Bæjarráð, fundur 259
12. september 2011, kl. 08:30 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 98 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs nr. 258 og 259 teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />Til máls tóku Jens Garðar Helgason, Elvar Jónsson, Guðmundur Þorgrímsson, Jón Björn Hákonarson og Óskar Þór Hallgrímsson. Fundargerð bæjarráðs nr. 259 frá 12.september staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Ágangur vatns á lóð í Árdal
Mál 1107061 Allur ferill málsins
Bréf Elsu Þórisdóttur og Jóns Björns Hlöðverssonar frá 3.september, sem ritað er í framhaldi af svarbréfi mannvirkjastjóra frá 25.ágúst, vegna ágangs vatns á lóðinni að Árdal 19 Eskifirði. Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar til afgreiðslu.
-
2. Golfklúbbur Norðfjarðar - Beiðni um framlengingu á samningi
Mál 1109041 Allur ferill málsins
Beiðni Golfklúbbs Norðfjarðar um framlengingu á uppbyggingarsamningi vegna Grænanesvallar. Rætt almennt um styrkveitingar til íþróttafélaga. Beiðni golfklúbbsins vísað til fræðslu- og frístundanefndar. Málið aftur á dagskrá bæjarráðs í október í tengslum við fjárhagsáætlun 2012.
-
3. Rekstur Héraðsskjalasafns Austfirðinga og drög að fjárhagsáætlun 2012
Mál 1109048 Allur ferill málsins
Bréf Héraðsskjalasafns Austfirðinga frá 6.september þar sem óskað er eftir auknu framlagi til safnsins frá aðildarsveitarfélögum á árinu 2012. Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundi sem hann átti nýlega með forstöðumanni safnsins, formanni stjórnar og bæjarstjóra Fljótsdalshéraðs. Vísað til vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2012.
-
4. Uppgjör vegna útgöngu Skeggjastaðahrepps og Hornafjarðar úr SSA
Mál 1109061 Allur ferill málsins
Tillaga SSA um uppgjör vegna útgöngu Skeggjastaðahrepps og Hornafjarðar úr SSA. Vísað til fjármálastjóra með beiðni um álit sem lagt verði fyrir næsta fund bæjarráðs.
-
5. Hluthafafundur í Fjarðaferðum
Mál 1108089 Allur ferill málsins
Erindi Fjarðaferða frá 8.september þar sem Fjarðabyggð er boðið að auka hlutafé sitt um 6,9%. Bæjarráð mun ekki auka hlutafé sitt í Fjarðaferðum en Fjarðabyggð mun áfram leggja Fjarðaferðum lið eins og kostur er.
-
6. Hvatning velferðarvaktarinnar í upphafi skólaárs
Mál 1109022 Allur ferill málsins
Bréf frá 1.september þar sem sveitarfélög eru hvött til að standa vörð um góða líðan barna og gæta að verði á skólamáltíðum. Vísað til fræðslu- og frístundanefndar.
-
7. Ungmennaráð sveitarfélaga
Mál 1109072 Allur ferill málsins
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 5.september er varðar ungmennaráð. Vísað til fræðslu- og frístundanefndar.
-
8. Ráðstefna um eflingu lýðræðis hjá ríki og sveitarfélögum
Mál 1107079 Allur ferill málsins
Ráðstefna um eflingu lýðræðis hjá ríki og sveitarfélögum, sem haldin verður 14.september í Ráðhúsi Reykjavíkur, verður í beinni útsendingu á netinu. Stjórnsýslustjóra falið að hvetja bæjarfulltrúa til að fylgjast með ráðstefnunni á netinu.
-
9. Bókun frá Menningarráði Austurlands
Mál 1109060 Allur ferill málsins
Bókun stjórnar Menningarráðs Austurlands frá 7.september lögð fram til kynningar "Á erfiðum tímum og með vísan til fjárhagslegs aðhalds í rekstri margra sveitarfélaga vill Menningarráð Austurlands vekja athygli á því að mikilvægt er að varðveita störf á sviði menningar og lista inn í sveitarfélögunum sem og stofnunum á vegum sveitarfélaga. Menningarsamningur milli ríkis og sveitarfélaga gengur út frá eflingu og aukinni atvinnusköpun á sviði lista og menningar. Mikilvægt er að við samninginn sé staðið hvað þetta varðar og störfum á Austurlandi í þessum málaflokki fjölgi"
-
10. Fundargerðir Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands 2011
Mál 1105100 Allur ferill málsins
Fundargerð frá 1.september 2011 lögð fram til kynningar. Stjórnsýslustjóri gerði grein fyrir efni fundarins.
-
11. Bréf frá sunddeild Leiknis - lokun sundlaugar 2012
Mál 1104110 Allur ferill málsins
Bréf sunddeildar Leiknis frá 8.september er varðar lokanir sundlaugarinnar á Fáskrúðsfirði á árinu 2012. Vísað til fræðslu- og frístundanefndar í tengslum við starfs- og fjárhagsáætlun 2012.
-
12. Umgengni á moldartökusvæði fyrir ofan Snæfell á Reyðarfirði
Mál 1109089 Allur ferill málsins
Bréf Ólafs H. Ólafssonar og Marcelu Rodiguez Zaenz frá 9.september er varðar umgengni á moldartökusvæði fyrir ofan Snæfell á Reyðarfirði. Vísað til mannvirkjastjóra til afgreiðslu.
-
13. Fræðslu- og frístundanefnd - 16
Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar nr. 16 frá 7.september lögð fram.
-
14. Atvinnu- og menningarnefnd - 17
Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar nr. 17 frá 8.september 2011 lögð fram.
-
15. Franski spítalinn á Fáskrúðsfirði
Mál 1104080 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu mála vegna uppbyggingar við Franska spítalann.