Bæjarráð, fundur 317
19. nóvember 2012, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Elvar Jónsson, aðalmaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 124 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku Jens Garðar Helgason, Elvar Jónsson, Valdimar O. Hermannsson, Jón Björn Hákonarson, Páll Björgvin Guðmundsson og Eiður Ragnarsson.
Fundargerð bæjarráðs nr. 317. frá 19. nóvember 2012 staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Áríðandi tilkynning varðandi gildi deiliskipulags sem birt hefur verið í Stjórnartíðindum árin 2011 og 2012
Mál 1211073 Allur ferill málsins
Fram lagt bréf Skiplagsstofnun þar sem fjallað er um gildi deiliskipulaga sem birt hafa verið á árunum 2011 og 2012 og 3 mánuðir eða fleiri líða frá því deiliskipulag er samþykkt og birt í b - deild Stjórnartíðinda
Bæjarráð vísar erindi til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og framkvæmdasviðs til úrvinnslu
-
2. Beiðni um stuðning við verkefnið "Jól á Austurlandi"
Mál 1211060 Allur ferill málsins
Fram lögð beiðni Austurbrúar um fjárhagslegan stuðning við verkefnið Jól á Austurlandi.
Bæjarráð vísar erindi til atvinnu- og menningarnefndar.
-
3. Beiðni um styrk - nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda
Mál 1211079 Allur ferill málsins
Fram lögð beiðni um framlag til nýsköpunarkeppni grunnskólanemanda í formi hvatningar eða styrks.
Bæjarráð vísar erindi til fræðslu- og frístundanefndar og til kynningar í atvinnu- og menningarnefnd.
-
4. Endurnýjun samnings við björgunarsveitirnar í Fjarðabyggð 2012
Mál 1211093 Allur ferill málsins
Fram lagt minnisblað frá fundi björgunarsveitanna í Fjarðabyggð og fulltrúa Fjarðabyggðar vegna endurskoðunar á samningi sveitanna við Fjarðabyggð.
Bæjarstjóra falið vinna áfram að samningi við björgunarsveitirnar.
-
5. Nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði
Mál 0903017 Allur ferill málsins
Þennan dagskrárlið fundar sat mannvirkjastjóri. Lagt fram minnisblað hönnuða til Framkvæmdasýslu ríkisins og afstaða Velferðarráðuneytisins um að hönnunarforsendur gefi ekki kost á breytingum í risrými nýs hjúkrunarheimilis í samræmi við niðurstöður framkvæmdasýslu. Vísað til eigna-, skiplags- og umhverfisnefndar og til kynningar í félagsmálanefnd.
-
6. Mengun neysluvatns á Eskifirði
Mál 1211098 Allur ferill málsins
Þennan dagskrárlið fundar sat mannvirkjastjóri. Rætt um niðurstöður rannsókna á vatnssýnum í neysluvatni á Eskifirði. Bæjarráð óskar eftir greinargerð frá framkvæmdasviði um sýnatökur og verkferla sem unnið er eftir við töku sýna. Jafnframt verði skoðaðir möguleikar þess að setja upp frekari hreinsun vatns eins og geislun. Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
-
7. Sóknaráætlun landshluta - Sameiginlegt markaðsátak sveitarfélaga á Austurlandi
Mál 1210196 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf Austurbrúar þar sem kynnt er að vinna sé hafin við gerð sóknaráætlunar fyrir Austurland sem nái til ársins 2020. Sóknaráætlunin nær til atvinnumála og nýsköpunar, mennta- og menningarmála og markaðsáætlunar. Vísað til atvinnu- og menningarnefndar til vinnslu og fræðslu- og frístundanefndar að því er varðar fræðsluþátt.
-
8. Tillögur um atvinnuátakið VINNA OG VIRKNI
Mál 1211094 Allur ferill málsins
Framlögð drög að tillögum um atvinnuátakið vinna og virkni en markmið með átakinu er að virkja atvinnuleitendur og koma í veg fyrir langvarandi atvinnuleysi. Um er að ræða samstarfsverkefni ríkis, sveitarfélaga og almenna markaðsins um að skapa 2.200 starfstengd vinnumarkaðsúrræði til sex mánaða. Vísað til félagsmálanefndar til umfjöllunar og bæjarstjóra falið að fylgja málinu eftir.
-
9. Varðar frumvörp til nýrra laga um búfjáreftirlit og dýravelferð
Mál 1211092 Allur ferill málsins
Lögð fram fyrirspurn frá Austurbrú vegna frumvarpa til laga um búfjáreftirlit og dýravelferð og óskað eftir upplýsingum um kostnað sveitarfélaga vegna málaflokksins. Vísað til framkvæmdasviðs til vinnslu og það svari fyrirspurninni.
-
10. Ráðning fjármálastjóra
Mál 1211100 Allur ferill málsins
Þennan dagskrárlið fundar sat Helga Jónsdóttir frá Capacent ráðningum en hún var í símasambandi. Bæjarstjóri lagði fram greinargerð og tillögu vegna ráðningar í starf fjármálastjóra. Bæjarráð samþykkir að ráða Snorra Styrkársson sem fjármálastjóra sveitarfélagsins og felur bæjarstjóra að ganga frá ráðningu.