Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 315

5. nóvember 2012, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 123 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs teknar saman til  umfjöllunar og afgreiðslu.  Til máls tóku:  Jón Björn Hákonarson, Valdirmar O Hermannsson, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Elvar Jónsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Esther Ösp Gunnarsdóttir, Óskar Þór Hallgrímsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Guðmundur Þorgrímsson.Fundargerð bæjarráðs nr. 315 frá 5. nóvember staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Tilkynning um fyrirhugaða 4.000 tonna laxeldisstöð Laxar fiskeldis ehf. í sjókvíum í Fáskrúðfirði

    Mál 1201079 Allur ferill málsins

    Fram lagt bréf Skipulagsstofunar þar sem óskað er umsagnar um laxeldi í sjókvíum í Fáskrúðsfirði.Bæjarráð vísar erindi til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og hafnarstjórnar til umsagnar sem lögð verður fyrir bæjarráð.

  2. 2. Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2012/2013

    Mál 1209090 Allur ferill málsins

    Bæjarstjórn samþykkti 1.11. s.l.að vísa dagskrárlið til bæjarráðs til fullnaðarafgreiðslu.Fram lögð drög að bréfi til ráðuneytisins um sérstakar reglur Fjarðabyggðar til úthlutunar á byggðakvóta Mjóafjarðar og Stöðvarfjarðar. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að bréfi um breytingu á reglum.

  3. 3. Stjórnarfundur Skólaskrifstofu Austurlands 2012

    Mál 1210184 Allur ferill málsins

    Fram lögð til kynningar fundargerð stjórnar Skólaskrifstofu Austurlands frá 25. október 2012.Fundargerð vísað til kynningar í fræðslu- og frístundanefnd og félagsmálanefnd.

  4. 4. Aðalfundur Skólaskrifstofu Austurlands 2012.

    Mál 1210207 Allur ferill málsins

    Fram lagt fundarboð aðalfundar Skólaskrifstofu Austurlands sem boðaður er 23. nóvember n.k. kl. á Egilsstöðum.Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að fara með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinn og bæjarritara að vera hans varamaður.

  5. 5. IPA verkefni með áherlu á innflytjendur

    Mál 1210193 Allur ferill málsins

    Fram lagt minnisblað um þátttöku Fjarðabyggðar í IPA verkefni sem lýtur að innflytjendum. Markmið með verkefninu er að efla þjónustu við innflytjendur.Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til bæjarstóra og bæjarritara og þeir meti verkefnið með tilliti til annarra IPA styrkja sem sveitarfélagið er aðili að.  Tekið fyrir á næsta fundi bæjarráðs.

  6. 6. Þjónusta við olíuleit á Drekasvæði - kynningarmál

    Mál 1210103 Allur ferill málsins

    Bæjarráð vísaði á fundi 314 tilnefningu í samráðshóp Fjarðabyggðar og Fljótsdalshéraðsvegna vegna þjónustu við olíuleit á Drekasvæðinu til til fundar.Bæjarráð samþykkir að samráðshópinn skipi af hálfu Fjarðabyggðar Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri, Steinþór Pétursson framkvæmdastjóri hafna, Björn Ingi Knútsson verkefnastjóri og Sævar Guðjónsson bæjarfulltrúi.

  7. 7. Endurskoðun á úthlutunarreglum íþróttastyrkja

    Mál 1208066 Allur ferill málsins

    Umræður um styrki til íþróttafélaga.

  8. 8. Aðalfundur HAUST 2012 24.10. á Seyðisfirði

    Mál 1209107 Allur ferill málsins

    Fram lögð fundargerð aðalfundar Heilbrigðiseftirlits Austurlands frá 24. október 2012.