Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 255

19. ágúst 2011, kl. 15:00 til 16:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 97 liður 10

    Fundargerðir bæjarráðs teknar saman til umfjöllunar og kynningar.

Dagskrá

  1. 1. Verkfall leikskólakennara 2011

    Mál 1108069 Allur ferill málsins

    <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />Þennan dagskrárlið fundar sat fræðslustjóri Fjarðabyggðar.Félag leikskólakennara hefur boðað ótímabundið verkfall frá og með mánudeginum 22. ágúst 2011.   Bæjarráð Fjarðabyggðar samþykkir að komi til verkfalls leikskólakennara 22. ágúst n.k.verði ekki tekið á móti börnun í leikskólum sveitarfélagsins meðan  ágreiningur er um starfsemi leikskólanna í boðuðu verkfalli. Líkur eru á að ágreiningi um starfsemi skólanna  verði skotið til félagsdóms og verður starfsemin endurskoðuð í ljósi þess úrskurðar er hann liggur fyrir. Fræðslustjóra falið að skipuleggja starfsemina ásamt stjórnendum leikskólanna í samræmi við þessa samþykkt. Einnig lögð fram drög að bréfi fræðslustjóra til forráðamanna barna í leikskólum Fjarðabyggðar.  Jafnframt kynnt stuðningsyfirlýsing Foreldrafélags Leikskólans Lyngholts við kjarabaráttu leikskólakennara sem barst bæjarstjóra í morgun.