Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 124

29. nóvember 2012, kl. 15:00 til 16:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (11)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
  • Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, aðalmaður
  • Elvar Jónsson, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
  • Jens Garðar Helgason, aðalmaður
  • Sævar Guðjónsson, aðalmaður
  • Valdimar O Hermannsson, aðalmaður
  • Eiður Ragnarsson, varamaður
  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Dagskrá

  1. 1. Bæjarráð - 317

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Jens Garðar Helgason, Elvar Jónsson, Valdimar O. Hermannsson, Jón Björn Hákonarson, Páll Björgvin Guðmundsson og Eiður Ragnarsson.

    Fundargerð bæjarráðs nr. 317. frá 19. nóvember 2012 staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 1.1 Áríðandi tilkynning varðandi gildi deiliskipulags sem birt hefur verið í Stjórnartíðindum árin 2011 og 20121211073
    2. 1.2 Beiðni um stuðning við verkefnið "Jól á Austurlandi"1211060
    3. 1.3 Beiðni um styrk - nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda1211079
    4. 1.4 Endurnýjun samnings við björgunarsveitirnar í Fjarðabyggð 20121211093
    5. 1.5 Nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði0903017
    6. 1.6 Mengun neysluvatns á Eskifirði1211098
    7. 1.7 Sóknaráætlun landshluta - Sameiginlegt markaðsátak sveitarfélaga á Austurlandi1210196
    8. 1.8 Tillögur um atvinnuátakið VINNA OG VIRKNI1211094
    9. 1.9 Varðar frumvörp til nýrra laga um búfjáreftirlit og dýravelferð1211092
    10. 1.10 Ráðning fjármálastjóra1211100
  2. 2. Bæjarráð - 318

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Jens Garðar Helgason, Elvar Jónsson, Valdimar O. Hermannsson, Jón Björn Hákonarson, Páll Björgvin Guðmundsson og Eiður Ragnarsson.

    Fundargerð bæjarráðs nr. 318 frá 26. nóvember 2012 staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 2.1 Endurskoðun á umferðarsamþykkt1009017
    2. 2.2 Framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks 2012-20141207043
    3. 2.3 Aðalfundur Eignarhaldsfélagsins Fasteignar 20121209151
    4. 2.4 Aðalfundur Skólastjórafélags Austurlands - 14.september1211102
    5. 2.5 Aðgengi að íþróttavelli Ungmennafélagsins Leiknis1211101
    6. 2.6 Barnaverndarnefnd Fjarðabyggðar 2010-20141008126
    7. 2.7 Fundur með stjórnendum Alcoa Fjarðaáls1211140
    8. 2.8 Tillögur samráðshóps ríkis og sveitarfélaga um innleiðingu húsnæðisbótakerfis1211138
    9. 2.9 Niðurfelling vega af vegaskrá1208078
    10. 2.10 Sjúkratryggingar (samningar sjúkratryggingastofnunar),303. mál. Til umsagnar1211111
    11. 2.11 Uppsjávarsmiðja á Austfjörðum1211141
    12. 2.12 Vatnsveita Fjarðabyggðar - vatnsból Norðfirði1103156
    13. 2.13 Miðstöð innanlandsflugs til umsagnar,120.mál(hlutverk Reykjavíkurflugvallar)1211050
    14. 2.14 Mjóeyrarhöfn - lestunarskýli við hafnarsvæði1211143
    15. 2.15 Ráðning fjármálastjóra hjá Fjarðabyggð1211139
    16. 2.16 Fræðslu- og frístundanefnd - 311211006F
    17. 2.17 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 511211011F
    18. 2.18 Atvinnu- og menningarnefnd - 371211014F
    19. 2.19 Fundargerðir barnaverndarnefndar 20121201124
  3. 3. Fræðslu- og frístundanefnd - 31

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar nr. 31 frá 14. nóvember 2012 staðfest með 9 atkvæðum.

