Bæjarráð, fundur 254
16. ágúst 2011, kl. 08:30 til 12:00, í þjónustumiðstöðinni í Neskaupstað. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 97 liður 9
Fundargerðir bæjarráðs teknar saman til umfjöllunar og kynningar.
Dagskrá
-
1. Fjármál 2011
Mál 1108048 Allur ferill málsins
Þennan dagskrárlið sat Björgvin Valdimarsson fjármálastjóri og kynnti hann frávikagreiningu fyrir sveitarsjóð fyrstu sex mánuði ársins. Jafnframt mættu á fundinn fræðslustjóri og slökkviliðsstjóri og fóru þeir yfir frávik í rekstri sinna málaflokka.
-
2. Gerð skýrslu um áhrif í Fjarðabyggð vegna tillagna að breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu.
Mál 1106101 Allur ferill málsins
Þennan dagskrárlið fundar sátu Flosi Eiríksson og Sigurjón Örn Arnarson frá KPMG og kynntu þeir drög að skýrslu um áhrif minna kvótafrumvarpsins á Fjarðabyggð.
-
3. Aðalfundur SSA 2011
Mál 1108012 Allur ferill málsins
Aðalfundurinn haldinn að Hallormsstað 30. september og 1. október n.k. Fram lagt og kynnt.
-
4. Gjaldskrá fyrir ótryggða orku
Mál 1108013 Allur ferill málsins
Bæjarráð samþykkir tillögu um hækkun.
-
5. Breyting á gjaldskrá fjarvarmaveitu
Mál 1108005 Allur ferill málsins
Þennan dagskrárlið sat mannvirkjastjóri. Farið yfir tillögu að hækkun gjaldskrár. Bæjarráð samþykkir tillögu um hækkun.
-
6. Þakviðgerðir á Nesbakka 1-11 740
Mál 1108034 Allur ferill málsins
Þennan dagskrárlið sat mannvirkjastjóri.Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti tillögu í minnisblaði og vísar tillögunni til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
-
7. Íþrótta- og skólaakstur 2011
Mál 1011111 Allur ferill málsins
Þennan dagskrárlið sat mannvirkjastjóri.Bæjarráð samþykkir að gjaldskrá fyrir skólaakstur í Verkmenntaskóla Austurlands verði óbreytt fram til 31.12.2011
-
8. Jarðhitaleit í Fjarðabyggð
Mál 1011112 Allur ferill málsins
Þennan dagskrárlið sat mannvirkjastjóri.Farið yfir stöðu jarðhitaleitar í Fjarðabyggð og verksamning um jarðhitaleit. Bæjarráð samþykkir verksamninginn.
-
9. Bréf frá formanni íþróttafélgsins Þróttar, Neskaupstað
Mál 1108053 Allur ferill málsins
Bréf lagt fram til kynningar en það fjallar um ýmsar úrbætur vegna aðstöðumála.Bæjarráð samþykkir að vísa bréfinu til umfjöllunar fræðslu- og frístundanefndar og eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar í tengslum við gerð fjárhagsáætlana.
-
10. Nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði
Mál 0903017 Allur ferill málsins
Þennan dagskrárlið sat mannvirkjastjóri.Bæjarráð samþykkir tillögu mannvirkjastjóra að heimila Framkvæmdasýslu ríkisins fyrir hönd Velferðarráðuneytisins og Fjarðabyggðar að bjóða út byggingu á nýju hjúkrunarheimili í Fjarðabyggð, staðsett að Dalbraut 1 á Eskifirði. Ráðgert er að hefja framkvæmdir haustið 2011 og að þeim ljúki vor / sumar 2013.Jafnframt er mannvirkjastjóra heimilað að vinna að lóðarmálum til samræmis við minnisblað um lóðarmál fyrir hjúkrunarheimilið.
-
11. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 24
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd nr. 24 frá 10. ágúst s.l. staðfest.
- 11.1 Ónýttur jarðhitaleitastyrkur sérstaks átaks 2008
- 11.2 Jarðhitaleit í Fjarðabyggð
- 11.3 Uppsögn Landsvirkjunar á samningum sem snúa að ótryggri orku
- 11.4 Hækkun á ótryggðri orku frá 1.september 2011
- 11.5 Gjaldskrá fyrir ótryggða orku
- 11.6 Breyting á gjaldskrá fjarvarmaveitu
- 11.7 Ósk um greinargerð um stöðu mála og framtíðaráform í fráveitumálum
- 11.8 Úthlutun úr styrkvegasjóði fyrir árið 2011
- 11.9 730 - Grenndarkynning, Kvíagilslækur
- 11.10 730 - Grenndarkynning, Rafstöðvarlækur
- 11.11 735 - Grenndarkynning, lækur innan við fótboltavöll
- 11.12 735 Grenndarkynning vallarhúss íþróttarvallar
- 11.13 Viðbygging vegna Hafnargötu 1 - grenndarkynning
- 11.14 Byggingarleyfi - garðhús
- 11.15 730 Búðargata 3 - pallur
- 11.16 740 Sæbakki 20 - beiðni um breytingu á lóðaskipulagi
- 11.17 740 Skálateigur - Sumarhús Dalland
- 11.18 735 Fjarðabyggð, lóðarmál að Helgafelli 5
- 11.19 Ágangur vatns á lóð í Árdal.
- 11.20 Fyrirspurn um umhverfismál á Reyðarfirði
- 11.21 Beiðni um að styrkja leiðbeinendanámskeið Vistverndar í verki
- 11.22 Þátttaka ungmenna í VII. Umhverfisþingi 14.október 2011
- 11.23 Vinna við gerð nýrrar byggingarreglugerðar
- 11.24 Vinna við gerð nýrrar reglugerðar um framkvæmdaleyfi
- 11.25 Gerð nýrrar skipulagsreglugerðar - Landskipulagsstefna
- 11.26 735 Hátún 3 - stöðuleyfi
- 11.28 Afgreiðslur byggingafulltrúa - 21
-
12. Hafnarstjórn - 86
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 86 frá 20. júlí s.l. staðfest.