Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2011

Uppgjör vegna útgöngu Skeggjastaðahrepps og Hornafjarðar úr SSA

Mál 1109061 Fyrst á dagskrá 12. september 2011, síðast 19. september 2011. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2011

    Bæjarráð, fundur 259 liður 4

    Tillaga SSA um uppgjör vegna útgöngu Skeggjastaðahrepps og Hornafjarðar úr SSA. Vísað til fjármálastjóra með beiðni um álit sem lagt verði fyrir næsta fund bæjarráðs.

  2. Bæjarstjórn, fundur 98 liður 2.4

    Fundargerðin „Bæjarráð - 259“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Bæjarráð, fundur 260 liður 1

    Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur fjallað um erindi Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) vegna uppgjörs við Skeggjastaðahrepp og sveitarfélagið Hornafjörð vegna úrgöngu þeirra úr SSA. Í uppgjörinu kemur fram að bæði sveitarfélögin greiða SSA hlutfallslega miðað við íbúafjölda í lok útgönguárs að teknu tilliti til peningalegra eigna, annars vegar og skulda og reiknaðra skuldbindinga hins vegar. Heildarfjárhæðin sem kemur til greiðslu samkvæmt samkomulaginu er kr. 3.907.939.-  Reiknaðar lífeyrisskuldbindingar SSA í árslok 2010 eru um 52 m. kr. og peningalegar eignir eru um 30 m. kr. Aðildarfélög SSA bera hlutfallslega bakábyrgð á skuldum SSA.  Bæjarráð samþykkir uppgjörið fyrir sitt leyti og felur bæjarstjóra að undirrita samkomulag þar að lútandi.