Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 253

10. ágúst 2011, kl. 09:00 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 97 liður 8

    Fundargerðir bæjarráðs teknar saman til umfjöllunar og kynningar.

Dagskrá

  1. 1. Ágangur vatns á lóð í Árdal.

    Mál 1107061 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsögn mannvirkjastjóra frá 4.ágúst. Mannvirkjastjóra falið að svara erindinu og fara yfir varnir vegna ágangs vatns í Árdal.

  2. 2. Fasteignamat 2012

    Mál 1107030 Allur ferill málsins

    Lagðar fram til kynningar upplýsingar frá Þjóðskrá Íslands um fasteignamat 2012. Fjármálastjóra falið að greina upplýsingarnar nánar.

  3. 3. Stofnfjáreigendafundur í Sparisjóð Norðfjarðar 18.ágúst 2011

    Mál 1108010 Allur ferill málsins

    Stofnfjáreigendafundur í Sparisjóð Norðfjarðar verður haldinn 18.ágúst kl. 17:00 í Nesskóla. Lagt fram til kynningar. Bæjarráð tilnefnir Jón Björn Hákonarson, forseta bæjarstjórnar, sem fulltrúa sveitarfélagsins.

  4. 4. Skatepark á Eskifirði

    Mál 1005109 Allur ferill málsins

    Ódagsett bréf Brettafélags Austurlands, frá júlí 2011 auk kostnaðaráætlunar, þar sem óskað er eftir að Fjarðabyggð hugi að aðstöðu fyrir bretta- og hjólaíþróttir. Vísað til fræðslu- og frístundanefndar og fjárhagsáætlunar 2012.

  5. 5. Ráðstefna um eflingu lýðræðis hjá ríki og sveitarfélögum

    Mál 1107079 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur ódagsett bréf frá Innanríkisráðuneytinu þar sem vakin er athygli á ráðstefnu um eflingu lýðræðis hjá ríki og sveitarfélögum sem fyrirhuguð er 14. september 2011. Stjórnsýslustjóra falið að kanna hvort mögulegt sé að ráðstefnan verði send út í gegnum fjarfundabúnað.

  6. 6. Starfshópur um almenningssamgöngur á Austurlandi 2011

    Mál 1106107 Allur ferill málsins

    Fundargerð frá 30.júní lögð fram til kynningar.

  7. 7. Drög að reglum um framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til eflingar tónlistarnáms og jöfnunar á aðstöðumun nemenda

    Mál 1108001 Allur ferill málsins

    Drög að reglum og samkomulag, milli ríkissjóðs og sambands sveitarfélaga, lagt fram til kynningar og vísað til fræðslustjóra.

  8. 8. Fundargerðir framkvæmdaráðs SSA - 2011

    Mál 1107058 Allur ferill málsins

    Fundargerð frá 25.júlí lögð fram til kynningar.

  9. 9. Fjárhagsáætlun 2012

    Mál 1108029 Allur ferill málsins

    Lögð eru fram til kynningar drög að dagsetningum í fjarhagsáætlunarferli og drög að ferli og framsetningu hennar.  Tekið fyrir á næsta fundi.

  10. 10. Vinna við sóknaráætlun; Verkefnin 5 - 7

    Mál 1108028 Allur ferill málsins

    Lagður er fram til kynningar tölvupóstur frá framkvæmdastjóra SSA þar sem kynnt er vinna við sóknaráætlun. Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram.