Bæjarstjórn, fundur 123
15. nóvember 2012, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Dagskrá
-
1. Bæjarráð - 315
Fundargerðir bæjarráðs teknar saman til umfjöllunar og afgreiðslu. Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Valdirmar O Hermannsson, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Elvar Jónsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Esther Ösp Gunnarsdóttir, Óskar Þór Hallgrímsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Guðmundur Þorgrímsson.Fundargerð bæjarráðs nr. 315 frá 5. nóvember staðfest með 9 atkvæðum.
- 1.1 Tilkynning um fyrirhugaða 4.000 tonna laxeldisstöð Laxar fiskeldis ehf. í sjókvíum í Fáskrúðfirði1201079
- 1.2 Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2012/20131209090
- 1.3 Stjórnarfundur Skólaskrifstofu Austurlands 20121210184
- 1.4 Aðalfundur Skólaskrifstofu Austurlands 2012.1210207
- 1.5 IPA verkefni með áherlu á innflytjendur1210193
- 1.6 Þjónusta við olíuleit á Drekasvæði - kynningarmál1210103
- 1.7 Endurskoðun á úthlutunarreglum íþróttastyrkja1208066
- 1.8 Aðalfundur HAUST 2012 24.10. á Seyðisfirði1209107
-
2. Bæjarráð - 316
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman. Fundargerð bæjarráðs nr. 316 staðfest með 9 atkvæðum.
- 2.1 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 20131208011
- 2.2 Málefni Slökkviliðs Fjarðabyggðar1102004
- 2.3 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2013 - Bæjarráð1208101
- 2.4 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2013 - Barnaverndarnefnd1208104
- 2.5 Þriggja ára fjárhagsáætlun 2014 - 20161210138
- 2.6 Tíu ára fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2013 til 20231210139
- 2.7 Öldungamót í blak í Fjarðabyggð1211019
- 2.8 750 Fjarðabyggð, snjóflóðavarnir Fáskrúðsfirði1101234
- 2.9 Beiðni um að sveitarfélögin gerist meðumsækjendur - Franski spítalinn1211023
- 2.10 Drög að samstarfsyfirlýsingu og stutt lýsing á RICE verkefninu1211051
- 2.11 IPA verkefni með áherslu á innflytjendur1210193
- 2.12 Miðstöð innanlandsflugs til umsagnar,120.mál(hlutverk Reykjavíkurflugvallar)1211050
- 2.13 Nýir íbúar og brottfluttir í Fjarðabyggð1106064
- 2.14 Stofnfundur Samtaka orkusveitarfélaga1111090
- 2.15 Stofnun samtaka sjávarútvegssveitarfélaga1209087
- 2.16 Styrkbeiðni 2013 frá Golfklúbbi Fjarðabyggðar1211049
- 2.17 Tilkynning um fyrirhugaða 4.000 tonna laxeldisstöð Laxar fiskeldis ehf. í sjókvíum í Fáskrúðfirði1201079
- 2.18 Umsókn um styrk vegna starfsemi Landsbyggðin lifi.1211036
- 2.19 Framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks 2012-20141207043
- 2.20 Innflytjendamál-bréf til þjóðskrár1211053
- 2.21 Beiðni um opnun skíðasvæðis í Oddskarði1211066
- 2.22 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 501211003F
- 2.23 Hafnarstjórn - 1061211002F
-
3. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 50
Til máls tóku: Valdimar O Hermannsson, Guðmundur Þorgrímsson, Ásta Kristín Siurjónsdóttir, Jón Björn Hákonarson.Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 50 frá 7. nóvember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
- 3.1 Málefni hestamanna á Eskifirði - Símonartún
- 3.2 Beiðni um fjárhald í húsi við bæinn Eskifjörð í Eskifirði
- 3.3 Beiðni um fluttning á sjóhúsi á Eskifirði
- 3.4 Biðstöðvar vegna almenningssamgangna í Fjarðabyggð
- 3.5 Gamli barnaskólinn á Eskifirði - standsetning
- 3.6 Aðalfundur HAUST 2012 24.10. á Seyðisfirði
- 3.7 Landsskipulagsstefna 2012-2024
- 3.8 Beiðni um að Fjarðabyggð leysi til sín lóð
- 3.9 Skógræktarsvæði nemenda í Grunnskóla Reyðarfirði
- 3.10 Boð til samstarfssvæða um að fylgjast með reynslu Snæfellinga í uppbyggingu svæðisgarðs
- 3.11 Nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði
- 3.12 Tilkynning um fyrirhugaða 4.000 tonna laxeldisstöð Laxar fiskeldis ehf. í sjókvíum í Fáskrúðfirði
- 3.13 Frumvarp til laga um almenningssamgöngur
- 3.14 Verndar- og orkunýtingaráætlun, frumvarp til laga, 3.mál
- 3.15 Staðlaður samningur milli dreifiveitu og almenns notanda.
- 3.16 Skráning reiðleiða - kortasjá
- 3.17 730 - Deiliskipulag Hólmanes
- 3.18 750 Fjarðabyggð, snjóflóðavarnir Fáskrúðsfirði
-
4. Hafnarstjórn - 106
Til máls tóku: Guðmundur Þorgrímsson, Páll Björgvin Guðmundsson.Fundargerð hafnarstjórnar nr. 106 frá 6. nóvember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
- 4.1 Undirbúningsvinna vegna komu skemmtiferðaskipa1005131
- 4.2 Umsögn vegna frumvarps til laga um breytingu á hafnalögum nr. 61/20031210164
- 4.3 Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 20121202146
- 4.4 Fundagerðir CI á árinu 20121204109
- 4.5 Erindi frá innanríkisráðuneyti - ósk um upplýsingar fyrir AMATII verkefnið1210165
- 4.6 Fiskmarkaður Austurlands - 8. mánaðauppgjör1211016
- 4.7 Styrkbeiðni um enduruppbyggingu bryggju við sjóhús að strandgötu 19,740 Neskaupstað1210174
- 4.8 Geymsluskýli fyrir bulkvöru á Mjóeyararhöfn1210173
- 4.9 Skipulag smábátahafnar á Fáskrúðsfirði1210116
- 4.10 Smábátahöfn Fáskrúðsfirði - Umhverfisfrágangur1211018
- 4.11 Smábátahöfn Stöðvarfirði - Umhverfisfrágangur1211017
-
5. 750 Fjarðabyggð, snjóflóðavarnir Fáskrúðsfirði
Mál 1101234 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar fylgdi málinu úr hlaði.Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt fyrir sitt leyti útgáfu á framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmdum vegna ofanflóðavarna við Nyabæjarlæk á Fáskrúðsfirði. Endanlegri staðfestingu vísað til bæjarstjórnar.Bæjarstjórn samþykkir að veita framkvæmdaleyfi vegna ofanflóðavarna við Nýjabæjarlæk með 9 atkvæðum.
-
6. 730 - Deiliskipulag Hólmanes
Mál 1111135 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar fylgdi deiliskipulaginu úr hlaði.Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum 29. mars 2012 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Hólmaness. Í umsagnarferli eftir auglýsingu gerði Vegagerðin athugasemd við legu stikaðs göngustígs þar sem hann þverar Norðfjarðarveg. Einnig hefur borist ábending frá Náttúrustofu Austurlands þar sem bent er á að mörk friðlands sé ekki nógu nákvæm. Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum deiliskipulag Hólmaness með áorðnum breytingum.
-
7. Fjárhagsáætlun 2013 - fasteignagjöld
Mál 1210134 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri fylgdi tillögu um álagningarstofna fasteignagjalda úr hlaði.Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Valdimar O Hermannsson, Elvar Jónsson.Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkir með 9 atkvæðum að fasteignagjöld ársins 2013 verði:<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /> Fasteignaskattur A: 0,45 % af húsmati og lóðarmati.
Fasteignaskattur B: 1,32 % af húsmati og lóðarmati
Fasteignaskattur C: 1,50 % af húsmati og lóðarmati
Lóðarleiga íbúðarhúsnæði: 0,53 % af lóðarhlutamat
Lóðarleiga atvinnuhúsnæði: 1,00% af lóðarhlutamat.
Vatnsskattur: 0,31% af húsmati.
Holræsagjald: 0,32 % af húsmati.
Sorphreinsunargjald: 21.000 kr. á heimili
Sorpeyðingargjald: 10.000 kr á heimili.Fjöldi gjalddaga fasteignagjalda verði átta - mánaðarlega frá 1. febrúar.
