Bæjarráð, fundur 271
12. desember 2011, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 104 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman. Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2011
Mál 1112031 Allur ferill málsins
Þennan dagskrárlið fundar sat fjármálastjóri. Lögð fram tillaga að breytingu á fjárhagsáætlun 2011. Bæjarráð samþykkir breytingar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
2. Sjókvíaeldi í Reyðarfirði
Mál 1103025 Allur ferill málsins
Var á dagskrá síðasta fundar bæjarráðs. Lagt fram minnisblað framkvæmdastjóra hafnanna og mannvirkjastjóra en málið var til umfjöllunar hafnarstjórnar og eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar auk tillögu að umsögn bæjarráðs til Umhverfisstofnunar.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi umsögn með áorðnum breytingum.
-
3. Ljósárvirkjun - Samningur og afsal
Mál 1111138 Allur ferill málsins
Drög að afsali og leigusamningi vegna Ljósárvirkjunar Eskifirði en RARIK gaf Ljósárvirkjun til Fjarðabyggðar þann 13. nóvember s.l. Vísað til bæjarráðs frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti samninginn og afsalið og felur bæjarstjóra að undirrita skjölin.
-
4. Tillaga frá starfshópi sjávarútvegsráðherra
Mál 1112009 Allur ferill málsins
Bréf frá 2.desember þar sem komið er á framfæri ályktun sveitarstjórnar sveitarfélagsins Skagafjarðar frá 30.nóvember vegna tillagna frá starfshópi sjávarútvegsráðherra.Lagt fram til kynningar.
-
5. Framtíð Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands
Mál 1110202 Allur ferill málsins
Bókun bæjarráðs Seyðisfjarðarkaupstaðar og Breiðdalshrepps vegna framlaga til Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands
-
6. Dagvistunarúrræði fyrir aldraða og heilabilaða í Neskaupstað
Mál 1005030 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað félagsmálastjóra og deildarstjóra heimaþjónustu frá 5. desember s.l.Bæjarráð samþykkir að veita 500.000 kr. til heimaþjónustu á árinu 2012 á forsendum tillagna í minnisblaði. Tekið af liðnum óráðstafað.
-
7. Tillaga að gjaldskrá fyrir tjaldstæðin í Fjarðabyggð
Mál 1111053 Allur ferill málsins
Tillaga atvinnu- og menningarnefndar til bæjarráðs vegna gjaldskrár fyrir tjaldstæði í Fjarðabyggð.Bæjarráð samþykkir gjaldskrána.
-
8. Reglur vegna endurgerðar gamalla húsa
Mál 1112028 Allur ferill málsins
Bæjarráð samþykkir að fresta málinu til næsta fundar bæjarráðs.
-
9. 127. mál til umsagnar um Fjarðaheiðargöng
Mál 1112033 Allur ferill málsins
Lögð fram tillaga til þingsályktunar um Fjarðarheiðargöng.Bæjarráð Fjarðabyggðar telur jákvætt að skoðaðir verði jarðgangakostir til lausnar á samgöngumálum Seyðisfjarðar í framhaldi af gerð Norðfjarðargangna. Enda hefur það alltaf verið skoðun bæjarráðs Fjarðabyggðar að það séu eðlileg mannréttindi að íbúar á Austfjörðum geti keyrt láglendisvegi milli þéttbýlisstaða innan fjórðungsins.
-
10. Aukaaðalfundur Þróunarfélags Austurlands
Mál 1112040 Allur ferill málsins
Bæjarráð felur stjórnsýslustjóra að sækja fundinn og fara með umboð bæjarins á fundinum.
-
11. Fjárhagsleg endurskipulagning Eignarhaldsfélagsins Fasteignar hf
Mál 1104081 Allur ferill málsins
Bæjarráð felur bæjarstjóra að sækja hluthafafundinn og fara með atkvæði bæjarstjórnar.
-
12. Stjórnskipulag Fjarðabyggðar
Mál 1109020 Allur ferill málsins
Mannauðsstjóri vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu dagskrárliðar.Bæjarstjóri tók við ritun fundar. Farið yfir og ræddar tillögur bæjarráðs sem stjórnkerfisnefndar til bæjarstjórnar er varðar breytingar á skipulagi stjórnsýslu Fjarðabyggðar. Lögð var fram á fundinum minnisblað Capacent ráðgjafar er varðar tillögur að breytingum á stjórnskipulagi Fjarðabyggðar. Bæjarráð vísar tillögum með greinargerð til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarstjórnar.
-
13. Hafnarstjórn - 92
Fram lögð og kynnt.
- 13.1 Beiðni um undaþágu til að taka lóðs Mv S. Rafeael1111110
- 13.2 66.mál til umsagna um breytingar á hafnarlögum1111116
- 13.3 85. mál til umsagnar um frumvarp til laga um hafnir1111123
- 13.4 Sjókvíaeldi í Reyðarfirði1103025
- 13.5 Undirbúningsvinna vegna komu skemmtiferðaskipa1005131
- 13.6 Skipulag strandsvæða1111057
- 13.7 730 Fjarðabyggð, Ægisgata 61103085
- 13.8 Gjaldskrár Hafnarsjóðs yfirferð texta.1112003
- 13.9 Umhverfisstefna hafna1111100
- 13.10 Endurnýjun og stækkun á olítanki smábáta á Stöðvarfirði1111099
- 13.11 Hafnarsjóður - akstursvarnir1108115
- 13.12 Framkvæmdir við bæjarbryggju á Norðfirði0905163
- 13.13 Umsókn Hafskeljar ehf. um ræktunarleyfi1111128
-
14. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 32
Fram lögð og kynnt.
- 14.1 Sjókvíaeldi í Reyðarfirði
- 14.2 730 - Deiliskipulag Hólmanes
- 14.3 740 - Grenndarkynning, ósk um stækkun lóðar Egilsbrautar 9a
- 14.4 Nýtt form lóðaleigusamninga
- 14.5 740 Nautahvammur 19 - geymsluhúsnæði
- 14.6 Framlenging á leyfi vegna geymslu raflausnar í Seljateigsskemmunni
- 14.7 Ljósárvirkjun - Samningur og afsal.
- 14.8 Sjálfbærniverkefnið á Austurlandi - kynning
- 14.9 Endurskoðun á umferðarsamþykkt
- 14.10 Umsókn Hafskel ehf. um ræktunarleyfi
- 14.11 730 Hafnargata 6, gámur norðan við hús
-
15. Atvinnu- og menningarnefnd - 22
Fram lögð og kynnt.