Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 272

19. desember 2011, kl. 08:30 til 10:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 105 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.  Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson,   Jens Garðar Helgason, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Páll Björgvin Guðmundsson, Guðmundur Þorgrímsson, Esther Ösp Gunnarsdóttir, Elvar Jónsson, Sævar Guðjónsson.Fundargerð staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Aðgerðarplan vegna almannavarna í Fjarðabyggð

    Mál 1112056 Allur ferill málsins

    Aðgerðarplan fyrir verkefni sem aðgerðarstjórn þarf að vinna að vegna almannavarna.Fram lagt og kynnt.

  2. 2. Aðalfundur StarfA 2011 - 8.11.2011

    Mál 1110172 Allur ferill málsins

    Lögð fram gögn frá aðalfundi og aðalfundargerð.Fram lagt til kynningar.

  3. 3. Stjórnarfundir Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar 2011

    Mál 1104083 Allur ferill málsins

    Fundargerðir þriggja síðustu stjórnunarfunda lagðar fram til kynningar.

  4. 4. Stefnumótun félagsþjónustusviðs Fjarðabyggðar fyrir árið 2011

    Mál 1101058 Allur ferill málsins

    Fram lögð sameiginleg stefna félagsþjónustu Fjarðabyggðar og Fljótsdalshéraðs sem samþykkt hefur verið af félagsmálanefndum sveitarfélaganna.Bæjarráð samþykkir að vísa stefnunni til staðfestingar bæjarstjórnar.

  5. 5. Reglur um liðveislu og eyðublað 2011

    Mál 1102013 Allur ferill málsins

    Reglur um liðveislu lagðar fram til kynningar.Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til frekari úrvinnslu og ósk um greinargerð þar sem breytingar er listaðar upp og lagt mat á kostnað og breytingu á þjónustu.

  6. 6. Starfshópur um almenningssamgöngur

    Mál 1101197 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið fundar sat mannvirkjastjóri, kynnti undirbúningsvinnu við skipulagðar samgöngur í Fjarðabyggð og lagði fram minnisblað um stöðu málsins, leiðarkerfi ofl.Bæjarráð samþykkir að haldið verði áfram að vinna að verkefninu.

  7. 7. Fjárhagsleg endurskipulagning Eignarhaldsfélagsins Fasteignar hf

    Mál 1104081 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri gerði grein fyrir hluthafafundi í eignarhaldsfélaginu.Bæjarráð samþykkir að haldið verði áfram að vinna að málinu á þeim forsendum sem fyrir liggja.

  8. 8. Aðgerðaráætlun í fræðslu- og frístundamálum 2012-2013

    Mál 1108002 Allur ferill málsins

    Fram lögð aðgerðaráætlun í fræðslu- og frístundarmálum.Bæjarráð samþykkir aðgerðaráætlun enda taki hún alltaf mið af fjárhagsramma hvers árs.  Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

  9. 9. Stofnfundur Samtaka orkusveitarfélaga

    Mál 1111090 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið fundar sat mannvirkjastjóri.  Stofnfundur Samtaka orkusveitarfélaga var haldinn 25. nóvember s.l. en aðild að samtökunum eiga sveitarfélög sem eiga hagsmuna að gæta.  Bæjarráð frestar ákvörðun um aðild að samtökunum fram yfir áramót en óskar eftir því að fá stofnfundargerð.

  10. 10. Ályktun gegn niðurskurði í tónlistarskólum

    Mál 1112038 Allur ferill málsins

    Fram lögð ályktun frá Félagi tónlistarskólakennara þar sem lýst er áhyggjum af niðurskurði í tónlistarskólum.Bæjarráð vísar erindi til fræðslu-og frístundanefndar.

  11. 11. Fundargerðir félagsmálanefndar 2011

    Mál 1101152 Allur ferill málsins

    Fundargerð lögð fram til kynningar.

  12. 12. Fræðslu- og frístundanefnd - 20

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fram lögð til kynningar.