Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 103

1. desember 2011, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Dagskrá

  1. 1. 730-Deiliskipulag Bakkagerði 1, breyting

    Mál 1111058 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögu að breytingu á deiliskipulagi Bakkagerðis 1 á Reyðarfirði. Breytingin fellst í að raðhúsalóðum er breytt í íbúðarhúsalóðir, lóðum er breytt og þær sameinaðar, númerum lóða er breytt, kvaðir eru settar á tvær lóðir, hæðum húsa er breytt og lóðum er fjölgað. Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 9 atkvæðum breytingu á deiliskipulagi Bakkagerðis 1 Reyðarfirði og vísar deiliskipulaginu til auglýsingar.

  2. 2. 730-Deiliskipulag iðnaðarsvæðis á Kollaleiru, breyting

    Mál 1111041 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri gerði grein fyrir breytingartillögu deiliskipulags iðnaðarsvæðisins á Kollaleiru á Reyðarfirði. Helstu breytingar felast í að vesturhluti iðnaðarsvæðisins er stækkaður til suðurs um 10.000m2 og deiliskipulag vöruflutningahafnar minnkar sem því nemur. Fyrirhuguð gata Tjarnarvogur, ásamt lóðum vestan hennar, er felld niður. Mörkum lóða við Leiruvog og Búðareyri 33,35 og 37 er breytt og lóðin nr. 39 við Búðareyri er felld niður. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 9 atkvæðum breytingu á deiliskipulagi iðnaðarsvæðisins á Kollaleiru Reyðarfirði og vísar deiliskipulaginu til auglýsingar.

  3. 3. 730 - Deiliskipulag vöruflutningahafnar - breyting

    Mál 1111042 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri gerði grein fyrir breytingartillögu deiliskipulags vöruflutningahafnar á Reyðarfirði. Breyting fellst í að 10.000m2 hluti svæðisins er felldur út úr skipulaginu og er látinn tilheyra deiliskipulagi iðnaðarsvæðis á Kollaleiru. Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 9 atkvæðum breytingu á deiliskipulagi vöruflutningahafnar á Reyðarfirði og vísar deiliskipulaginu til auglýsingar.

  4. 4. Fjárhagsáætlun 2012

    Mál 1108029 Allur ferill málsins

    Seinni umræða um fjárhagsáætlun 2012, þriggja ára áætlun 2013 - 2015 og starfsáætlanir. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

    Bæjarstjóri fylgdi áætluninni úr hlaði með framlagðri greinargerð og gerði grein fyrir lítilsháttar breytingum sem gerðar hafa verið á fjárhagsáætluninni milli umræðna. Um er að ræða 680.000 kr. hækkun á kostnaðarlið fjárhagsáætlunar.

    Til máls tóku Páll Björgvin Guðmundsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Guðmundur Þorgrímsson, Elvar Jónsson, Jens Garðar Helgason og Jón Björn Hákonarson.

    Sameiginleg bókun bæjarstjórnar Fjarðabyggðar Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkir nú fjárhagsáætlun fyrir árið 2012. Þrátt fyrir þunga skuldastöðu sýnir hún vel hversu fjárhagslega sterkt sveitarfélagið er til að takast á við erfiða stöðu án þess að vega að grunnþjónustu og velferðarkerfi þess. Fagnefndir sveitarfélagsins, ásamt bæjarráði og starfsmönnum, unnu mikið starf í undirbúningi þessarar fjárhagsáætlunar og skoðuðu alla fjárhagslega þætti sem undir þær heyrðu og vógu og mátu ýmsa kosti til hagræðingar í rekstri sveitarfélagsins. Við það starf var haft að leiðarljósi að þjónustuskerðingar yrðu sem minnstar gagnvart íbúum sveitarfélagsins og kæmu fram þar sem notkun þjónustu væri minnst. Þá var horft til þess að hækkanir á gjaldskrám sveitarfélagsins væru hófstilltar og tækju fyrst og fremst mið af vísitöluhækkunum til að stilla álögum á íbúa sem mest í hóf.

    Þrátt fyrir að aðhalds sé gætt þá munu sveitarsjóður og undirfyrirtæki fjárfesta á árinu 2012 fyrir 330 milljónir króna sem er afar mikilvægt fyrir samfélagið í heild sinni.

    Þá telur bæjarstjórn Fjarðabyggðar það mikinn styrk að samstaða hefur ríkt í nefndum um gerð fjárhagsáætlunar ársins 2012.  Endurspeglast það svo í að öll bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkir hana enda er hún afrakstur sameiginlegrar vinnu allra kjörinna fulltrúa óháð flokkslínum. Í því árferði sem enn ríkir í efnahagsmálum í íslensku samfélagi er mikill styrkur að slíkum vinnubrögðum við fjárhagsstjórn Fjarðabyggðar.

