram tillaga að endurgreiðsluhlutfalli Fjarðabyggðar til tryggingu lífeyrisskuldbindinga Fjarðabyggðar. Lífeyrisskuldbinding lækkara á milli og ár og verður 66%.Bæjarráð samþykkir breytinguna fyrir sitt leyti og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
11. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2011
Mál 1101153 Allur ferill málsins
Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 19 lögð fram til kynningar.
-
12. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 33
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 33 lögð fram til kynningar.