Bæjarráð, fundur 256
23. ágúst 2011, kl. 16:30 til 18:45, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 97 liður 11
Fundargerðir bæjarráðs teknar saman til umfjöllunar og kynningar.
Dagskrá
-
1. Fjármál 2011
Mál 1108048 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sátu mannvirkjastjóri, félagsmálastjóri og framkvæmdastjóri hafna ásamt fjármálastjóra. Farið í gegnum frávikagreiningu fyrstu 6 mánaða ársins.
-
2. Fjárhagsáætlun 2012
Mál 1108029 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri. Fjallað um drög að tekjuáætlun ársins 2012 og aðra grunnþætti áætlunarinnar.
-
3. Gerð skýrslu um áhrif í Fjarðabyggð vegna tillagna að breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu.
Mál 1106101 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat framkvæmdastjóri hafna. Lögð fram til kynningar greinargerð KPMG um áhrif breytinga laga um stjórn fiskveiða á Fjarðabyggð ásamt drögum að umsögn um frumvarp til breytinga á stjórn fiskveiða, þingmál 827, þskj. 1475. Bæjarráð samþykkir umsögnina og felur bæjarstjóra að undirrita hana.
-
4. Framtíð félagsstarfs í Fjarðabyggð
Mál 1106010 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat félagsmálastjóri og kynnti hann minnisblað um félagsstarf aldraðra og tillögur sem félagsmálanefnd leggur til varðandi félagsstarf aldraðra.Bæjarráð samþykkir tillögu tvö samanber minnisblað félagsmálastjóra og felur honum að útfæra starfsemina í samræmi við hana.
-
5. Auglýst eftir umsókn um undirbúning og framkvæmd 2. landsmóts UMFÍ 50
Mál 1107099 Allur ferill málsins
Þennan dagskrárlið fundar sat fræðslustjóri og kynnti framkvæmd landsmótsins. Fram lagt minnisblað um mótið og útfærslu þess.Bæjarráð samþykkir að sótt verði um landsmót UMFÍ 50 ára og eldri og felur fræðslustjóra í samráði við Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands að leggja fram umsókn.
-
6. Starfshópur um almenningssamgöngur
Mál 1101197 Allur ferill málsins
Þennan dagskrárlið sat Ásta Kristín Sigurjónsdóttir verkefnastjóri Þróunarfélagsins sem kynnti vinnu sem unnin hefur verið vegna almenningssamgangna í Fjarðabyggð. Jafnframt sat mannvirkjastjóri fundinn.Bæjarráð samþykkir að áfram sé unnið að verkefninu og það nánar útfært.
-
7. Lagfæring á leikvelli við Dalbraut og Bogahlíð 735
Mál 1108079 Allur ferill málsins
Lagður fram undirskriftarlisti íbúa á Eskifirði þar sem óskað er eftir lagfæringum á leikvellinum við Dalbraut á Eskifirði.Bæjarráð samþykkir að vísa erindi til fjárhagsáætlunargerðar 2012.
-
8. Þakkir fyrir stuðning við UÍA
Mál 1108073 Allur ferill málsins
Fram lagt þakkabréf Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands vegna fjárframlags. Bæjarráð óskar sambandinu til hamingju með gott og vel heppnað unglingalandsmót sem haldið var um síðustu verslunarmannahelgi sem var því til sóma.
-
9. Beiðni um afhendingu jafréttisáætlunar, ásamt framkvæmdaáætlun
Mál 1108072 Allur ferill málsins
Bæjarráð felur félagsmálastjóra að afgreiða beiðnina.
-
10. Evrópsk lýðræðisvika 10.-16. okt. nk.
Mál 1108066 Allur ferill málsins
Fram lagt kynningarefni um lýðræðisvikuna.Fram lagt til kynningar.
-
11. Vinna við eflingu sveitarstjórnarstigsins
Mál 0905153 Allur ferill málsins
Fram lagðar fyrirspurnir til sveitarfélagsins um atriði sem lúta að eflingu sveitarstjórnarstigsins. Stjórnsýslustjóra falið að vinna drög að svörum við spurningarlista í samráði við bæjarráð. Skilafrestur er 10. september.
-
12. Fræðslu- og frístundanefnd - 15
Til afgreiðslu bæjarráðs í sumarleyfi bæjarstjórnar.Bæjarráð staðfestir fundargerðina.
-
13. Félagsmálanefnd - 17
Til afgreiðslu bæjarráðs í sumarleyfi bæjarstjórnar.Bæjarstjórn staðfestir fundargerðina.
-
14. Hluthafafundur í Fjarðaferðum
Mál 1108089 Allur ferill málsins
Boðað er til hluthafafundar í Fjarðaferðum 26. ágúst n.k.Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að fara með umboð Fjarðabyggðar á fundinn.