Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2012

Sóknaráætlun landshluta - Sameiginlegt markaðsátak sveitarfélaga á Austurlandi

Mál 1210196 Fyrst á dagskrá 29. október 2012, síðast 29. nóvember 2012. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2012

    Bæjarráð, fundur 314 liður 13

    Sameiginlegt markaðsátak sveitarfélaga á Austurlandi

    Lögð fram gögn frá Ólafi Áka Ragnarssyni hjá Austurbrú þar sem fram kemur að stjórn Vaxa hafi samþykkt á fundi sínum  þann 11. október að funda með sveitarfélögum á Austurlandi um sameiginlega kynningu á sveitarfélögunum með stuðningi frá Vaxtarsamningnum. Samþykktin kom í framhaldi af umsókn frá Fjarðabyggð og Fljótsdalshéraði um markaðsátak gagnvart fjárfestum. Fundur  var haldinn þann 23. október með fulltrúum frá öllum sveitarfélögum. Nokkuð góður hljómur var í fundarmönnum um að standa saman að slíkri kynningu.  Bæjarráð er sammála um að bíða með ákvörðun um þátttöku í kynningu þar til frekari upplýsingar liggja fyrir.

  2. Bæjarstjórn, fundur 122 liður 2.13

    Fundargerðin „Bæjarráð - 314“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Sameiginlegt markaðsátak sveitarfélaga á Austurlandi

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Bæjarráð, fundur 317 liður 7

    Lagt fram bréf Austurbrúar þar sem kynnt er að vinna sé hafin við gerð sóknaráætlunar fyrir Austurland sem nái til ársins 2020. Sóknaráætlunin nær til atvinnumála og nýsköpunar, mennta- og menningarmála og markaðsáætlunar. Vísað til atvinnu- og menningarnefndar til vinnslu og fræðslu- og frístundanefndar að því er varðar fræðsluþátt.

  4. Bæjarstjórn, fundur 124 liður 1.7

    Fundargerðin „Bæjarráð - 317“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is