Eindagi fasteignagjalda verður síðasti virki dagur gjalddagamánaðar. Afsláttur á fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega verði:a) Einstaklingar: Brúttótekjur allt að kr. 2.456.633 100 % afslátturBrúttótekjur yfir kr. 3.248.840 0 % afsláttur b) Hjón og samskattað sambýlisfólk:Brúttótekjur allt að kr. 3.731.312 100% afslátturBrúttótekjur yfir kr. 4.459.571 0 % afsláttur
-
8. Fjárhagsáætlun 2013 útsvarsálagning
Mál 1210133 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri fylgdi tillögu um útsvar ársins 2013 úr hlaði.Enginn tók til máls.Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að útsvarshlutfall ársins 2013 verði 14,48% af tekjum einstaklinga í Fjarðabyggð. Með þessu er útsvarsheimild sveitarfélagsins fullnýtt árið 2013.
-
9. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2013
Mál 1208011 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri fylgdi fjárhagsáætlun ársins 2013 úr hlaði.
Frumvarp að fjárhagsáætlun 2013 ásamt starfsáætlunum til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Til máls tóku: Elvar Jónsson, Valdimar O Hermannsson, Jón Björn Hákonarson, Páll Björgvin Guðmundsson, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir.Bókun fulltrúa Fjarðalistans.Við bæjarfulltrúar Fjarðalistans, viljum taka á fjárhagslegri stöðu sveitarfélagsins af ábyrgð og raunsæi. Við erum því tilbúin að gera málamiðlanir eins og frekast er kostur, til að sátt megi ríkja um fjárhagsáætlanir, án þess þó að fórna okkar helstu áhersluatriðum. Í ljósi þess samþykkjum við bæjarfulltrúar Fjarðalistans, fjárhagsáætlun árið 2013 en vitnum að öðru leyti til málflutnings okkar í umræðum um fjárhagsáætlun í bæjarstjórn. Sérstaklega vísum við til umræðna um fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2013 - fræðslu- og frístundanefnd, á 121. fundi bæjarstjórnar þar sem fram koma áhyggjur okkar af ónógum fjárheimildum í fræðslumálum. Við treystum því þó að þær dugi til þess að lögbundinni grunnþjónustu sé hlíft og ekki þurfi að draga úr fjölbreytni þess glæsilega skólastarfs sem boðið er uppá í Fjarðabyggð.
Lögð fram tillaga bæjarstjóra um breytingu á áætluninni milli umræðna en bæjarráð samþykkti breytingar á fundi sínum 12. nóvember s.l. og vísaði þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.Niðurstöður fjárhagsáætlunar 2013 fyrir Fjarðabyggð og stofnanir með áorðnum breytingum eru eftirfarandi
Tölur í þús.kr. Rekstrarniðurstaða Fjárfesting Afborganir langtímalána og leiguskulda
Samstæða A-hluta 17.636 131.000 505.604
Samstæða B-hluta 332.844 635.000 320.316
Samstæða A og B 350.480 766.000 825.920
Ekki er gert ráð fyrir sölu eigna eða töku langtímalána
Bæjarstjórn samþykkir fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2013 með 9 atkvæðum.
-
10. Þriggja ára fjárhagsáætlun 2014 - 2016
Mál 1210138 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri fylgdi fjárhagsáætluninni úr hlaði.
Þriggja ára fjárhagsáætlun áranna 2014 til 2016 til síðari umræðu bæjarstjórnar.
Til máls tóku: Elvar Jónsson, Jón Björn Hákonarson, Valdimar O Hermannsson, Esther Ösp Gunnarsdóttir, Guðmundur Þorgrímsson,
"Bæjarfulltrúar Fjarðalistans ítreka þá afstöðu sína, sem fram kom í bókunum á bæjarráðsfundi nr. 314 og bæjarstjórnarfundi nr. 122, að gert verði ráð fyrir færslu Nesgötu suður fyrir fyrirhugaða leikskólabyggingu á Norðfirði. Bæjarfulltrúum Fjarðalistans hefur ekki orðið ágengt í því að fá færslu vegarins inn á áætlanir. Að mati bæjarfulltrúanna er hér á ferðinni mikið forgangsmál út frá öryggis-, skipulags- og fjárhagslegum sjónarmiðum. Að öðru leyti vísum við til þeirra bókana sem hér hefur verið vitnað til og málflutnings okkar í umræðum í bæjarstjórn.
