Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2012

Stofnfjárhlutir í Sparisjóð Norðfjarðar

Mál 1108010 Fyrst á dagskrá 10. ágúst 2011, síðast 5. janúar 2012. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Neskaupstaður og Norðfjörður

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2011

    Bæjarráð, fundur 253 liður 3

    Stofnfjáreigendafundur í Sparisjóð Norðfjarðar 18.ágúst 2011

    Stofnfjáreigendafundur í Sparisjóð Norðfjarðar verður haldinn 18.ágúst kl. 17:00 í Nesskóla. Lagt fram til kynningar. Bæjarráð tilnefnir Jón Björn Hákonarson, forseta bæjarstjórnar, sem fulltrúa sveitarfélagsins.

  2. Bæjarráð, fundur 273 liður 1

    Í framhaldi af fundi með stjórnarformanni og stjórnarmanni fyrr í dag kom bæjarráð saman til að fara yfir efni fundarins.  Fyrir liggur að stjórn Sparisjóðs Norðfjarðar er einhuga í því að tilboð í stofnfé Sparisjóðsins sé of lágt. Bæjarráð er sammála að fylgja áliti stjórnar Sparisjóðsins og Bankasýslu ríkisins um að tilboðið sé of lágt og því styður bæjarráð að hætt verði við söluferlið að svo stöddu.

  3. 2012

    Bæjarstjórn, fundur 105 liður 2.1

    Fundargerðin „Bæjarráð - 273“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is