Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 273

28. desember 2011, kl. 22:00 til 23:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 105 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar saman til umfjöllunar og afgreiðslu.  Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Stofnfjárhlutir í Sparisjóð Norðfjarðar

    Mál 1108010 Allur ferill málsins

    Í framhaldi af fundi með stjórnarformanni og stjórnarmanni fyrr í dag kom bæjarráð saman til að fara yfir efni fundarins.  Fyrir liggur að stjórn Sparisjóðs Norðfjarðar er einhuga í því að tilboð í stofnfé Sparisjóðsins sé of lágt. Bæjarráð er sammála að fylgja áliti stjórnar Sparisjóðsins og Bankasýslu ríkisins um að tilboðið sé of lágt og því styður bæjarráð að hætt verði við söluferlið að svo stöddu.