  4. 4. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 51

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 51 frá 19. nóvember 2012 staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 4.1 Endurskoðun á umferðarsamþykkt
    2. 4.2 735-Deiliskipulag, Skotíþróttafélagið Dreki.
    3. 4.3 740 - Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027, breyting á þéttbýlisuppdrætti fyrir Norðfjörð vegna stækkunar Norðfjarðahafnar
    4. 4.4 740 - Deiliskipulagið Naust 1
    5. 4.5 740 - Deiliskipulag Neseyri
    6. 4.6 Áríðandi tilkynning varðandi gildi deiliskipulags sem birt hefur verið í Stjórnartíðindum árin 2011 og 2012
    7. 4.7 Beiðni um fluttning á sjóhúsi á Eskifirði
    8. 4.8 Erindi um vatns- og fráveitumál, til innanríkisráðherra og til Alþingis
    9. 4.9 Framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks 2012-2014
    10. 4.10 Fundagerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands árið 2012
    11. 4.11 Mengun neysluvatns á Eskifirði
    12. 4.12 Niðurfelling vega af vegaskrá
    13. 4.13 Samningur við Curron ehf - TicketSystem
    14. 4.14 Skil á skýrslum um refa- og minkaveiðar á veiðiárinu 2011/2012
    15. 4.15 Snjóflóðavarnir á Drangagilssvæði í Neskaupstað
    16. 4.16 Yfirlýsing um uppruna raforku á Íslandi
    17. 4.17 Nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði
    18. 4.18 Afgreiðslur byggingafulltrúa - 36
  5. 5. Atvinnu- og menningarnefnd - 37

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar nr. 37 frá 22. nóvember 2012 staðfest með 9 atkvæðum.

  6. 6. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2012

    Mál 1201124 Allur ferill málsins

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 29 frá 12. nóvember 2012 staðfest með 9 atkvæðum.

  7. 7. Endurskoðun á umferðarsamþykkt

    Mál 1009017 Allur ferill málsins

    Fyrri umræða um umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar.

    Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Valdimar O. Hermannsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Elvar Jónsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Jens Garðar Helgason, Sævar Guðjónsson og Eiður Ragnarsson.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa umferðarsamþykktinni til síðari umræðu í bæjarstjórn.

  8. 8. 740 - Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027, breyting á þéttbýlisuppdrætti fyrir Norðfjörð vegna stækkunar Norðfjarðahafnar

    Mál 1210078 Allur ferill málsins

    Eigna,- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti fyrir sitt leyti á fundi 19. nóvember 2012 tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027, þéttbýlisuppdráttur fyrir Norðfjörð, vegna fyrirhugaðrar stækkunar Norðfjarðarhafnar. Tillagan er unnin af Alta ehf. Kynningarfundi vegna fyrirhugaðrar breytingar er lokið.

    Bæjarstjóri fylgdi breytingum á aðalskipulaginu úr hlaði.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027, þéttbýlisuppdráttur fyrir Norðfjörð.

  9. 9. 740 - Deiliskipulagið Naust 1

    Mál 1208106 Allur ferill málsins

    Eigna,- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti fyrir sitt leiti á fundi sínum 19. nóvember 2012 tillögu að deiliskipulaginu Naust 1 fyrir Norðfjarðarhöfn og nágrenni ásamt umhverfisskýrslu. Tillagan og umhverfisskýrslan er unnin af Alta ehf. Kynningarfundi vegna deiliskipulagstillögunnar og umhverfisskýrslunnar er lokið.

    Bæjarstjóri fylgdi deiliskipulagi úr hlaði.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að auglýsa tillögu að deiliskipulaginu Naust 1 fyrir Norðfjarðarhöfn og nágrenni ásamt umhverfisskýrslu.

  10. 10. Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2012/2013

    Mál 1209090 Allur ferill málsins

    Samkvæmt reglugerð um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2012/2013 er í 6 gr. gert að skilyrði að:

    "Eigandi fiskiskips geri skriflegan samning við fiskkaupanda um magn sem landað verður til vinnslu hjá viðkomandi vinnsluaðila, þar sem fram kemur að vinnsluaðili skuldbindur sig til að vinna aflann og skal bæjar- eða sveitarstjórn árita samninginn til staðfestingar"

    Til máls tók Jens Garðar Helgason.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að veita bæjarstjóra heimild til undirritunar framangreindra samninga til staðfestingar og ef að upp koma vafa eða ágreiningsmál verði bæjarráði veitt heimild til að afgreiða þau til fullnustu.

  11. 11. Breytingar á nefndarskipan sjálfstæðisflokks á kjörtímabilinu 2010-2014

    Mál 1204061 Allur ferill málsins

    Esther Bergsdóttir tekur sæti Fjólu Hrafnkelsdóttur sem varamaður í fræðslu og frístundanefnd.