Þrátt fyrir að íhuga alvarlega hjásetu, samþykkja bæjarfulltrúar Fjarðalistans fjárhagsáætlanir til þriggja og tíu ára að þessu sinni. Að öllu óbreyttu sjáum við okkur ekki fært að samþykkja sambærilegar áætlanir að ári en ítrekum mikilvægi þess að þá liggi fyrir nýtt kostnaðarmat á leikskólaframkvæminni í heild sinni, þ.e. byggingunni sjálfri, tilfærslu vegarins og öðrum kostnaðarliðum, og framkvæmdin hafi farið í gegnum skipulagsferli."
Bókun fulltrúa Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks."Fulltrúar B og D lista í bæjarstjórn Fjarðabyggðar árétta að á vegum ESU verður unnin ítarleg greining á kostnaði við flutning Nesgötu, áhættumat vegna umferðar um hana miðað við núverandi legu og greining á stærð væntanlegs leikskóla áður en deiliskipulagsvinna hefst í tengslum við byggingu hans. Þegar þær greiningar liggja fyrir getur farið fram um þær umræða í bæjarráði og bæjarstjórn áður en ákvörðun um byggingu nýs leikskóla á Norðfirði og umhverfi hans verður endanlega tekinn."Lögð fram tillaga bæjarstjóra um breytingu á áætluninni milli umræðna en bæjarráð samþykkti tillöguna og vísaði henni til bæjarstjórnar.
Þriggja ára fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árin 2014 til 2016 staðfest með 9 atkvæðum.
-
11. Tíu ára fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2013 til 2023
Mál 1210139 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri fylgdi áætluninni úr hlaði.Tíu ára fjárhagsáætlun 2013 til 2023 til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Til máls tóku: Valdimar O Hermannsson, Elvar Jónsson, Jón Björn Hákonarson.
Bókun bæjarfulltrúa Fjarðalistans.
"Bæjarfulltrúar Fjarðalistans ítreka þá afstöðu sína, sem fram kom í bókunum á bæjarráðsfundi nr. 314 og bæjarstjórnarfundi nr. 122, að gert verði ráð fyrir færslu Nesgötu suður fyrir fyrirhugaða leikskólabyggingu á Norðfirði. Bæjarfulltrúum Fjarðalistans hefur ekki orðið ágengt í því að fá færslu vegarins inn á áætlanir. Að mati bæjarfulltrúanna er hér á ferðinni mikið forgangsmál út frá öryggis-, skipulags- og fjárhagslegum sjónarmiðum. Að öðru leyti vísum við til þeirra bókana sem hér hefur verið vitnað til og málflutnings okkar í umræðum í bæjarstjórn.
Þrátt fyrir að íhuga alvarlega hjásetu, samþykkja bæjarfulltrúar Fjarðalistans fjárhagsáætlanir til þriggja og tíu ára að þessu sinni. Að öllu óbreyttu sjáum við okkur ekki fært að samþykkja sambærilegar áætlanir að ári en ítrekum mikilvægi þess að þá liggi fyrir nýtt kostnaðarmat á leikskólaframkvæminni í heild sinni, þ.e. byggingunni sjálfri, tilfærslu vegarins og öðrum kostnaðarliðum, og framkvæmdin hafi farið í gegnum skipulagsferli."Bókun Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks.
"Fulltrúar B og D lista í bæjarstjórn Fjarðabyggðar árétta að á vegum ESU verður unnin ítarleg greining á kostnaði við flutning Nesgötu, áhættumat vegna umferðar um hana miðað við núverandi legu og greining á stærð væntanlegs leikskóla áður en deiliskipulagsvinna hefst í tengslum við byggingu hans. Þegar þær greiningar liggja fyrir getur farið fram um þær umræða í bæjarráði og bæjarstjórn áður en ákvörðun um byggingu nýs leikskóla á Norðfirði og umhverfi hans verður endanlega tekinn."Tíu ára fjárhagsáætlun hefur tekið samsvarandi breytingum og gerðar hafa verið á fjárhagsáætlunum Fjarðabyggðar og stofnana árið 2013 og 2014 til 2016.
Tíu ára fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana áranna 2013 til 2023 staðfest með 9 atkvæðum af bæjarstjórn.