Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 257

29. ágúst 2011, kl. 08:30 til 11:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 97 liður 12

    Fundargerðir bæjarráðs teknar saman til umfjöllunar og kynningar.

Dagskrá

  1. 1. Austfirsk eining - Fundargerðir 2011

    Mál 1104025 Allur ferill málsins

    Fundargerð Austfirskrar einingar nr. 8 frá 15.ágúst lögð fram til kynningar.

  2. 2. Framlög til starfsemi Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands árið 2012

    Mál 1108114 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf frá Ungmenna- og íþróttasambandi Austurlands vegna fjárhagsstuðnings á árinu 2012. Vísað til skoðunar fræðslu- og frístundanefndar í tengslum við fjárhagasáætlunargerð 2012.

  3. 3. Tillaga til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða. Samráðs- og kynningarferli

    Mál 1108094 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf iðnaðarráðuneytisins frá 19.ágúst er varðar samráðs- og kynningarferli vegna tillögu til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða. Vísað til eigna-, skipulags og umhverfisnefndar til umfjöllunar og skoðunar hjá mannvirkjastjóra.

  4. 4. Vinna við sóknaráætlun 20/20 - Verkefnin 5 - 7

    Mál 1108028 Allur ferill málsins

    Erindi frá SSA þar sem óskað er eftir tillögum frá sveitarfélögum vegna fjárfestingarverkefna á Austurlandi.  Farið yfir ýmsar hugmyndir að fjárfestingarverkefnum í tengslum við sóknaráætlun 20/20.   Stjórnsýslustjóra falið að vinna málið áfram og koma hugmyndum á framfæri við SSA.  Atvinnu- og menningarnefnd verði jafnframt kynntar hugmyndirnar.

  5. 5. Hluthafafundur í Fjarðaferðum

    Mál 1108089 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri fór yfir niðurstöður hluthafafundar Fjarðaferða sem haldinn var 24.ágúst um niðurfærslu og aukningu hlutafjár.  Vísað er til gagna sem lögð voru fram á fundinum af Páli Kr. Pálssyni stjórnarformanni.  Bæjarráð staðfestir niðurstöðu hluthafafundar um að hlutafé Fjarðaferða verði fært niður um 60% og veitir jafnframt heimild til að hlutafé félagsins verði aukið á ný.

  6. 6. Forvarnarmál - Tóbak

    Mál 1108085 Allur ferill málsins

    Bréf Ungmennafélags Íslands frá 15.ágúst er varðar kostnaðarþátttöku sveitarfélaga vegna gerðar skiltis í tengslum við forvarnir vegna síaukinnar neyslu ungs fólks á munntóbaki. Vísað til félagsmálanefndar til ákvörðunartöku og til kynningar í fræðslu- og frístundanefnd.

  7. 7. Könnun á leiguíbúðum sveitarfélaga

    Mál 1108125 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar skýrsla Varasjóðs húsnæðismála vegna könnunar á leiguíbúðum sveitarfélaga 2010. Skýrslunni vísað til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

  8. 8. Aðalfundur Eignarhaldsfélagsins Fasteignar

    Mál 1107046 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Farið var yfir efni aðalfundar sem haldinn var 9.ágúst.  Lagður fram ársreikningur eignarhaldsfélagsins vegna ársins 2010.

  9. 9. Fjárhagsáætlun 2012

    Mál 1108029 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins og lagði fram drög að tekjuáætlun og fjárhagsrömmum málaflokka 2012.  Úthlutun fjárhagsramma verður tekin á næsta fundi.

  10. 10. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 25

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 25 frá 22.ágúst lögð fram.

    1. 10.9 740-Deiliskipulag fyrir sumarbústaði, Skuggahlíð.