    Niðurstöður fjárhagsáætlunar 2012 fyrir Fjarðabyggð og stofnanir með áorðnum breytingum eru eftirfarandi

    Tölur í þús.kr.           Rekstrarniðurstaða   Fjárfesting   Afborganir langtímalána og leiguskulda

    Samstæða A-hluta          - 62.475            106.577          354.387

    Samstæða B-hluta           376.067            223.900          156.648

    Samstæða A og B           313.592            330.477          511.035

    Ekki er gert ráð fyrir sölu eigna eða töku langtímalána.

    Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkir fjárhagsáætlun 2012, þriggja ára áætlun 2013 - 2015 og starfsáætlanir samhljóða með 9 atkvæðum.

  5. 5. Bæjarráð - 269

    Fundargerðin í heild

    Til máls tóku Páll Björgvin Guðmundsson, Jens Garðar Helgason, Esther Ösp Gunnarsdóttir, Sævar Guðjónsson, Elvar Jónsson og Jón Björn Hákonarson.Fundargerð bæjarráðs nr. 269 frá 29.nóvember 2011 samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum.

    1. 5.1 Fjárhagsáætlun 20121108029
    2. 5.2 Reglur vegna endurgerð gamalla húsa1104080
    3. 5.3 Málefni Lyfju í Fjarðabyggð1104026
    4. 5.4 Endurnýjun á samningi við verkefnastjóra Rauða krossins og móttökufulltrúa nýrra íbúa1111136
    5. 5.5 Ágangur vatns á lóð í Árdal1107061
    6. 5.6 Aðalfundur Skólaskrifstofu Austurlands 11.nóvember 20111110143
    7. 5.7 Sjálfbærniverkefnið á Austurlandi - kynning1111137
    8. 5.8 Framtíð Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands1110202
    9. 5.9 Fundargerðir stjórnar og framkvæmdaráðs SSA - 20111107058
    10. 5.10 Stjórnskipulag Fjarðabyggðar1109020
    11. 5.11 Fundargerðir félagsmálanefndar 20111101152
    12. 5.12 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 311111010F
  6. 6. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 31

    Fundargerðin í heild

    Til máls tóku Esther Ösp Gunnarsdóttir, Páll Björgvin Guðmundsson, Guðmundur Þorgrímsson, Óskar Þór Hallgrímsson og Sævar Guðjónsson.  Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 31 frá 21.nóvember 2011 samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum.

    1. 6.1 730 Fjarðabyggð, Ægisgata 6
    2. 6.2 730-Deiliskipulag Bakkagerði 1, breyting
    3. 6.3 730-Deiliskipulag iðnaðarsvæðis á Kollaleiru, breyting
    4. 6.4 730-Deiliskipulag Melur 1, breyting
    5. 6.5 730-Deiliskipulag vöruflutningahafnar, breyting
    6. 6.6 735-Deiliskipulag, Dalur 1, íþróttasvæði og leikskóli
    7. 6.7 735 Fjarðabyggð, Selhús, Strandgata 33a - niðurrif bílskúrs
    8. 6.8 740 Skálateigur - Sumarhús Dalland
    9. 6.9 740-Efri Skálateigur 1a, grenndarkynning á byggingarleyfi
    10. 6.10 750 Umsókn um leyfi til að girða tún og reisa sumarhús
    11. 6.11 Skipulag strandsvæða
    12. 6.12 740 Fjarðabyggð, snjóflóðavarnir Norðfirði
    13. 6.13 750 Fjarðabyggð, snjóflóðavarnir Fáskrúðsfirði
    14. 6.14 Ársfundur Umhverfisstofnunar og náttúruverndarnefnda sveitarfélaga árið 2011
    15. 6.15 Aðalfundarboð HAUST 28.október 2011
    16. 6.16 Egilsbraut 9 - aðkoma að sundlaug Norðfjarðar
    17. 6.17 Gerð frumvarps til breytinga á lögum um mat á umhverfisáhrifum - ósk um athugasemdir
    18. 6.18 Gerð nýrrar skipulagsreglugerðar
    19. 6.19 Raforkuspár 2011 - 2050
    20. 6.20 Samvinnufélag um resktur leiguhúsnæðis
    21. 6.21 Slysahættur á Fáskrúðsfirði
    22. 6.22 Snjómokstur í Fjarðabyggð
    23. 6.23 Tillaga að gjaldskrá fyrir tjaldstæðin í Fjarðabyggð
    24. 6.24 Tillaga að töku tilboðs í nýtt hjúkrunarheimilis í Fjarðabyggð
    25. 6.25 Umsókn um styrk til úrbóta á ferðamannastöðum 2012
    26. 6.26 Útbreiðsla ágengra tegunda í Fjarðabyggð
    27. 6.27 Afgreiðslur byggingafulltrúa - 26
  7. 7. Fundargerðir félagsmálanefndar 2011

    Mál 1101152 Allur ferill málsins

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.Fundargerð félagsmálanefndar nr.24 frá 28.nóvember 2011 samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum.